Læknadeild á farsælt samstarf við fjölmörg fyrirtæki og stofnanir innanlands og utan. Tengsl deildarinnar við atvinnulífið eru góð. Háskóli Íslands starfar í alþjóðlegu umhverfi og Læknadeild er í samstarfi við fjölmarga erlenda háskóla og rannsóknastofnanir um rannsóknir, nemendaskipti, starfsmannaskipti og fleira. Öllum nemendum deildarinnar gefst kostur á að taka hluta af námi sínu við erlenda háskóla og fjöldi erlendra nema stundar nám við deildina ár hvert. Alþjóðlegt samstarf Læknadeild leggur ríka áherslu á alþjóðleg samskipi í öllu starfi sínu og vinnur stöðugt að því að styrkja þau og efla. Samnorrænt netnámskeið í sniðlækningum Háskóli Íslands stendur að samnorrænu netnámskeiði í sniðlækningum, sem opnaði vorið 2022, ásamt Kaupmannahafnarháskóla. Námskeiðið tekur fyrir sniðlækningar, stundum kallaðar einstaklingsmiðaðar lækningar (e. personalised/precision medicine), sem er nýlegt hugtak á sviði heilbrigðisþjónustu. Sniðlækningar eru algjörlega öndverðar við það þegar allir með tiltekinn sjúkdóm fá sömu meðferð. Í sniðlækningum er þjónustan sérniðin að hverjum og einum. Sædís Sævarsdóttir, prófessor í sniðlækningum við Læknadeild Háskóla Íslands, gigtarlæknir á Landspítala og vísindamaður hjá Íslenskri erfðagreiningu er umsjónarkennari námskeiðsins fyrir hönd HÍ ásamt Sisse Rye Ostrowski, prófessor við Læknadeild Kaupmannahafnarháskóla. Nánar um námskeiðið og kynningarmyndband hér. Alþjóðasvið Háskóla Íslands annast formleg samskipti Háskólans við erlendar menntastofnanir og veitir stúdentum, kennurum og deildum Háskóla Íslands ýmsa þjónustu varðandi alþjóðlegt samstarf. Háskóli Íslands á samstarf við mörg hundruð erlenda háskóla um nemendaskipti, rannsóknir, starfsmannaskipti og fleira. Samstarfskólarnir eru á Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndum í gegnum Nordplus, í Evrópu í gegnum Erasmus, Isep og Maui net til Bandaríkjanna, Crepuq net til Kanada, Aen net til Ástralíu og einnig eru fjölmargir tvíhliðasamningar við einstaka háskóla vítt og breitt. Stúdentar og kennarar geta sótt um styrki gegnum Nordplus áætlunina Stúdentar, kennarar og annað starfsfólk geta sótt um styrki gegnum Erasmus áætlunina Önnur samstarfsnet (utan Evrópu) felast fyrst og fremst í samstarfi varðandi stúdentaskipti og fela í sér niðurfellingu á skólagjöldum við gestaskólann. Tvíhliðasamningar geta verið nokkuð breytilegir en í flestum þeirra felst samstarf varðandi stúdenta- og starfsmannaskipti auk ýmiss almenns samstarfs (t.d. rannsóknasamstarf, aðgang að gögnum o.fl.) facebooklinkedintwitter