Samþykkt var á deildarfundi Hagfræðideildar að gera breytingar á meistaranámi í hagfræði. Breytingarnar tóku gildi í upphafi námsársins 2018–2019. Efnislega er ekki um nýjar námsleiðir að ræða heldur breytingu (stækkun) á leiðum sem þegar er verið að kenna innan Hagfræðideildar. Hér má lesa spurningar og svör sem tengjast breytingu á meistaranámi úr 90 ECTS eininga námi (MS-90) í 120 ECTS eininga nám (MS-120). Lykildagsetningar í lotunámi Skólaárið 2021 - 2022 Lota Kennslutímabil Prófatímabil Frestur til að skrá sig í og úr námskeiðum 1 30. ágúst - 15. október 18. október - 22. október 30. ágúst - 5. september 2 25. október - 10. desember 13. desember - 17. desember 25. október - 31. október 3 10. janúar - 25. febrúar 28. febrúar - 4. mars 10. - 16. janúar 4 7. mars - 29. apríl 2. maí - 6. maí 7. - 13. mars Í kennsluskrá Háskóla Íslands eru upplýsingar um tímasetningar lotunáms.Endurskoðun fer fram fyrstu viku hverrar lotu! Mjög mikilvægt að skrá sig úr námskeiðum á réttum tíma. Vegna prófatöflugerðar er ekki alltaf hægt að verða við því að bæta við námskeiðum í endurskoðunarvikum í lotu 2 og 4. Því er mikilvægt að fara vel yfir skráningu strax í upphaf. Hvernig virka skráningar í og úr lotubundnum námskeiðum? Nemendur velja sér námskeið fyrir allt námsárið við innritun eða á hefðbundnum skráningartíma ef um áframhaldandi nám er að ræða. Nemendur geta breytt skráningu sinni í 1. viku hverrar lotu og ekki eftir það. Þegar 2. vika lotunnar hefst er ekki mögulegt að gera fleiri breytingar á skráningu. Þetta á við bæði fyrir skráningar í ný námskeið og úrskráningar úr námskeiðum. Hvaða breytingar verða gerðar á náminu? Akademískar kröfur verða auknar í MS námi þannig að námið verður að lágmarki 120 ECTS [90+30] (það er 90 ECTS í námskeiðum og 30 ECTS lokaverkefni), í stað 90 ECTS og tekur því að jafnaði fjögur misseri (í stað þriggja). Samhliða verður gerð sú breyting að hvert námskeið verður að jafnaði 7,5 ECTS einingar, en ekki 6 ECTS einingar eins og verið hefur. Jafnframt verður tekin upp lotukennsla, þar sem kennt er í 7 vikna lotum, tvær lotur á haustmisseri og tvær á vormisseri. Gert er ráð fyrir að nemendur taki að jafnaði tvö námskeið í hverri lotu. Einungis verður innritað í 120 ECTS eininga meistaranám frá og með haustinu 2018, en núverandi nemendur geta valið hvort þeir vilja útskrifast með 90 einingar (MS-90) eða 120 einingar (MS-120). Ég er skráð(ur) í útskrift nú í febrúar og vil útskrifast þá eins og ég gerði ráð fyrir. Þarf ég að gera eitthvað? Nemendur sem eru skráðir í útskrift nú í febrúar og vilja halda sig við að útskrifast þá, með 90 ECTS eininga meistaragráðu (MS-90), þurfa ekki að gera neitt til að bregðast við þessum breytingum. Allir nemendur sem eru skráðir í útskrift og ljúka öllum námskröfum fyrir tilsettan tíma útskrifast eins og ekkert hefði í skorist. Ég er skráð(ur) í útskrift nú í febrúar, en myndi kjósa að bæta við mig námskeiðum og útskrifast með 120 ECTS eininga gráðu (MS-120). Hvað á ég að gera? Allir