Lýðheilsufélag læknanema hefur á undanförnum árum boðið leikskólabörnum á aldrinum 3-6 ára að koma í heimsókn á spítalann.
Börnin koma með veika eða slasaða bangsa, önnur tuskudýr eða dúkkur til aðhlynningar.
Tilgangur verkefnisins er tvíþættur:
- að fyrirbyggja hræðslu hjá börnum við lækna, heilbrigðisstarfsfólk og spítalaumhverfið
- að gefa læknanemum á yngri árum tækifæri til að æfa samskipti við börn
Finna má upplýsingar og fréttir frá Bangsaspítalanum á síðu Lýðheilsufélags læknanema á Facebook.
Eins og gefur að skilja eru margvísleg vandamál sem geta hrjáð leikföng barnanna.
Öll leikföng fá viðeigandi meðferð og hljóta bata á skömmum tíma.
Tengt efni