Skip to main content

Uppbyggingasjóður EES

Uppbyggingasjóður EES /EEA Grants (áður Þróunarsjóður EFTA) var stofnaður í þeim tilgangi að jafna efnahagslegan og félagslegan mismun á evrópska efnahagssvæðinu. EFTA ríkin Ísland, Noregur og Lichtenstein eru þau ríki sem veita fé í sjóðinn (donor states).Háskólar og rannsóknastofnanir í styrkþega löndunum þurfa alltaf að vera í forsvari fyrir umsókn í sjóðinn. 

Aðilar í Háskóla Íslands sem hafa áhuga á samstarfi við til dæmis háskóla í einhverjum af þessum löndum, ættu að hafa samband við viðkomandi háskóla um hugsanlegt samstarf og vera með í umsóknarferlinu til þess að geta notið góðs af samstarfi.

Um getur verið að ræða:

  • rannsóknasamstarf
  • skipti á stúdentum
  • kennaraskipti
  • ráðstefnur eða annað

Dæmi um samstarf sem Háskóli Íslands tekur þátt í:

FLOW - Samstarf milli Iuliu Hatieganu University of Medicine and Pharmacy, University of Agricultural Sciences and Veterinary Medicine (UASVM) í Rúmeníu, Háskóla Íslands og Oslóarháskóla

AURORA - Samstarf milli Iuliu Hatieganu University of Medicine and Pharmacy í Rúmeníu, Háskóla Íslands og Oslóarháskóla

Gagnagrunnur fyrir leit að samstarfsaðilum

Utanríkisráðuneytið hefur komið á fót gagnagrunni fyrir þá sem hafa áhuga á mögulegum samstarfsverkefnum í gegnum Uppbyggingarsjóðinn. Áhugasamir geta skráð upplýsingar um mögulegar verkefnahugmyndir í grunninn og er þeim upplýsingum miðlað til styrkþegalandanna (beneficiary states). 

Nánari upplýsingar og skráningarform á vef Utanríkisráðuneytisins

Aðalumsjónaraðili Uppbyggingasjóðsins á Íslandi er Rannís.

Ríki sem eiga rétt á styrkjum úr sjóðnum 

Þau ríki sem eiga rétt á styrkjum úr sjóðnum (beneficiary states) eru þau ríki sem gengu í Evrópusambandið árið 2004 þ.e. Eistland, Lettland, Litháen, Pólland, Tékkland, Slóvenía, Slóvakía, Ungverjaland, Kýpur og Malta.

Rúmenía og Búlgaría sem gengu í Evrópusambandið 2007 og einnig Portúgal, Spánn og Grikkland, eiga einnig rétt á styrkjum.