Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskóla Íslands á Hólum heldur tvær meistaravarnir í Sjávar- og vatnalíffræði dagana 23. og 24. nóvember. Þar munu Krystal Galloway og Michael Arthur Galloway verja meistararitgerðir sínar sem fjalla báðar um atferli bleikju og áhrif umhverfisþátta á hana.
Nemendur við Fiskeldis- og fiskalíffræðideild HÍ á Hólum fengu að tengja saman fræði og framkvæmd í verklegri námslotu um æxlun fiska. Þau skoðuðu þroskastig laxahrogna, tóku þátt í frjóvgun bleikjuhrogna, krufðu fiska og kynntust merkingum seiða.
Háskóli Íslands hefur skilgreint hinsegin fánadaga og mun framvegis flagga sex sinnum á ári af slíku tilefni við Aðalbyggingu skólans. Með þessu vill Háskólinn undirstrika mikilvægi mannréttinda og sýna samstöðu með baráttu hinsegin fólks.
Um 220 nemendur úr þrettán framhaldsskólum víðs vegar af landinu taka þátt í Samsýningu framhaldsskólanna sem verður haldin dagana 27. nóvember til 3. desember á Sögu, nýju húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, við Hagatorg. Formleg sýningaropnun fer fram föstudaginn 27. nóvember kl. 13:00 - 14:00.
Út er komnar tvær bækur sem marka lok Oddarannsóknarinnar sem staðið hefur síðan 2020.
Háskóli Íslands hefur ákveðið að opna á ný fyrir umsóknir um nám í afmörkuðum fjölda námsleiða á framhaldsstigi á vormisseri 2027.
Fjórir fulltrúar Hestafræðideildar HÍ á Hólum tóku þátt í alþjóðlegu ICEEP-ráðstefnunni í Tokyo í Japan. Þar kynntu þau rannsóknir á íslenska hestinum, meðal annars á sviði þjálfunar, keppnisárangurs og lífeðlisfræði.
Jón Atli Benediktsson, prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði og fyrrverandi rektor Háskóla Íslands, er tíunda árið í röð á árlegum lista greiningarfyrirtækisins Clarivate Analytics yfir áhrifamestu vísindamenn heims.
Félagið Gefum íslensku séns hlaut sérstaka viðurkenningu á hátíðarsamkomu í Eddu á degi íslenskrar tungu fyrir stuðning við íslenskuna.
Árleg Spekigleði GPMLS haldin á Hólmsvelli í Reykjanesbæ