Skip to main content

Kennslufræði yngri barna í grunnskóla, MT

Kennslufræði yngri barna í grunnskóla, MT

Menntavísindasvið

Kennslufræði yngri barna í grunnskóla

MT gráða – 120 einingar

MT í kennslufræði yngri barna í grunnskóla er fræðilegt og starfstengt meistaranám fyrir þau sem vilja verða kennarar en hafa ekki lokið B.Ed. í grunnskólakennslu. Námið er í nánum tengslum við vettvang og vettvangsnám er samþætt fræðilegum undirbúningi. 

MT nám felur það í sér að nemandi getur tekið kennslufræðitengd námskeið í stað þess að skrifa 30 eininga rannsóknarritgerð. 

Skipulag náms

X

Nám og kennsla í grunnskóla (KME102F)

Meginmarkmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í helstu kenningar og rannsóknir um nám, kennslu og kennarastarfið. Sérstök áhersla er lögð á kennsluaðferðir og skipulag kennslu sem sýnt hefur stuðning við áhugahvöt nemenda. Fjallað er um starfsumhverfi grunnskólakennara m.a. þeim lögum og reglum sem gilda um grunnskóla og nemendur kynnast vettvangi með vikulöngu vettvangsnámi. 

Inntak / viðfangsefni:

Fjallað er um nám og kennslu frá mörgum sjónarhornum. Nemendur kynnast námi og kennslu á öllum stigum skyldunáms og setja fram markmið, skipuleggja ólíkar kennsluaðferðir og námsumhverfi, auk þess að skipuleggja einnig samskipti og samstarf á vettvangi. Leitast er við að tengja þessi viðfangsefni hugmyndum um fagmennsku kennara og þróun eigin starfskenningar. Í fyrri hluta námskeiðsins verður fjallað sérstaklega um áhugahvöt til náms, verkefnaval, notkun umbunar/umbunarkerfa, námsmat og hópaskiptingu. Í síðari hluta námskeiðsins verður einnig fjallað um þróun sjálfsmyndar nemenda, foreldrasamstarf, stuðning við sjálfræði nemenda, félagsleg tengsl, væntingar nemenda og kennara og skólaforðun. Einstakir efnisþættir verða ræddir og settir í samhengi við árangursríkar kennsluaðferðir sem eru til þess fallnar að ýta undir áhugahvöt nemenda til náms. 

X

Málþroski og þróun málnotkunar (KME104F)

Námskeiðinu er ætlað að efla skilning nemenda á þróun málþroska barna frá fæðingu og fram á unglingsár og á mikilvægum áhrifsþáttum á málþroska þeirra. Megin áhersla námskeiðsins er á að auka færni nemenda við að veita börnum árangursríka málörvun sem undirstöðu undir nám og lestur. Ennfremur eru nemendur hvattir til að tengja saman fræði og vettvang og máta viðfangsefnin við eigin reynslu. Áhersla er lögð á að nemendur kynnist íslenskum og erlendum rannsóknum á sviðinu og ígrundi hvaða lærdóm kennarar geta dregið af rannsóknaniðurstöðum um það hvers konar reynsla, uppeldi, samskipti og örvun heima og í skóla veita bestu forsendur fyrir góðan málþroska.

Meginumfjöllunarefni: Þróun málnotkunar í sögulegu samhengi, hvati, lífshættir og meðfæddir hæfileikar. Þróun málþroska frá fæðingu, hljóðþróun, þróun orðaforða, málfræði, og setningagerðar. Mikilvægi málörvunar heima og í skóla. Tengsl málþroska við annan þroska svo sem vitsmuna, félagsþroska og læsisþróun. Helstu frávik í máli og tali svo sem málþroskaröskun (DLD), framburðarfrávik og stam. Málþroski fjöl/tvítyngdra barna. Mikilvægi snemmtækrar íhlutunar og almennrar málörvunar. Mat á málþroska barna og margvísleg málörvun með það að meginmarkmiði að gefa börnum næg tækifæri til að efla málþroska sinn og til að verða öflugir málnotendur

X

Menntunarfræði yngri barna (KME109F)

Á námskeiðinu verður fjallað um sýn á börn, rannsóknir á námi þeirra og þá hugmyndafræði sem þær byggja á og athyglinni beint að ýmsum áherslum og álitamálum á sviðinu. Kynntar verða innlendar og erlendar rannsóknir og kenningar á eftirfarandi sviðum: 

  • Sýn á börn og nám í nútíma samfélagi: Fjallað verður um grundvallarhugmyndir um nám barna og hvernig þeim eru skapaðar námsaðstæður í skólum þar sem þátttaka, valdefling, lýðræði og vellíðan eru í brennidepli.
  • Félagslegur raunveruleiki barna og áhrif  hans á virka þátttöku þeirra í skólastarfi, m.a. jafnrétti í víðum skilningi, foreldrasamskipti, tækni í lífi barna. 
  • Þróun náms, skipulag námsumhverfis og fjölbreyttar leiðir til að meta nám ungra barna sem snerta meðal annars námssvið í leik- og grunnskóla.

