Háskóli Íslands brautskráir kandídata þrisvar á ári, í febrúar, júní og október. Næsta brautskráning verður laugardaginn 14. júní 2025 í Laugardalshöll. Brautskráningunni verður skipt í tvær athafnir og er hún opin bæði brautskráningarkandídötum og gestum þeirra. Kandídatar eru beðnir um að mæta eigi síðar en 30 mínútum fyrir athöfn. Hver kandídat má taka með sér tvo gesti. Fyrri athöfnin hefst kl. 10 en þá taka nemendur í grunn- og framhaldsnámi við Félagsvísindasvið, Heilbrigðisvísindasvið og Hugvísindasvið við prófskírteinum.Sú síðari hefst kl. 13.30 en þá taka nemendur í grunn- og framhaldsnámi við Menntavísindasvið og Verkfræði- og náttúruvísindasvið við skírteinum sínum. Athugið að með því að taka þátt í brautskráningarathöfn skuldbinda kandídatar sig til að yfirgefa ekki salinn fyrr en að athöfn lokinni. Brautskráningarkandídatar fá sent bréf með nánari upplýsingum um fyrirkomulag athafnanna þegar nær dregur. Prófskírteini og viðaukar Við brautskráningarathafnir fá kandídatar sem ljúka bakkalár- og framhaldsnámi afhent prófskírteini og viðauka með skírteini þar sem fram koma á stöðluðu formi upplýsingar um það nám sem lokið er. Prófskírteinið er á íslensku ásamt staðfestri enskri þýðingu en viðaukinn á íslensku og ensku. Þessi gögn eru afhent kandídötum án endurgjalds. Nemendur sem ljúka diplómagráðu fá skírteini sín afhent á skrifstofu deildar sinnar. Ef kandídat er fjarverandi við brautskráningu þarf hann að nálgast þau síðar hjá sinni deild. Þeim tilmælum er beint til kandídata að þeir varðveiti prófskírteini sín vel! Hvert prófskírteini er aðeins gefið út í einu eintaki, undirrituðu af viðkomandi deildarforseta. Það er á ábyrgð skírteinishafa að varðveita prófskírteinið með öruggum hætti þannig að það glatist ekki. Brautskráningar frá Háskóla Íslands, aftur til 2017: Show Brautskráningar 2025 Febrúar Show Brautskráningar 2024 FebrúarJúníOktóber Show Brautskráningar 2023 FebrúarJúníOktóber Show Brautskráningar 2022 FebrúarJúníOktóber Show Brautskráningar 2021 FebrúarJúníOktóber Show Brautskráningar 2020 FebrúarJúníOktóber Show Brautskráningar 2019 FebrúarJúníOktóber Show Brautskráningar 2018 FebrúarJúníOktóber Show Brautskráningar 2017 FebrúarJúníOktóber Tengt efni Spurt og svarað um lokaverkefni og brautskráningar Doktorsvarnir við Háskóla Íslands facebooklinkedintwitter