Augnlæknisfræði Forstöðumaður: Gunnar Már Zoega Fræðasvið augnlæknisfræði við Læknadeild er Hjarta-, augn- og krabbameinsþjónustu Landspítala og sinnir rannsóknum og kennslu á sviði augnlækninga. Kennsla í augnsjúkdómafræði fer fram á 5. ári í læknisfræði og samanstendur námskeiðið af einni fyrirlestraviku og einni viku á Augndeild Landspítala, þar sem nemendur fá að kynnast fjölbreyttri starfseminni. Markmið námskeiðsins er að nemendur læri grunnatriði augnlæknisfræði þannig að þeir séu færir um að takast á við einföld augnvandamál og að meta hvenær skal senda sjúkling áfram til sérfræðings. Áhugasamir unglæknar geta síðan undirbúið sérnám í faginu með starfi og námi á deildinni. Augað er flókið líffæri og starfsemi þess getur truflast á ýmsan hátt. Augnsjúkdómar geta bæði verið tiltölulega einangraðir við augað, eins og t.d. þegar ský kemur á augastein eða hrörnun verður í augnbotnum. Augnvandræði geta einnig verið hluti af stærri sjúkdómi, eins og t.d. þegar sykursýki veldur sjónhimnusjúkdómi eða gigtsjúkdómur veldur svæsnum augnþurrki. Þótt augað sé lítið er fræðigreinin fjölbreytt og tengist ýmsum öðrum sviðum læknisfræði. Ýmiss konar lyfjameðferð og skurðlækningum er beitt á augað og mikið er um háþróuð tæki eins og lasertæki og sérhæfðar myndavélar. Öflugar rannsóknir eru stundaðar á fræðasviðinu og má þar nefna umfangsmiklar rannsóknir á lífeðlisfræði, lyfjafræði, faraldsfræði og erfðafræði augnsjúkdóma. Dæmi um undirsérgreinar: Hornhimna og ytra byrði augans Gláka Tauga-augnlæknisfræði Meinafræði augans Lýtalækningar augans og augnumgjarðar Barnaaugnlækningar Sjónhimnulækningar Aðrir fastir starfsmenn: Ólöf Birna Ólafsdóttir Sveinn Hákon Harðarson María Soffía Gottfreðsdóttir Gauti Jóhannesson Jóhann Ragnar Guðmundsson Barnalæknisfræði Forstöðumaður: Ásgeir Haraldsson Fræðasvið barnalæknisfræði við Læknadeild er tengt Barnaspítala Hringsins, Landspítala - Háskólasjúkrahúsi og sinnir rannsóknum og kennslu í barnalækningum. Kennsla í barnalækninum fer fram á 5. ári í læknisfræði og er námið bæði bóklegt og verklegt. Námið fer fram á Barnaspítala Hringsins. Markmið námsins er að læknanemar fái staðgóða þekkingu í barnalæknisfræði. Verklega námið miðast við að læknanemar fái góða reynslu í að skoða, umgangast og sjúkdómsgreina veik börn og gera tillögur um rannsóknir og meðferð. Námskeiðið er átta vikur. Kennarar eru flestir barnalæknar Barnaspítalans auk annarra barnalækna utan háskólasjúkrahússins. Vísindarannsóknir fræðasviðsins eru af ýmsum toga, þ.m.t. doktorsverkefni. Stór hluti rannsóknanna fjallar um árangur meðferðar á Barnaspítalanum auk tengdra klínískra atriða. Rannsóknir eru greiddar af ýmsum aðilum. Fræðasvið barnalækninga við Háskóla Íslands er í innlendu og erlendu samstarfi í rannsóknum. Fræðigreinar sem tilheyra fræðasviðinu: Barnalæknisfræði, forsvarsmaður: Ásgeir Haraldsson Aðrir fastir starfsmenn: Ragnar Grímur Bjarnason Viðar Örn Eðvarðsson Valtýr Stefánsson Thors Helga Elídóttir Kristján Óskarsson Ólafur Gísli Jónsson Á Barnaspítala Hringsins starfa og kenna barnalæknar í flestum undirsérgreinum barnalækninga. Hjúkrunarfræðingar og annað starfsfólk Barnaspítala Hringsins taka þátt í kennslunni. Bráðalæknisfræði Forsvarsmaður: Hjalti Már Björnsson Fræðasvið bráðalæknisfræði við Læknadeild er tengt bráðamóttöku LSH og sinnir rannsóknum og kennslu í bráðalækningum. Bráðalæknisfræði fjallar um alla fyrstu greiningu og meðferð bráðra vandamála, slysa og veikinda. Kennsla í bráðalækningum fer fram á mörgum árum í læknisfræði og er bæði bókleg og verkleg. Í byrjun 1. árs fá læknanemar fræðslu um