Skip to main content

Umsóknarferli í framhaldsnám - Læknadeild

Umsóknarfrestur í framhaldsnám við Læknadeild er 15. apríl fyrir innritun á haustmisseri en 15. október fyrir innritun á vormisseri, þar sem við á. Tekið er við umsóknum um doktorsnám utan þessa tíma.

Umsækjandi þarf að senda inn rafræna umsókn um framhaldsnám. Í sumum tilfellum þarf einnig að skila inn fylgigögnum með umsókn (.pdf skrá) og staðfestu afriti af frumgögnum. Öllum fylgiskjölum sem kunna að vera á pappír skal skilað til nemendaskrár, Háskólatorgi, 3. hæð.

Sjá nánari upplýsingar um inntökuskilyrði og umsóknarferli hverrar námslínu fyrir sig hér fyrir neðan.