Skip to main content

Rafrænn námssamningur vegna lengri dvala - Leiðbeiningar

Online Learning Agreement – OLA 

Námssamningur er samningur milli nemanda, Háskóla Íslands og gestaskóla skiptináms um mat á námi og þátttöku í skiptinámi. Allir nemendur á leið í skiptinám á vegum Erasmus+ þurfa að gera OLA námssamning og skila honum inn til Alþjóðasviðs fyrir upphaf skiptináms. 

Nemendur gera aðeins einn samning fyrir skiptinámsdvölina og því er mikilvægt að fylla hann rétt út. 

Aðgangur
Nemendur skrá sig inn í OLA-kerfið og nota til þess HÍ-netfangið sitt (xxx@hi.is). Ekki er heimilt að nota „Log in with Google“ eða önnur persónuleg netföng 

Reglur um námskeiðaval 

  • Nemendur kanna námskeiðaval hjá gestaskóla og bera þá áfanga sem áhugi er fyrir undir alþjóðatengilið hjá deild, þar sem námskeiðslýsing kemur fram. Til þess að fá skiptinám metið þurfa nemendur að velja áfanga sem fást annað hvort metnir í stað skyldunámskeiða eða valnámskeiða. 
  • Nemendur verða að vera skráðir í 30 ECTS á misseri – 60 ECTS á ári nema þeir hafi fengið sérstaka undanþágu. Sjá skilyrði fyrir skiptinámi
  • Mjög mikilvægt er að námssamningurinn sé réttur og að hann sé alltaf uppfærður ef námskeiðaval breytist. Það flýtir fyrir námsmati við lok dvalar og tryggir að skiptinámið verði metið við heimkomu. 

Nemendur fylla inn persónuupplýsingar og upplýsingar um sitt nám og geta breytt því undir MY ACCOUNT. OLA námssamninginn og stöðu samningsins má alltaf finna undir MY LEARNING AGREEMENT.