Skip to main content

Samstarf við Lagadeild

Samstarf við Lagadeild - á vefsíðu Háskóla Íslands

Lagadeildin á í margskonar samstarfi við ýmsa aðila, bæði innanlands og erlendis. Tengsl við atvinnulífið eru góð og vinna fjölmörg fyrirtæki og stofnanir með deildinni. Samstarf Háskólans annars vegar og fyrirtækja og opinberra aðila hins vegar skilar starfsmönnum og nemendum skólans miklu.

Öflug samvinna er atvinnulífinu ekki síður mikilvæg en skólanum þar sem Háskólinn hefur verið driffjöður íslensks atvinnulífs og gegnir enn lykilhlutverki í því að gera Ísland samkeppnishæft á alþjóðavettvangi.