skyndihjálp, í samstarfi við Rauða Kross Íslands og Bjargráð, þar sem farið er að hluta í gegnum forsendur ráðlegginga til almennings um skyndihjálp. Á 4. ári er veitt kennsla í grunnatriðum öndunarvegar, inngangur að bráðaómskoðun ásamt mörgu öðru færnibúðum í upphafi námsársins sem og á vikulöngu verknámi í bráðalækningum. Þá er einnig kennt námskeið í grunnatriðum greiningar og meðferðar vegna fjöláverka. Megin kennsla í bráðalækningum fer síðan fram á 6. ári þar sem læknanemar sitja námskeið í sérhæfðri endurlífgun og öndunarvegameðferð, fá sérstaka kennslu í hermisetri í erfiðum tilfellum og þjálfun í bráðaómskoðun. Þá er fræðsludagur um ofbeldi hluti námskeiðs á 6. ári auk þess sem læknanemar taka tvær vikur í verknámi á bráðamóttöku. Á verknámstíma fara læknanemar einnig í útköll með sjúkrabílum og kynnast starfsemi Neyðarlínu. Bráðalæknar starfa að mestu leyti á bráðamóttökum sjúkrahúsa, auk þess að starfa við bráðaþjónustu utan sjúkrahúsa. Stafsemi bráðalækninga á Íslandi fer að mestu leyti fram á bráðamóttöku LSH í Fossvogi. Einnig er unnið að uppbyggingu bráðalækninga á Sjúkrahúsi Akureyrar, Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Á bráðamóttöku LSH er sinnt u.þ.b. 70.000 sjúklingum á ári og er starfseminni skipt í nokkrar einingar eftir bráðleika vandamáls þeirra sem til deildarinnar leita. Undirsérgreinar: Bráðalækningar utan sjúkrahúsa Bráðalækningar barna Klínísk eitrunarfræði Í tengslum við fræðasviðið er starfrækt rannsóknarstofa í bráðafræðum. Helstu áherslur rannsókna á fræðasviðinu eru: Árangur endurlífgunartilrauna utan sjúkrahúsa Greining bráðra vandamála á bráðamóttöku Eðli, og orsakir áverka og afdrif áverkasjúklinga Aðrir fastir starfsmenn: Curtis Pendleton Snook Bæklunarskurðlæknisfræði Forstöðumaður: Halldór Jónsson Fræðasvið bæklunarskurðlæknisfræði við Læknadeild er tengt skurðlæknissviði LSH og sinnir rannsóknum og kennslu í bæklunarskurðlækningum. Kennsla í bæklunarskurðlækningum fer fram á 4. ári í læknisfræði og er bæði bókleg og verkleg. Fræðin snúast almennt um greiningu og meðferð áverka og sjúkdóma sem tengjast stoðkerfinu. Sérstakar undirgreinar eru: hjá börnum: meðfæddir sjúkdómar, þ.m.t. hryggskekkja og áverkar; hjá fullorðnum: sjúkdómar og áverkar á útlimi, hryggsúlu og mjaðmagrind, gerviliðir í axlir, mjaðmir og hné og handaskurðlækningar. Í fyrirlestrum er lögð áhersla á algengi, orsök, greiningu og meðferð. Í verknámi er lögð sérstök áhersla á skoðun, skurðmeðferð og vandamál sem geta komið upp á eftir aðgerðir. Rannsóknir beinast að faraldsfræði sjúkdóma, áverka og árangri aðgerða. Aðrir fastir starfsmenn: Ólöf Sara Árnadóttir Ásgeir Guðnason Benedikt Árni Jónsson Jóhann Róbertsson Ólafur Sigmundsson Sigurveig Pétursdóttir Yngvi Ólafsson Vefsíða HÍ um Bæklunarskurðlækningar Endurhæfingarlæknisfræði Forstöðumaður: Karl Kristjánsson Fræðasvið endurhæfingarlækningar við Læknadeild er tengt Grensásdeild LSH og Reykjalundi og sinnir rannsóknum og kennslu í endurhæfingarlækningum. Kennsla í endurhæfingarlækningum fer fram á 6. ári og er bæði bókleg og verkleg. Endurhæfingarmeðferð einstaklinga með færniskerðingu eða fötlun vegna sjúkdóma eða eftir slys, hefur að markmiði að hámarka getu og færni og stuðla þannig að aukinni virkni, þátttöku í samfélaginu og lífsgæðum. Endurhæfingin getur einnig snúist um að hjálpa fólki að aðlagast og læra að lifa með undirliggjandi sjúkdóma eða fötlun. Í kennslunni á Grensási er aðaláherslan á endurhæfingarmeðferð eftir mænuskaða og heilaáverka. Á Reykjalundi er kynning á hjarta- og lungnaendurhæfingu og endurhæfingu einstaklinga með langvarandi