
Hjá tölvuþjónustu Upplýsingatæknisviðs Háskóla Íslands má leita upplýsinga um úrlausnir á tölvutengdum vandamálum.
Staðsetning: Háskólatorgi, 1. hæð
Sími: 525-4222
Netfang: help@hi.is
Vefur: uts.hi.is
Vinsamlegast hringdu í síma 525 4222 eða notaðu netspjallið ef þú þarft aðstoð við tölvutengd vandamál. Einnig er hægt að senda inn fyrirspurnir og athugasemdir á hjalp.hi.is
Upplýsingatæknisvið hjálpar meðal annars til við:
- Notendanöfn og lykilorð nemenda.
- Tengingu við þráðlaust net - eduroam.
- Tölvupóst.
- Upplýsingar um prentun.
- Frjáls, opinn og frían hugbúnað.
Vefur Upplýsingatæknisviðs hefur að geyma yfirlit yfir þá þjónustu sem er í boði og leiðbeiningar um hvernig hægt er að nýta sér þá þjónustu.
Nemendum er bent á að Þjónustuborðið á Háskólatorgi sér meðal annars um:
- Sölu á prentkvóta.
- Úthlutun á veflyklum.
- Afhendingu stúdentakorta.