Skip to main content
17. mars 2023

Opnar kennslustundir og kynningarfundir um framhaldsnám við Hugvísindasvið

Opnar kennslustundir og kynningarfundir um framhaldsnám við Hugvísindasvið - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands efnir til kynninga á framhaldsnámi vikuna 20. til 24. mars.  Þriðjudaginn 21. mars verða deildarstjórar og kennslustjóri Hugvísindasviðs á Háskólatorgi milli kl. 11:30 og 13:30 og veita svör við spurningum sem gestir kunna að hafa um framahaldsnám, t.d. um úrval og forkröfur.

Þar að auki verður boðið upp á eftirfarandi opnar kennslustundir og kynningarfundi á námsleiðum í framhaldsnámi við Hugvísindasvið:    

Opnar kennslustundir:

  • Umhverfishugvísindi. Námskeið í íslenskum bókmenntum í Árnagarði 303, mánudaginn 20. mars kl. 9:10.
  • Miðlun og menning. Námskeið í hagnýtri menningarmiðlun í Veröld – húsi Vigdísar 023, þriðjudaginn 21. mars kl. 9:10.
  • Platon í heiðni og kristni. Námskeið í hugmynda- og vísindasögu og miðaldafræði í Aðalbyggingu 229, þriðjudaginn 21. mars kl. 12:30.
  • Sjálfvirk málfarsráðgjöf. Námskeið í máltækni í Árnagarði 310, þriðjudaginn 21. mars kl. 15:00.   
  • Víkingaaldarfornleifafræði. Námskeið í sögulegri fornleifafræði í Aðalbyggingu 052, þriðjudaginn 21. mars kl. 15:00.
  • Mál og samfélag. Námskeið í íslenskri málfræði í Árnagarði 303, miðvikudaginn 22. mars kl. 9:10.
  • Nýjar rannsóknir í sagnfræði. Námskeið í sagnfræði í Odda 104, miðvikudaginn 22. mars kl. 9:10.
  • Þýðingasaga. Námskeið í þýðingafræði í Aðalbyggingu 051, miðvikudaginn 22. mars kl. 13:20.
  • Miðaldafornleifafræði. Námskeið í sögulegri fornleifafræði í Nýja Garði 001, fimmtudaginn 23. mars kl. 11:40.
  • Íslenska í skólakerfinu. Námskeið í íslenskukennslu í Árnagarði 303 í Árnagarði 303 fimmtudaginn 23. mars kl. 13:20.
  • Ritstjórn og hönnun prentgripa. Námskeið í hagnýtri ritstjórn og útgáfu í Odda 204 fimmtudaginn 23. mars kl. 13:20
  • Kynuslakvikmyndir og hinsegin fræði. Námskeið í kvikmyndafræði í Háskólabíói, sal 2, föstudaginn 24. mars kl. 13:20.

Kynningarfundir: 

Umsóknarfrestur um framhaldsnám við Háskóla Íslands er til 15. apríl. Smellið hér til að sækja um.

Einnig er athygli vakin á eftirtöldum síðum framhaldsnámsleiða við Hugvísindasvið og upptökum frá 2021 með fjarkynningum á framhaldsnámi (upplýsingar um einstaka námskeið kunna að hafa breyst):

Við Hugvísindasvið verður boðið upp á opnar kennslustundir og kynningarfundi á námsleiðum í framhaldsnámi.