verki. Rannsóknir beinast aðallega að faraldursfræði sjúkdóma og árangursmati meðferða. Fræðigreinar sem tilheyra fræðasviðinu: Læknisfræðilegar endurhæfingar, forsvarsmaður: Karl Kristjánsson Sjúkraþjálfun Aðrir starfsmenn: Páll E. Ingvarsson Anna Lilja Gísladóttir Fæðinga- og kvensjúkdómafræði Forstöðumaður: Jóhanna Gunnarsdóttir Fræðasvið fæðinga- og kvensjúkdómafræði við Læknadeild er tengt kvennasviði LSH og sinnir rannsóknum og kennslu í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum. Kennslan í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum fer fram á 5. ári í læknisfræði og er bæði bókleg og verkleg. Markmið námskeiðsins er að læknanemar fái innsýn í eðlilega meðgöngu og fæðingu og öðlist nægilega hæfni í greiningu og meðferð kvensjúkdóma og meðgöngusjúkdóma til að geta sinnt starfi almenns læknis á kvennadeild, bráðadeild eða heilsugæslu. Starfsmenn sviðsins eru virkir í rannsóknum og leiðbeina grunn- og framhaldsnemendum í rannsóknarnámi. Í tengslum við fræðasviðið er starfrækt Rannsóknarstofa í fæðinga-, kvenna, barna- og fjölskyldufræðum (RKB). Undirsérgreinar: Fósturgreining og meðgöngusjúkdómar Frjósemislækningar og innkirtlalækningar kvenna Krabbameinslækningar kvenna Þvagfæraskurðlækningar kvenna Aðrir fastir starfsmenn: Ragnheiður I Bjarnadóttir Snorri Einarsson Aðrir stundakennarar eru læknar kvennadeildar LSH ásamt ljósmæðrum. Geðlæknisfræði Forstöðumaður: Engilbert Sigurðsson Fræðasvið geðlæknisfræði við Læknadeild er tengt geðsviði Landspítala og sinnir rannsóknum og kennslu í geðlækningum. Kennslan fer fram á 5. ári í læknisfræði. Helstu markmið námsins eru: Að fræðast um helstu geðraskanir og taugaþroskaraskanir, algengi, áhættuþætti, meingerð, sjúkdómsgang, greiningu, meðferð, endurhæfingu og horfur Öðlast grunnfærni í að ræða við sjúklinga og aðstandendur og skilja áhrif geðraskana á líf þeirra Fræðast um meðferðir, úrræði og sjálfshjálparleiðir Að neminn geti eftir námskeiðið gert geðskoðun, greint helstu geðraskanir og sinnt meðferð á þeim algengari svo sem þunglyndi og kvíðaröskunum og greint alvarlegri veikindi svo með geðrof og örlyndi Verið fær um að hefja meðferð, vísa sjúklingum áfram til frekara mats og meðferðar Að skilja hvernig vímugjafar geta breytt geðhag heilbrigðra og geðsjúkra og að forsenda árangurs ef vímuvandi og geðröskun er til staðar er að ná tökum á vímuvandanum sem fyrst Að þekkja áhugahvetjandi samtal til að greina á hvaða stigi einstaklingur er á sviði áhugahvatar og vilja til breytinga á lífsháttum/neyslu Að auka skilning læknanema á sjálfum sér og öðrum, tilfinningum, skynjun, hugsun, viðbrögðum og varnarháttum persónuleikans og hvaða áhrif áföll, álag og veikindi geta haft á ofangreinda þætti Að átta sig á mikilvægi góðrar samskiptahæfni sem lið í fagmennsku fyrir lækna Fræðigreinar sem tilheyra fræðasviðinu: Almenn geðlæknisfræði, forsvarsmaður: Engilbert Sigurðsson Sálarfræði, forsvarsmaður: Berglind Guðmundsdóttir Barna- og unglingageðlæknisfræði, forsvarsmaður: Bertrand Andre Marc Lauth Aðrir fastir starfsmenn: Magnús Haraldsson Halldóra Jónsdóttir Guðrún Dóra Bjarnadóttir Oddur Ingimarsson Jafnframt koma þrír fastir stundakennarar að kennslu: Bjarni Össurarson, Björn Hjálmarsson og Ísafold Helgadóttir Einnig koma allir læknar geðþjónustunnar að kennslu í verknáminu auk þess sem fagaðilar úr fleiri fagstéttum (sálfræðingar, félagsráðgjafar og hjúkrunarfræðingar) halda erindi og koma að einstökum þáttum verknáms. Heimilislæknisfræði Forstöðumaður: Emil Lárus Sigurðsson Fræðasvið heimilislæknisfræði við Læknadeild er tengt heilsugæslunni og sinnir