Skip to main content

Mannauðssvið

Mannauðssvið er eitt af sex sviðum í sameiginlegri stjórnsýslu Háskóla Íslands og heyrir beint undir rektor.

Meginhlutverk mannauðssviðs er að vinna að vönduðum vinnubrögðum í starfsmannamálum við Háskóla Íslands og tryggja að lögum og reglum sé framfylgt í meðferð starfsmannamála.

Á mannauðssviði starfa um 10 starfsmenn í um 7-8 stöðugildum á hverjum tíma fyrir sig, sem búa yfir sérhæfðri reynslu og menntun á sviði starfsmannamála og veita starfsfólki leiðbeiningar, ráðgjöf og upplýsingar.

  • Mannauðssvið er staðsett á 1. hæð (norðurálmu) í Aðalbyggingu.
Tengt efni