1. gr. Almennt Skylt er að ganga vel um húsakynni Háskóla Íslands, umhverfi hans, tæki og búnað á hverjum stað. Enginn má skilja eftir sig rusl, hvorki innan dyra né utan. Notum ruslafötur! 2. gr. Tillitssemi Hverjum og einum ber að sýna tillitssemi og valda ekki öðrum truflun eða óþægindum. Öll umgengni í lesrýmum og tölvuverum skal vera hávaðalaus. Slökkt skal á farsímum í lesrýmum, tölvuverum og kennslustofum. Hliðra skal til fyrir ræstingarfólki, svo að störf þess geti farið fram truflunarlaust. 3. gr. Reykingar Allar reykingar (þ.m.t. rafsígarettur) eru óheimilar innanhúss og við innganga bygginga Háskóla Íslands sem og undir opnanlegum gluggum. Sérstakt reykingaskýli er að finna vestan við Háskólatorg. 4. gr. Opnunartími Þau hús Háskólans sem ekki eru með aðgangsstýringu eru almennt opin frá kl. 7:30 - 18:00 virka daga. Í húsum með aðgangsstýringu gilda mismunandi reglur um opnunartíma. 5. gr. Neysla matar Neysla matar er óheimil í kennslustofum og tölvuverum. 6. gr. Leyfi fyrir öðru en reglulegri starfsemi Hvers konar viðburðir, kynningar, veitingar og sala er óheimil í húsakynnum Háskóla Íslands án leyfis. Sækja skal um leyfi til viðkomandi þjónustuborðs eða með því að senda tölvupóst á kennslustofur@hi.is eða haskolatorg@hi.is. 7. gr. Auglýsingar Auglýsingar eru eingöngu leyfðar á auglýsingatöflum og/eða tilkynningaskjám. Þær mega ekki brjóta í bága við reglur og almennt velsæmi. 8. gr. Brot á húsreglum Brot á húsreglum, tjón og hvers konar spjöll geta leitt til bótaskyldu og/eða brottvísunar. emailfacebooklinkedintwitter
Þarfnast þessi síða lagfæringar? Var efnið hjálplegt? Var efnið hjálplegt? * Já Nei Endilega láttu okkur vita hvað má betur fara * Viltu fá svar frá okkur? Viltu fá svar frá okkur? Netfang * Svo hægt sé að hafa samband við þig. Skjáskot Settu inn skjáskot hér ef þú telur þörf á.Skrár verða að vera minni en 2 MB.Leyfðar skráartegundir: gif jpg jpeg png. CAPTCHASía fyrir ruslpóst Hvaða stafir eru á myndinni? * Skrifaðu stafina sem sjást á myndinni.