Vefstjóri Háskóla Íslands er: Anna María Einarsdóttir, netfang amen@hi.is, sími 831-0588. Vefritstjóri HÍ: Björn Gíslason Netfang: bgisla@hi.is, sími: 525-5404 Ritstjóri innri vefs og ensks vefs, english.hi.is: Bryndís E. Jóhannsdóttir Netfang: bryndjo@hi.is, sími; 525-4214 Hugmyndabanki vefmálaAlmennar athugasemdir varðandi vefmál Vefstjórar fræðasviða HÍ Félagsvísindasvið: Þórarinn Hjálmarsson, thh@hi.is Heilbrigðisvísindasvið: Katrín Björg Jónasdótir, kbj@hi.is Hugvísindasvið: Guðmundur Hörður Guðmundsson, ghg@hi.is Menntavísindasvið: Ingunn Eyþórsdóttir, ingunney@hi.is Verkfræði- og náttúruvísindasvið: Davíð Fjölnir Ármannsson, davidfa@hi.is Vefstefna Háskóla Íslands Heildarvefstefna Háskóla Íslands miðar að því að flytja eins stóran hluta og unnt er af þjónustu sem veitt er innan skólans yfir á rafrænt form. Vefurinn endurspeglar lifandi og kröftugt starf Háskóla Íslands, hvort sem um er að ræða nám, félagslíf eða hvers kyns viðburði sem gæða Háskólann lífi. Vefsetri Háskóla Íslands er ætlað að veita skýra og greinargóða yfirsýn yfir starfsemi hans á öllum sviðum. Á vefnum er yfirlit yfir nám, svið, deildir, stofnanir og stjórnsýslu Háskólans, auk þess sem fréttir og tilkynningar um málþing, opna fyrirlestra og þess háttar eru á forsíðunni. Leiðakerfi vefsins Leiðakerfi vefsins samanstendur af öllum þeim síðum sem þar er að finna. Aðalflokkarnir eru þeir sem sjáanlegir eru á forsíðu en síðan greinist vefurinn niður. Ef notendur eru ekki vissir um hvar það efni sem þeir leita að er oft fljótlegra að nota leitarvélina. Leit á vef HÍ Í leitarvélina er hægt að slá inn það leitarorð sem notandi telur líklegt að leiði hann á það efni sem leitað er að. Leitarniðurstöður birtast þá á miðsvæðinu á vefnum. Ef þú leitar starfsmanns er best að nota starfsmannaleitina. Til að finna fræðimenn á tilteknu sviði má nota fræðimannaleitina. Fréttir Í fréttadálknum á forsíðu vefsins eru fluttar fréttir af starfsemi Háskólans í víðum skilningi. Þær nýjustu eru á forsíðunni hverju sinni en allar fréttir er hægt að nálgast með því að smella á hnappinn Fréttasafn neðst í fréttadálknum. Ef þú ert með tillögu að fréttaefni fyrir vef HÍ má hafa samband við Björn Gíslason. Viðburðir HÍ stendur daglega fyrir fjölda viðburða sem eru öllum opnir, s.s. málþingum, fyrirlestrum og ráðstefnum. Viðburði hvers dags er að finna á forsíðunni en hægt er að skoða bæði fram og aftur í tímann með því að fara á yfirlitssíðu. Hér má lesa nánari leiðbeiningar og reglur um viðburðaskráningu. Prenta út efni Mörgum finnst þægilegra að prenta út langt lesmál og lesa það á pappír. Það er einfaldlega gert með venjulegri prentskipun. Þá prentast sjálfur textinn út á skýru letri ásamt merki skólans og upplýsingum um hann. Þeir sem vilja skoða síðuna áður en þeir prenta hana út geta farið í „File - Print preview" og séð hana þannig. Vinsamlegast sendið fyrirspurnir og ábendingar til vefstjóra á netfangið vefstjori@hi.is. Tengt efni Öryggi og persónuvernd á vef Háskóla Íslands Um ábyrgð á tölvupósti emailfacebooklinkedintwitter
Þarfnast þessi síða lagfæringar? Var efnið hjálplegt? Var efnið hjálplegt? * Já Nei Endilega láttu okkur vita hvað má betur fara * Viltu fá svar frá okkur? Viltu fá svar frá okkur? Netfang * Svo hægt sé að hafa samband við þig. Skjáskot Settu inn skjáskot hér ef þú telur þörf á.Skrár verða að vera minni en 2 MB.Leyfðar skráartegundir: gif jpg jpeg png. CAPTCHASía fyrir ruslpóst Hvaða stafir eru á myndinni? * Skrifaðu stafina sem sjást á myndinni.