Skip to main content

Afreks- og hvatningarsjóður stúdenta Háskóla Íslands

Afreks- og hvatningarsjóður stúdenta Háskóla Íslands - á vefsíðu Háskóla Íslands

Afreks- og hvatningarsjóður stúdenta Háskóla Íslands styrkir framhaldsskólanema sem innritast í Háskóla Íslands og hafa náð afburðaárangri á stúdentsprófi. Styrkir eru veittir ár hvert.

 Við úthlutun er einnig leitast við að:

  • Styrkja nemendur sem sýnt hafa sérstakar framfarir í námi sínu.
  • Styrkja nemendur sem hafa náð góðum námsárangri þrátt fyrir erfiðar aðstæður.

Sérstakir áhersluþættir í ár

Nemendur sem hafa íslensku sem annað mál eru sérstaklega hvattir til að sækja um.

Sækja um styrk

Upphæð styrks

Hver styrkur er að fjárhæð 300.000 kr. auk 75.000 kr. til endurgreiðslu á skrásetningargjaldi við Háskóla Íslands. Styrkhafar fá styrkinn greiddan fljótlega eftir að nám við skólann hefst.

Hverjir geta sótt um?

Nýnemar við Háskóla Íslands, innritaðir í grunnnám, geta sótt um styrkinn.

  • Umsóknarfrestur fyrir skólaárið 2024-2025 var 5. júní 2023.

Skilyrði styrkveitingar

Við val á styrkhöfum er tekið mið af framúrskarandi námsárangri á stúdentsprófi. Einnig er horft til virkni í félagsstörfum og árangurs stúdenta á öðrum sviðum, s.s. í listum og íþróttum.

Í umsókn skal koma fram, auk almennra upplýsinga um umsækjanda:

  • Greinargóð lýsing á námsferli.
  • Stutt umfjöllun um annað sem umsækjandi hefur tekið sér fyrir hendur og telur að skipti máli.
  • Lýsing á framtíðaráformum.

Með umsókn þurfa að fylgja:

  • Stúdentsprófsskírteini.
  • Meðmælabréf.
  • Staðfesting á virkni í félagsstörfum, sérstökum aðstæðum og/eða árangri á öðrum sviðum.

Vönduð vinnubrögð og skýr framsetning á upplýsingum auðveldar mat stjórnar á umsóknum. Umsóknir án fylgigagna koma ekki til greina við val stjórnar á styrkhafa.

Frekari upplýsingar um úthlutun styrkja veitir Pétur Ástvaldsson; petura@hi.is.

Sækja um styrk

Styrkhafar

    Afreks- og hvatningarsjóður stúdenta Háskóla Íslands var stofnaður árið 2008. Frá upphafi hafa yfir 400 nýnemar við Háskólann hlotið styrki úr sjóðnum.

    Stjórn sjóðsins

    • Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor við Félagsvísindasvið
    • Steinunn Gestsdóttir, prófessor við Heilbrigðisvísindasvið
    • Ólafur Pétur Pálsson, prófessor við Verkfræði- og náttúruvísindasvið

    Myndir frá fyrri úthlutunum

    Styrkþegar 2021
    Styrkþegar 2020
    Styrkþegar 2019
    Styrkþegar 2018
    Styrkþegar 2017
    Styrkþegar 2016
    Styrkþegar 2015
    Styrkþegar 2014
    Styrkþegar 2013
    Styrkþegar 2012
    Styrkþegar 2011
    Styrkþegar 2010
    Styrkþegar 2009
    Styrkþegar 2008
    Styrkþegar 2022
    Tengt efni
    Viðtöl við styrkþega fyrri ára