Góð atvinna og hagvöxtur Stuðla að viðvarandi sjálfbærum hagvexti og arðbærum og mannsæmandi atvinnutækifærum fyrir alla 8.1 Viðhaldið verði hagvexti á hvern einstakling í samræmi við aðstæður í hverju landi og að minnsta kosti 7% vexti vergrar landsframleiðslu á ári í þeim þróunarlöndum sem eru skemmst á veg komin. 8.2 Aukinni framleiðni í atvinnulífinu verði náð með fjölbreytni, tækninýjungum og nýsköpun, meðal annars með því að beina athygli að vinnuaflsfrekum geirum sem fela í sér mikinn virðisauka. 8.3 Unnið verði að framgangi þróunarmiðaðra stefnumála sem styðja við afkastamikla framleiðslustarfsemi, frumkvöðlastarfsemi, sköpunarmátt og nýsköpun og fjölga mannsæmandi störfum. Lítil og meðalstór fyrirtæki fái meðbyr, meðal annars með aðgengi að fjármálaþjónustu. 8.4 Fram til ársins 2030 verði nýting auðlinda til neyslu og framleiðslu bætt jafnt og þétt og leitast við að draga úr hagvexti sem gengur á náttúruna í samræmi við tíu ára rammaáætlun um sjálfbæra neyslu og framleiðslu, með hátekjuríkin í fararbroddi. 8.5 Eigi síðar en árið 2030 verði full vinna og mannsæmandi störf í boði fyrir allar konur og karla, þar á meðal ungt fólk og fatlað fólk, og sömu laun greidd fyrir jafnverðmæt störf. 8.6 Eigi síðar en árið 2020 hafi hlutfall ungmenna, sem eru atvinnulaus, stunda ekki nám eða þjálfun, lækkað verulega. 8.7 Gerðar verði tafarlausar og árangursmiðaðar ráðstafanir til þess að útrýma nauðungarvinnu. Nútímaþrælahald og mansal heyri sögunni til og tekið verði fyrir barnaþrælkun og hún bönnuð, þar á meðal herþjónusta barna, og eigi síðar en árið 2025 verði nauðungarvinna barna í allri sinni mynd úr sögunni. 8.8 Réttindi á vinnumarkaði verði vernduð og stuðlað að öruggu og tryggu vinnuumhverfi fyrir allt launafólk, meðal annars farandverkafólk, einkum konur í þeim hópi og þá sem eru í óöruggu starfi. 8.9 Eigi síðar en árið 2030 hafi verið mótuð og innleidd stefna í því skyni að stuðla að sjálfbærri ferðaþjónustu sem skapar störf og leggur áherslu á staðbundna menningu og framleiðsluvörur. 8.10 Fjármálastofnanir innan lands verði efldar til þess að bæta aðgengi að banka-, trygginga- og fjármálaþjónustu fyrir alla. Vísindamenn tengdir markmiðinu Ásta SnorradóttirDósent5254288astasnorra [hjá] hi.is Brynhildur DavíðsdóttirPrófessor5255233bdavids [hjá] hi.is Daði Már KristóferssonPrófessor5254553dmk [hjá] hi.is Daníel Þór ÓlasonPrófessor5255265dto [hjá] hi.is Elsa EiríksdóttirPrófessor5255926elsae [hjá] hi.is Guðbjörg Linda RafnsdóttirPrófessor5254237glr [hjá] hi.is Guðrún Valgerður StefánsdóttirPrófessor emerita5255366gvs [hjá] hi.is Gunnar Þór JóhannessonPrófessor5254055gtj [hjá] hi.is Gylfi MagnússonPrófessor5254572gylfimag [hjá] hi.is Gylfi ZoegaPrófessor5255239gz [hjá] hi.is Jónína EinarsdóttirPrófessor emerita5254508je [hjá] hi.is Kristín BjarnadóttirPrófessor emeritus5657647krisbj [hjá] hi.is Kristín Vala RagnarsdóttirPrófessor emerita5255886vala [hjá] hi.is Margrét Sigrún SigurðardóttirPrófessor5254445mss [hjá] hi.is Vefþjónusta fyrir símaskrá svarar ekki eða fyrirspurnin skilar engum niðurstöðum - (nafnalisti) Ragna Benedikta GarðarsdóttirPrófessor5254178rbg [hjá] hi.is Rögnvaldur Jóhann SæmundssonPrófessor5254623rjs [hjá] hi.is Sigrún ÓlafsdóttirPrófessor5254698sigruno [hjá] hi.is Stefán ÓlafssonPrófessor emeritusolafsson [hjá] hi.is Sveinn AgnarssonPrófessor5254588sveinnag [hjá] hi.is Thamar Melanie HeijstraPrófessor5254371thamar [hjá] hi.is Tinna Laufey ÁsgeirsdóttirPrófessor5255273ta [hjá] hi.is Þráinn EggertssonPrófessor emeritus5255283thrainn [hjá] hi.is Þróunarlönd 8.A Þróunaraðstoð í viðskiptum verði aukin, einkum í þeim þróunarlöndum sem eru skemmst á veg komin, meðal annars á grundvelli sameiginlegrar tæknilegrar aðstoðar í viðskiptum. 8.B Eigi síðar en árið 2020 verði heildarstefnu um atvinnumál ungmenna hrundið í framkvæmd og atvinnusáttmáli Alþjóðavinnumálastofnunarinnar kominn til framkvæmda. Tengt efni Háskólinn og heimsmarkmiðin facebooklinkedintwitter