Háskóli Íslands starfar í fjölmörgum byggingum í Vatnsmýri og Vesturbæ Reykjavíkur. Samtals er húsnæði skólans 73.000 fermetrar.
Í flestum byggingum er góð les- og hópavinnuaðstaða. Auk þess er fjölda tölvuvera að finna víða um svæðið.
Byggingar Háskóla Íslands eru almennt opnar frá ágúst til júní, nema um jól og páska, eins og að neðan greinir.
Ef um skipulagða dagskrá er að ræða (kennslu/ráðstefnur/fundi) utan við almennan opnunartíma er tekið tillit til þess.
Stjörnumerktar byggingar (*) eru opnar með aðgangskorti stúdenta alla daga frá 7:30-0:00.