Við Háskóla Íslands er hægt að velja 180 eininga grunnnám sem lýkur með bakkalárgráðu. Í sumum greinum er hægt að skipta þessu námi upp í 120 eininga aðalgrein og 60 eininga aukagrein í annarri námsgrein.
Hvernig virka aðalgreinar og aukagreinar?
Aðalgreinin er 120 einingar og aukagreinin er 60 einingar. Ef þú hefur til dæmis áhuga á að fara bæði í heimspeki og viðskiptafræði þá getur þú valið hvort þú vilt taka 120 einingar í heimspeki eða í viðskiptafræði. Önnur greinin verður aðalgrein og hin verður aukagrein.
Athugaðu að það eru ekki allar aðalgreinar sem geta verið aukagreinar og heldur ekki allar aukagreinar sem geta verið aðalgreinar.
- Hér sérðu lista yfir allar aðalgreinar í grunnnámi.
- Hér sérðu lista yfir allar aukagreinar í grunnnámi.
Mundu að ráðfæra þig við deildina sem aðalgreinin er í þegar þú hefur valið aukagreinina og fá hana samþykkta. Aukagrein þarf ekki að velja fyrr en eftir fyrsta ár í námi.
Hvernig sæki ég um ef ég vil skrá mig í aðalgrein og aukagrein?
Ef þú vilt skipta náminu upp með þessum hætti þá þarftu fyrst að sækja um aðalgrein 120 einingar. Það gerir þú í umsóknargáttinni í Uglu.
Hvenær er aukagrein valin?
Þú getur valið aukagrein eftir að nám er hafið í aðalgrein. Oftast er aukagrein valin eftir fyrsta háskólaárið í aðalgreininni.
Almennt eru skilgreindar aukagreinar í kennsluskrá HÍ viðurkenndar af öllum deildum skólans sem bjóða upp á aðalgrein í grunnnámi til 120 eininga.
Þegar þú ert búin að velja þér aukagrein er ráðlagt að vera í sambandi við deild aðalgreinar til að fullvissa þig um að aukagreinin sé samþykkt með þinni aðalgrein. Fyrirvarinn fyrir því að aukagrein fáist ekki samþykkt getur verið að námskeið í aðal- og aukagreinum mega ekki vera þau sömu eða mjög sambærileg. Ef það á við þarftu að hafa samband við nemendaþjónustu þinnar deildar til fá leiðbeiningar um samsetningu námsins.
Hvernig skrái ég mig í aukagrein?
Til að fá aukagrein skráða á bakkalárnámsferil þinn þarftu að senda beiðni um það með tölvupósti úr HÍ netfanginu þínu á nemskra@hi.is. Mundu að setja kennitölu þína með í tölvupóstinn.
Hvernig verður prófskírteinið?
Á prófskírteinið er áritað að þú hafir lokið bakkalárgráðu í aðalgrein. Upplýsingar um aukagrein koma fram á námsferilsyfirlitinu og skírteinisviðaukanum sem fylgir með prófskírteininu.
Prófið er jafngilt öðru háskólaprófi sem lýkur með 180 eininga bakkalárgráðu af einni námsleið og veitir aðgang að fjölbreyttu framhaldsnámi í fjölmörgum námsgreinum.
Hvað er ég hætti við?
Ef þú hefur skráð þig í aðalgrein 120 einingar en vilt halda áfram á námsleiðinni og klára 180 einingar þá getur þú breytt skráningunni í 180 eininga nám. Þú sendir beiðni um það með tölvupósti úr HÍ netfanginu þínu á nemskra@hi.is.
Nemendur sem sóttu um 180 eininga nám í einni námsgrein en vilja skipta náminu upp og taka aðalgrein og aukagrein geta breytt skráningu sinni með sama hætti.