nemendum sem nú þegar eru skráðir í námið geta valið hvort þeir útskrifast með 90 ECTS eininga gráðu eða skipta yfir í 120 ECTS eininga nám (MS-120). Nemendur sem eru skráðir í útskrift en myndu vilja skipta þurfa að skrá sig úr útskrift og fylgja síðan leiðbeiningum við að breyta skráningu úr MS-90 í MS-120. Sjá nánar í svarinu við spurningunni “Hvaða áhrif hafa breytingarnar fyrir núverandi nemendur sem myndu kjósa að útskrifast með 120 ECTS einginga gráðu (MS-120)?” Hvaða áhrif hafa breytingarnar fyrir núverandi nemendur sem vilja útskrifast með 90 ECTS gráðu (MS-90)? Nemendur sem innrituðust MS nám á þeim forsendum sem kynntar voru í kennsluskrá fyrir veturinn 2017–2018 eða fyrr (MS-90) hafa rétt til þess að ljúka námi sínu með 90 ECTS einingum. Breytingin hefur engin áhrif á nemendur sem ljúka öllum sínum námskeiðum vorið 2018 (eða fyrr). Nemendur sem þurfa að taka námskeið frá og með haustmisseri 2018 geta staðið frammi fyrir því að erfitt sé að fylla nákvæmlega upp í einingafjölda með nýju námsframboði af 7,5 ECTS eininga námskeiðum. Tekið verður tillit til þessara nemenda með því að bjóða tímabundið upp á styttri lesnámskeið til þess að gera nemendum, sem þess óska, mögulegt að útskrifast án þess að taka fleiri einingar en þörf er á. Núverandi nemendur hafa þrjú ár (til 2020) til þess að ljúka MS-90 meistaranámi. Námskeið sem Hagfræðideild hefur boðið upp á sl. þrjú ár, meðal annars í gegnum Endurmenntun HÍ, verða metin inn í MS-120 námið. Hvaða áhrif hafa breytingarnar fyrir núverandi nemendur sem myndu kjósa að útskrifast með 120 ECTS eininga gráðu (MS-120)? Öllum núverandi nemendum gefst kostur á að breyta skráningu sinni úr þeirri námsleið sem þeir eru í og yfir í samsvarandi MS-120 námsleið. Þeir þurfa þá að ljúka a.m.k. 90 ECTS einingum í námskeiðum og skrifa 30 ECTS eininga ritgerð og geta í kjölfarið útskrifast með 120 ECTS eininga meistaragráðu (MS-120). Nemendur geta fengið öll námskeið úr núverandi námsleið metin inn í MS-120 námsleiðina. Skyldunámskeið sem tekin hafa verið þarf ekki að taka aftur, jafnvel þótt námskeið verði stækkuð við breytinguna og verði að jafnaði 7,5 ECTS einingar í öllum MS-120 námsleiðum. Þess ber þó að gæta að 6 ECTS eininga námskeið sem áður hafa verið tekin eru áfram metin sem 6 ECTS einingar í nýju námsleiðunum. Nemendur geta því staðið frammi fyrir því að erfitt sé að fylla nákvæmlega upp í einingafjölda með nýju námsframboði af 7,5 ECTS eininga námskeiðum. Tekið verður tillit til þessara nemenda með því að bjóða tímabundið upp á styttri lesnámskeið til þess að gera nemendum, sem þess óska, mögulegt að útskrifast án þess að taka fleiri einingar en þörf er á. Námskeið sem Hagfræðideild hefur boðið upp á sl. þrjú ár, meðal annars í gegnum Endurmenntun HÍ, verða metin inn í MS-120 námið. Hvernig breytist fyrirkomulag kennslu að öðru leyti? Fyrirkomulagi kennslu verður breytt þannig að kennt verður í lotum. Tvær lotur eru á hvoru misseri og munu nemendur að jafnaði sækja tvö 7,5 ECTS