rannsóknum og kennslu á sviði heimilislækninga. Kennsla í heimilislækningum fer fram á 6. ári og er bæði bókleg og verkleg. Bókleg kennsla fer fram í eina viku sem kennd er bæði á vor og haustönn. Í þeirri kennslu eru fyrirlestrar en megin áherslan lögð á kennslu sem fer fram í umræðuhópum. Þar eru tekin fyrir algeng og mikilvæg viðfangsefni heimilislækna. Aðalþættir fræðilega hlutans beinast að læknisfræðilegri kunnáttu og viðhorfum. Kunnáttan getur til dæmis verið fólgin í því að læra að afla sér og nýta nýjustu þekkingu í meðferð á háþrýstingi eða þvagfærasýkingu. Síðarnefnda markmiðið, viðhorfin, skiptir þó sköpum fyrir heimilislækningar. Hér er t.d. átt við að læknaneminn stefni að því að verða sérfræðingur í einstaklingnum sjálfum, en ekki líffærum eða ákveðnu aldursskeiði, að læknirinn noti tímann sem tæki til greiningar vandamála og öðlist heildarsýn á einstaklingnum sem félagsveru, hluta af fjölskyldu, samfélagi og umhverfi. Verkleg kennsla skiptist í 3 vikur í þéttbýli og 1 vika í dreifbýli, alls fjórar vikur. Fjallað er um algengustu heilsufarsvandamál og önnur viðfangsefni heilsugæslunnar og vinnuaðferðir. Kennd eru undirstöðuatriði klíniskrar skoðunar, vandaliðuð sjúkrasaga, klínisk færni og viðhorf við greiningu og vandalausn, heilsuverndarstarf og teymisvinna. Læknanemar tala við og skoða sjúklinga og setja fram greiningu og áætlun um meðferð. Þeir taka þátt í heilsuverndarstarfi, s.s. skólaskoðunum, mæðravernd og ungbarnaeftirliti með læknum og hjúkrunarfræðingum eftir því sem kostur er. Fræðigreinar sem tilheyra fræðasviðinu: Heimilislæknisfræði, forsvarsmaður: Emil Lárus Sigurðsson Aðrir fastir starfsmenn: Hannes Hrafnkelsson Margrét Ólafía Tómasdóttir Nanna Rún Sigurðardóttir Pétur Heimisson Unnur Þóra Högnadóttir Lífeðlisfræði/eðlisfræði Forstöðumaður: Sveinn Hákon Harðarson Fræðasvið lífeðlisfræði/eðlisfræði við Læknadeild er tengt Lífeðlisfræðistofnun HÍ og klínísku þjónustusviði LSH og sinnir rannsóknum og kennslu á sviði lífeðlisfræði/eðlisfræði. Lífeðlisfræðistofnun Háskóla Íslands er vettvangur rannsókna- og þróunarstarfs á fræðasviðum lífeðlisfræði. Stofnunin heyrir undir Læknadeild en veitir öllum fastráðnum kennurum HÍ í lífeðlisfræði rannsóknaraðstöðu, hvar í deild sem þeir eiga heima. Einnig veitir hún vísindamönnum á öðrum fræðasviðum aðstöðu eftir því sem aðstæður leyfa og efni standa til. Sérfræðingar stofnunarinnar vinna að fjölmörgum rannsóknarverkefnum varðandi lífeðlisfræði manna, spendýra, fugla og fiska. Starfsmenn stofnunarinnar hafa birt fjölda vísindagreina í ritrýndum tímaritum, bókum, ráðstefnuritum og víðar. Sérfræðingar stofnunarinnar annast alla kennslu í lífeðlisfræði við HÍ. Kennslan er þó formlega undir stjórn hverrar deildar fyrir sig. Kennsla í læknisfræðilegri eðlisfræði er einnig á verksviði Lífeðlisfræðistofnunar. Hlutverk stofnunarinnar er fjölþætt: Rannsóknir í lífeðlisfræði Eflir tengsl rannsókna og lífeðlisfræðikennslu Leggur til aðstöðu til verklegrar kennslu í lífeðlisfræði Styður við kennslu og þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum Stuðlar að samstarfi við innlenda og erlenda rannsóknaraðila Þjónusturannsóknir Gefur út og kynnir niðurstöður rannsókna Veitir upplýsingar og ráðgjöf Gengst fyrir ráðstefnum, námskeiðum og fyrirlestrum Fræðigreinar sem tilheyra fræðasviðinu: Lífeðlisfræði, forsvarsmaður: Þór Eysteinsson Læknisfræðileg eðlisfræði, forsvarsmaður: Þór Eysteinsson Aðrir fastir starfsmenn: Sjá Lífeðlisfræðistofnun Kennslustjóri: Sunna Björg Skarphéðinsdóttir Lífefna- og sameindalíffræði Forstöðumaður: Jón Jóhannes Jónsson Fræðasvið