Skip to main content

Aurora - Nemendur

Aurora fyrir nemendur

Aurora-samstarfið skapar fjölbreytt tækifæri fyrir nemendur til að öðlast alþjóðalega reynslu sem hluta af náminu við Háskóla Íslands.

Aurora styrkir nemendur jafnframt til þátttöku í samfélagslegri nýsköpun og uppbyggingu sjálfbærs samfélags.
 
Raddir nemenda eiga að heyrast í allri stefnumótun, verkefnum og nýsköpun innan Aurora-samstarfsins.
 

""

Margvísleg tækifæri

Nemendur í Aurora háskólum fá tækifæri til að öðlast getu, þekkingu og drifkraft til að verða samfélagslegir frumkvöðlar og leiðtogar. 

Aurora-samstarfið gerir nemendum kleift að: 

  • Velja námskeið við aðra Aurora háskóla.
  • Vera þátttakendur í Aurora verkefnum og viðburðum.
  • Starfa í framtíðinni þvert á landamæri, tungumál og menningu. 
""

Viltu taka þátt í Aurora?

Hafðu samband

Ertu með hugmyndir, spurningar eða ábendingar um Aurora? Við viljum heyra frá þér!

Aurora@hi.is

Viltu fá Aurora fréttabréfið beint í pósthólfið? Skráðu þig á Aurora póstlistann