eininga námskeið í hverri lotu. Núgildandi fyrirkomulag í MS námi gerir að jafnaði ráð fyrir að nemendur ljúki að minnsta kosti 10 námskeiðum, sem hvert um sig er 6 ECTS einingar. Með breyttu fyrirkomulagi mun vægi hvers námskeiðs aukast og verða 7,5 ECTS einingar og þurfa nemendur því að jafnaði að ljúka 12 námskeiðum. Gert er ráð fyrir að skyldunámskeiðum fjölgi og ríkari kröfur verði gerðar um að nemendur ljúki aðferðarfræðilegum námskeiðum og námskeiðum sem sérsniðin eru að viðkomandi námsleið. Hvernig verður lotukerfið skipulagt? Námsfyrirkomulagi í framhaldsnámi verður breytt þannig að kennt verður í lotum, þannig verður hvoru misseri skipt upp í tvær lotur og nemendur taka að jafnaði tvö námskeið í hvorri lotu (eða skili sambærilegri vinnu við lokaritgerð). Hver lota samanstendur af sjö kennsluvikum og einni viku fyrir námsmat og próf. Kennsla á hvoru misseri er því 14 vikur. Í nýju fyrirkomulagi hefst kennsla að hausti í viku númer 35 (27. ágúst 2018) og lýkur í viku 49 (7. desember 2018). Hvaða áhrif hafa breytingarnar á brautskráða nemendur? Útskrifuðum nemendum með 90 ECTS eininga gráðu, verður gert kleift að “fylla upp í gráðuna” með því að bæta við sig einingum, ef nemendur telja mikilvægt að geta kynnt sig á vinnumarkaði í samræmi við nýtt nám. Í þeim tilvikum yrði ekki um formlega prófgráðu að ræða, heldur bréf frá deildinni þar sem fram kemur að nemendur hafi lokið öllum þeim kröfum sem gerðar eru til 120 ECTS MS gráðu (MS-120). Verður boðið upp á, bæði 6 og 7,5 e. námskeið? Eftir breytingu verða öll námskeið 7,5 e. Nemendur sem þurfa að blanda saman 6 og 7,5 eininga námskeiðum gætu því brautskrifast með umframeiningar. Hvaða áhrif hafa breytingarnar á MFin? Ekki er fyrirhugað gera breytingar á þessum námsleið. Þó munu breytingarnar hafa óbein áhrif í þeim tilvikum þar sem boðið er upp á 7,5 ECTS eininga námskeið þar sem áður var gert ráð fyrir 6 ECTS einingum. Hvernig verða námskeiðin kennd? Almennt verður fyrirkomulagið þannig að í hverju námskeiði eru tímar tvisvar í viku og þá samfellt þann dag. Það fer eftir vali og stundatöflum hvort nemandi er í einu námskeiði á dag (og er þá í tímum fjóra daga í viku) eða hvort tíma í mismunandi námskeiðum beri upp á sama dag. Hvað getur nemandi gert sem vantar 3. einingar (minna en sem svarar heilu námskeiði), til að ljúka þeirri gráðu sem hann stefnir að (annaðhvort MS-90 eða MS-120) náminu? Ákveðið hefur verið að bjóða upp á 1,5 og 3 ECTS námskeið í Viðskiptasiðfræði á haustmisseri 2018. Slíkt námskeið gagnast nemendum sem vantar 3. einingar eða minna upp á 90 eða 120 einingar, vegna breytinga á námskeiðum úr 6 og 7,5 einingar. Nemendur sem vantar meira en 3 einingar þurfa að velja sér hefðbundið (6e eða 7,5e) námskeið og kunna í einhverjum tilvikum að enda með meira en 90 eða 120 einingar við útskrift. Ekki er víst að boðið verði upp á önnur námskeið í 1,5e eða 3e útgáfum, svo nemendur sem svona er ástatt um eru hvattir til að nýta sér þetta tækifæri. facebooklinkedintwitter