lífefna- og sameindalíffræði við Læknadeild er tengt erfða- og sameindalæknisfræðideild og klínískri lífefnafræðideild LSH og sinnir rannsóknum og kennslu í lífefnafræði, sameindalíffræði og erfðafræði auk þess að reka Lífefna- og sameindalíffræðistofu. Fræðigreinar sem tilheyra fræðasviðinu: Lífefnafræði, forsvarsmaður: Jón Jóhannes Jónsson Meinefnafræði, forsvarsmaður: Jón Jóhannes Jónsson Sameindalíffræði, forsvarsmaður: Eiríkur Steingrímsson Erfðalæknisfræði, forsvarsmaður: Reynir Arngrímsson Aðrir fastir starfsmenn: Hans Tómas Björnsson Ingibjörg Harðardóttir Stefán Þórarinn Sigurðsson Óttar Rolfsson Linda Viðarsdóttir Líffærafræði Forstöðumaður: Þórarinn Guðjónsson Fræðasvið líffærafræði við Læknadeild sinnir rannsóknum og kennslu í frumulífræði, fósturfræði, vefjafræði, taugalíffræði og almennri líffærafræði sem hagnýtri notkun þessara fræðigreina í læknisfræði og öðrum heilbrigðisvísindum. Fræðasvið líffærafræði er hluti af lífvísindasetri háskóla Íslands þar sem grunnrannsóknir fræðasviðsins fara fram. Mikil rannsóknavirkni er á fræðasviðinu og fjöldi meistara- og doktorsnema eru í námi við fræðasviðið. Fræðigreinar sem tilheyra fræðasviðinu Almenn líffærafræði, forsvarsmaður: Hannes Petersen Fósturfræði, forsvarsmaður: Erna Magnúsdóttir Frumulíffræði, forsvarsmenn: Guðrún Valdimarsdóttir & Margrét Helga Ögmundsdóttir Taugalíffærafræði, forsvarsmaður: Pétur Henry Petersen Vefjafræði, forsvarsmaður: Þórarinn Guðjónsson Lyfja- og eiturefnafræði Forstöðumaður: Magnús Karl Magnússon Fræðasvið lyfja- og eiturefnafræði við Læknadeild er tengt Lyfjafræðistofnun HÍ og lyflækningasviði LSH og sinnir rannsóknum og kennslu á sviði lyfja- og eiturefnafræði. Vefur Rannsóknarstofu í Lyfja- og eiturefnafræði Fræðigreinar sem tilheyra fræðasviðinu: Lyfjafræði, forsvarsmaður: Magnús K. Magnússon Eiturefnafræði, forsvarsmaður: Kristín Ólafsdóttir Aðrir fastir starfsmenn: Bjarni Sigurðsson Lyflæknisfræði Forstöðumaður: Einar Stefán Björnsson Fræðasvið lyflæknisfræði við Læknadeild er tengt lyflækningasviði LSH og sinnir rannsóknum og kennslu á sviði lyflækninga. Kennsla í lyflækningum fer fram á 4. ári í læknisfræði og skiptist í fræðilegan og klínískan hluta. Kennslan fer fram með hefðbundnu fyrirlestrasniði og klínísku námskeiði þar sem læknanemarnir dvelja í 14-15 vikur á lyflækningadeildum LSH í Fossvogi, við Hringbraut og á Landakoti, auk þess sem þeim býðst vist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri hluta af námskeiðinu. Á klíníska námskeiðinu taka læknanemarnir þátt í starfi legudeildarteyma lyflækningasviða auk þess að fá formlega kennslu s.s. umræðufundi og klíníkur. Prófað er úr fræðilega hluta námskeiðsins í lyflæknisfræði með skriflegu prófi að vori. Námsmat í klíníska hlutanum fer annars vegar fram með mati á frammistöðu nemans á klíníska námskeiðinu og hins vegar með svokölluðu stöðvaprófi. Í stöðvaprófi er læknanemunum ætlað að skoða sjúklinga, taka af þeim sjúkrasögu og ráðleggja um rannsóknir og meðferð ásamt því að túlka niðurstöður rannsókna, t.d. blóðrannsókna og röntgenmynda. Fræðigreinar sem tilheyra fræðasviðinu: Hjartalæknisfræði, forsvarsmaður: Karl Konráð Andersen Smitsjúkdómalæknisfræði, forsvarsmaður: Magnús Gottfreðsson Nýrnalæknisfræði, forsvarsmaður: Runólfur Pálsson Meltingarlæknisfræði, forsvarsmaður: Einar Stefán Björnsson Innkirtlalæknisfræði, forsvarsmaður: Rafn Benediktsson Lungnalæknisfræði, forsvarsmaður: Gunnar Guðmundsson Krabbameinslæknisfræði, forsvarsmaður: Sigurdís Haraldsdóttir Öldrunarlæknisfræði, forsvarsmaður: Helga Eyjólfsdóttir Gigtarlæknisfræði, forsvarsmaður: Gerður Gröndal Aðrir fastir starfsmenn: Björn Guðbjörnsson Dóra Lúðvíksdóttir Gunnar Þór Gunnarsson Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir Sigurður Yngvi Kristinsson Sædís Sævarsdóttir Ásta Dögg Jónasdóttir Guðbjörg Jónsdóttir Kristín Þórarinsdóttir Arna Guðmundsdóttir Inga Jóna Ingimarsdóttir Sif Hansdóttir Steinunn Þórðardóttir Elias Eyþórsson Fulltrúar fræðasviðs lyflæknisfræði: Hulda Pálsdóttir Lilja Þorkelsdottir Meinafræði Forstöðumaður: Jón Gunnlaugur Jónasson Fræðasvið meinafræði tengist meinafræðideild LSH og sinnir rannsóknum og kennslu á sviði meinafræði. Kennsla í meinafræði fer fram á 3. ári í læknisfræði samhliða lyfjafræði og er kennd sem sjúkdómafræði og hefur verið góður undirbúningur nemenda undir nám í klínískum greinum læknisfræðinnar. Greinin myndar tengingu milli grunngreina og klínískra greina læknisfræðinnar á fjórða til sjötta ári. Í meinafræði hljóta læknanemar kennslu í sjúkdómum nánast í fyrsta skipti í náminu en fram að því hefur kennslan mest miðast við að þekkja líffærafræði líkamans og eðlis- og efnafræði hans í eðlilegu ástandi. Kennslan fer fram með fyrirlestrum, verklegu námi og umræðutímum um sjúkratilfelli. Umræðutímar um sjúkratilfelli nýtast til tengingar við lyfjafræði og klínískar greinar læknisfræðinnar en þá eru klínísk tilfelli tekin fyrir til þess að kynna fyrir nemendum hvernig meinafræðin kemur að greiningu og meðhöndlun sjúkdóma. Að þessum tímum koma kennarar í meinafræði í samvinnu við kennara úr lyfjafræði og klínískum greinum. Markmið er að nemendur séu virkir í þessum tímum. Verklegt nám fer fram á meinafræðideild Landspítalans þar sem nemendur skoða smásjársneiðar undir leiðsögn en einnig með sjálfsnámi. Nemendum gefst kostur á að sjá og fylgjast með móttöku og úrskurði vefjasýna sem berast rannsóknarstofunni og eftir því sem tök eru munu nemendur fylgjast með krufningum. Nemendur eru ávallt velkomnir á rannsóknarstofuna á meðan á námi stendur og síðar. Kennarar í greininni eru öll læknar og sérfræðingar í meinafræði og starfa á meinafræðideild Landspítalans. Fræðigreinar sem tilheyra fræðasviðinu: Meinafræði, forsvarsmaður: Jón Gunnlaugur Jónasson Réttarlæknisfræði, forsvarsmaður: Pétur Guðmann Guðmannsson Aðrir fastir starfsmenn: Pétur Snæbjörnsson Anna Margrét Jónsdóttir Árni Kjalar Kristjánsson Gunnlaugur Pétur Nielsen Ingibjörg Guðmundsdóttir Lárus Jónasson Rebekka Guðrún Rúnarsdóttir Sverrir Harðarson Myndgreining Forstöðumaður: Enrico Bernardo Arkink Fræðasvið myndgreiningar við er tengt klínísku þjónustusviði LSH og sinnir rannsóknum og kennslu í myndgreiningu. Kennsla í myndgreiningu fer fram á 4. ári. Fyrirlestrar eru 40 og eru bæði á haust- og vormisseri. Verklegt nám fer fram á Röntgendeild Landspítala háskólasjúkrahúss, bæði í Fossvogi og við Hringbraut. Kennsla í myndskoðun fer fram á Röntgendeild Landspítala (í Fossvogi) og í Orkuhúsinu. Í náminu er farið yfir helstu tæki sem notuð eru í myndgreiningu og notkunarsvið þeirra. Þá er kennd myndgreining mismunandi líffærakerfa og grunnatriði í túlkun rannsókna. Aðrir fastir starfsmenn: Boris Brkljačić Pétur Hörður Hannesson Pir Abdul Ahad Aziz Fjöldi stundakennara og lækna LSH tekur einnig þátt í kennslunni. Ónæmisfræði Forstöðumaður: Björn Rúnar Lúðvíksson Fræðasvið ónæmisfræði er tengt klínísku rannsókna- og stoðþjónustusviði og ónæmisfræðideild LSH og sinnir rannsóknum og kennslu. Kennsla í grunnatriðum ónæmisfræðinnar fer fram á 2. ári í læknisfræði, en jafnframt er klínísk ónæmisfræði kennd sem hluti lyflæknisfræði á 4. ári. Hlutverk deildarinnar er að stuðla að því að þekking og framfarir í ónæmisfræði komi íslensku samfélagi að sem bestum notum og jafnframt að afla nýrrar þekkingar á starfsemi ónæmiskerfisins. Viðfangsefnum deildarinnar má skipta í fjögur meginsvið: Alhliða klínísk þjónusta og ráðgjöf vegna sjúklinga með truflanir í ónæmiskerfi og rannsóknir til að greina ónæmissjúkdóma Kennsla og vísindaleg þjálfun líffræðinga, lyfjafræðinga, lækna, lífeindafræðinga og annarra faghópa á sviði ónæmisfræði. Ráðgjöf og umsagnir fyrir heilbrigðisstofnanir og stjórnvöld Fræðilegar rannsóknir á svið ónæmisfræði og þróunarvinna til að tryggja skilvirkni, áreiðanleika og hagkvæmni þjónustu viðfangsefna Samskipti við erlenda aðila og almenn upplýsingamiðlun á sviði fræðigreinarinnar Aðrir fastir starfsmenn: Jóna Freysdóttir Siggeir Fannar Brynjólfsson Sólrún Melkorka Maggadóttir Stefanía P Bjarnarson Þórunn Ásta Ólafsdóttir Skurðlæknisfræði Forstöðumaður: Tómas Guðbjartsson Fræðasvið skurðlæknisfræði við Læknadeild er tengt skurðlækningasviði LSH og sinnir rannsóknum og kennslu á sviði skurðlækninga. Kennsla í skurðlækningum fer fram á 4. ári í læknisfræði og er bæði bókleg og verkleg. Fræðigreinar sem tilheyra fræðasviðinu og forsvarsmenn þeirra: Í Fossvogi: Háls-, nef- og eyrnaskurðlækningar: Geir Tryggvason Heila- og taugaskurðlækningar: Elvar Úlfarsson Lýtaskurðlækningar: Þórir Auðólfsson Æðaskurðlækningar: Zoran Podzev Á Hringbraut: Skurðlæknisfræði brjósta, innkirtla og meltingarfæra: Páll Helgi Möller Þvagfæraskurðlækningar: Sigurður Guðjónsson Hjarta- og lungnaskurðlækningar: Tómas Guðbjartsson Þessar fræðigreinar skiptast síðan í undirgreinar sem hver og ein er með tiltekna sérhæfingu. Aðrir fastir starfsmenn: Elsa Björk Valsdóttir Kristín Huld Haraldsdóttir Bjarni Geir Viðarsson Guðjón Birgisson Jóhann Jónsson Jórunn Atladóttir Lilja Þyri Björnsdóttir Rafn Hilmarsson Svanheiður Lóa Rafnsdóttir Sýkla- og veirufræði Forstöðumaður: Lena Rós Ásmundsdóttir Fræðasvið sýkla- og veirufræði við Læknadeild er tengt sýkla- og veirufræðideild LSH og sinnir rannsóknum og kennslu á sviði sýkla- og veirufræði. Kennsla í sýkla- og veirufræði fer fram á vormisseri á 2. ári í læknisfræði. Markmið námsins er að læknanemar öðlist góða þekkingu á þeim sýklum (bakteríur, veirur, sveppir og sníkjudýr) sem valda sjúkdómum í mönnum og hvernig staðið er að greiningu helstu sýkinga. Kennslan er í formi fyrirlestra, umræðutíma, teymisnáms (TBL, team-based learning) og verklegra æfinga. Í fyrirlestrum er farið yfir grundvallaratriði sýkla- og veirufræði, helstu sýkingavalda í mönnum, faraldsfræði sýkinga, greiningu sýkla á rannsóknastofu og varnir gegn smitsjúkdómum. Jafnframt er farið í grunnatriði klínískrar sýkla- og veirufræði með áherslu á einkennamiðaða nálgun tengt einstökum líffærakerfum og fer sú kennsla meðal annars fram sem TBL. Í verklega hluta námsins fá nemendur þjálfun í notkun einfaldra aðferða við rannsóknir og greiningu algengra sýkingavalda og kennd eru grundavallaratriði við túlkun og mat á rannsóknaniðurstöðum. Námsmat fer fram með mati á frammistöðu í TBL, skilaverkefnum og þátttöku í verklegum æfingum og rafrænu prófi í lok námskeiðs. Rannsóknir innan fræðasviðsins eru af ýmsum toga. Helstu áherslur í rannsóknum hafa verið á faraldsfræði og sameindafaraldsfræði sýkinga, ífarandi sýkingar (þ.m.t. sýkingar af völdum pneumókokka, streptókokka, Haemophilus influenzae, stafýlókokka og sveppa), öndunarfærasýkingar og áhrif bólusetninga á faraldsfræði þeirra, sýklalyfjaónæmar bakteríur og faraldsfræði sýklalyfjaónæmis. Fræðasvið sýkla- og veirufræði er í innlendu og erlendu samstarfi í rannsóknum. Fræðigreinar sem tilheyra fræðasviðinu: Sýklafræði, forsvarsmaður: Lena Rós Ásmundsdóttir Veirufræði, forsvarsmaður: Lena Rós Ásmundsdóttir Aðrir fastir starfsmenn: Brynja Ármannsdóttir Ingibjörg Hilmarsdóttir Auk þess taka smitsjúkdómalæknar og stundakennarar með sérfræðiþekkingu í sýkla-og veirufræði þátt í kennslunni, og lífeindafræðingar og annað starfsfólk sýkla- og veirufræðideildar LSH tekur þátt í verklegu kennslunni. Svæfinga-og gjörgæslulæknisfræði Forstöðumaður: Martin Ingi Sigurðsson Fræðasvið svæfinga- og gjörgæslufræði við Læknadeild tengist svæfinga- og gjörgæsludeildum LSH og sinnir rannsóknum og kennslu á sviði svæfinga- og gjörgæslulækninga. Kennsla í svæfinga- og gjörgæslulæknisfræði fer fram á 6. ári og er bæði bókleg og verkleg. Markmið námsins er að læknanemar fái staðgóða þekkingu í svæfinga- og gjörgæslulækningum. Verklega námið miðast við að læknanemar fái góða reynslu í að meta sjúklinga, setja upp og taka þátt í framkvæmd svæfinga hjá sjúklingumem eru að fara í valaðgerðir eða bráðaaðgerðir. Einnig munu nemendur fá reynslu i meðferð sjúklingai sem eru að ná sér eftir skurðaðgerðir og í mati og meðferð bráðveikra gjörgæslusjúklinga. Kennslan fer fram vendiformi, með hermikennslu og og klínískri námsveruþar sem læknanemarnir dvelja í 2 vikur á svæfinga- og gjörgæsludeildum LSH í Fossvogi, við Hringbraut og á Sjúkrahúsinu á Akureyri, auk þess sem þeim býðst vist á Sjúkrahúsinu á Akranesi hluta af námskeiðinu. Fræðileg kennsla fer fram í byrjun námskeiðs að hausti eða voru. Í kennslunni er nemendum boðið upp á að kynna sér rafræna fyrirlestra sem fjalla um uppvinnslu, gerð svæfingaráætlunar, svæfingalyf og vökva, bráða og lanvinna verki, mat og meðferð sjúklinga í svæfingu og á gjörgæslu. Í kjölfarið hitta nemendur kennara í litlum hópum og vinna að tilfellamiðaðri kennslu sem byggir á námsefninu. Nemendur koma auk þess í hermisetur í einn dag í kennslu í loftvegameðferð og annan dag í hermikennslu sem miðar að mati og meðferð bráðveikra sjúklinga á sjúkrahúsi (Very Basic námskeið) Á verklega námskeiðinu taka læknanemar þátt í daglegu starfi svæfinga- og gjörgæslulækna á skurðstofum og á gjörgæsludeildum auk sjúklingagöngudeildar. Þar er auk þess formlegur umræðufundur með kennurum. Námsmat fer fram með mati á frammistöðu nemans í vendikennslu og hermikennslu og rafrænu prófi úr námsefni. Helstu áherslur í rannsóknum fræðasviðsins eru: Rannsóknir á útkomum skurðaðgerða Rannsóknir á bráðum nýrnaskaða Rannsóknir á lyfjanotkun aðgerðasjúklinga og sjúklinga innlagðra á sjúkrahúsi Þátttaka í fjölþjóðlegum rannsóknum á gjörgæslumeðferð Aðrir fastir starfsmenn: Sigurbergur Kárason Auk þess taka allir læknar svæfinga- og gjörgæsludeildar Landspítala háskólasjúkrahúss (LSH) og Sjúkrahússins á Akureyri (SA) þátt í klínísku kennslunni. Umsjónarlæknar klínískrar kennslu eru: Kári Hreinsson, yfirlæknir, svæfinga-og gjörgæsludeild Landspítala Katrín M Þormar, yfirlæknir, Landspítala við Hringbraut, Sigrún Ásgeirsdóttir, yfirlæknir, Landspítala í Fossvogi, Oddur Ólafsson yfirlæknir Sjúkrahúsinu á Akureyri Björn Gunnarsson yfirlæknir Sjúkrahúsinu á Akranesi Fulltrúi fræðasviðsins: Halldóra Hilmarsdóttir Einnig sinnir skrifstofa Læknadeildar fræðasviði svæfinga- og gjörgæslulækninga Taugasjúkdómafræði Forstöðumaður: Ólafur Árni Sveinsson Fræðasvið taugasjúkdómafræði við Læknadeild er tengt lyflækningasviði LSH og sinnir rannsóknum og kennslu á sviði taugasjúkdóma. Kennsla í taugasjúkdómafræði fer fram á 5. ári í læknisfræði og er bæði bókleg og verkleg. Aðrir fastir starfsmenn: Haukur Hjaltason Finndu fræðimann facebooklinkedintwitter