Vinnulag:
Mætingarskylda er í tveimur staðlotum. Vikulegar kennslustundir eru yfir önnina þar sem nemendur geta valið mismunandi tíma dagsins í kennslustofu eða á neti (kennt er á þriðjudögum.).

Kennsla verður í formi fyrirlestra, umræðna og verkefna sem nemendur kynna og ræða. Nemendur athuga hvernig nýta má kenningar og niðurstöður rannsókna í skólastarfi. Þeir velja sér afmarkað svið til að dýpka þekkingu sína á með því að kynna sér niðurstöður rannsókna og starf á vettvangi. Dæmi um viðfangsefni eru: Mat í skólastarfi, margbreytilegur barnahópur (svo sem menningarlæsi, kynjagervi, fjölmenning) ákveðið námssvið, leik og námssamfélag barna, foreldrasamstarf, læsi, samfella í námi barna og skapandi starf.

X

Heildstæð yngri barna kennsla (GKY201F)

Á námskeiðinu verður lögð áhersla á þróun náms hjá börnum í yngstu bekkjum grunnskóla og tengsl þess við skipulag kennslu og námsefnis fyrir yngsta stigið. Áhersla verður lögð á innlendar og erlendar rannsóknir um nám og kennslu barna á þessu aldursstigi sem snerta námsgreinar grunnskólans og einnig félagslega þætti sem tengjast skólastarfi á yngsta stigi grunnskóla án aðgreiningar. Nemendur velja sér afmarkað svið í verkefnavinnu t.d., ákveðna námsgrein, læsi, námssamfélag, fjölmenningu eða skapandi starf og dýpka þekkingu sína í gegnum lestur rannsókna og annara fræðilegra skrifa.

X

Námsmat og námskrá grunnskóla (KME006F)

Meginmarkmiðið er að nemendur öðlist þekkingu, leikni og hæfni sem snýr að námskrárfræðum og námsmati og verði færir um að beita þekkingu sinni á því í skólastarfi. Fjallað er nokkur lykilhugtök námskrárfræða og matsfræða eins og þau hafa birst í íslensku skólakerfi. Þannig er fjallað um áherslur og hugmyndastefnur sem greina má í opinberum námskrám, lögum, reglugerðum og öðrum stefnuritum. Þætti sérfræðinga (kennara, stjórnenda og fleiri) í námskrárgerð, þróun skólanámskrár og þróun námsmats eru gerð skil . Fjallað er um forsendur, tilgang og aðferðir við mat á námi og námsárangri (sbr. leiðsagnarmat, lokamat, gerð prófa og annarra matstækja og beitingu einkunna og vitnisburða). Þátttakendur lesa og ræða einnig um álitamál og ólíka hugmyndafræðilega strauma sem tengjast grundvallarspurningum um tilgang og markmið skyldunáms. 

Vinnulag á námskeiðinu felst í lestri greina og bókakafla, fyrirlestrum og kynningum ásamt gagnrýninni umræðu í málstofum og hópverkefnum.

Lesefni er kynnt í námsáætlun hverju sinni.

X

Lestrarkennsla á yngsta stigi grunnskóla (GKY401G)

Á námskeiðinu er megináhersla lögð á að kennaranemar dýpki þekkingu sína á lestrarkennslu í fimm meginþáttum lestrarnáms: hljóðkerfis og hljóðavitund, umskráningu, lesfimi, orðaforða og lesskilningi auk ritunar og öðlist skilning á ábyrgð og hlutverki kennarans í lestrarnámi barna. Fjallað er um forsendur lestrarnáms, raunprófaðar kennsluaðferðir í tengslum við lestrarkennslu og lestrarerfiðleika. Einnig hvernig grundvallarþættir í lestri: hljóðkerfisvitund, umskráning, lesfimi, orðaforði, lesskilningur/hlustunarskilningur og ritun flettast saman og stuðla að öryggi og fimi hjá lesandanum. Áherslur beinast að mikilvægi snemmtækrar íhlutunar og kennslu nemenda í áhættu vegna lestrarerfiðleika.
Rætt er hvernig lestrarhvetjandi og skapandi námsumhverfi, markviss kennsla og námsgögn við hæfi geta glætt lestraráhuga og aukið lestrargetu. Kynnt verða ýmis matstæki í lestrarkennslu; símat, fyrirbyggjandi mat (skimun) og greinandi próf. Ábyrgð og hlutverk kennara verður gaumgæft í tengslum við lestrarkennslu í margbreytilegum nemendahópi þar sem tekið er mið af einstaklingsmun og aðferðum sem beinast að því að hjálpa nemendum að ná sem bestum tökum á lestri.

Vettvangshluti námskeiðsins (3Ve) fer fram í samstarfsskólum Menntavísindasviðs og samsvarar einni og hálfri viku á vettvangi, 6 tíma á dag. 

X

Inngangur að megindlegum rannsóknaraðferðum (MVS213F, MVS212F, KME211F)

Markmiðið er að nemendur

  • hafi innsýn í megindlega aðferðafræði á sviði rannsókna í uppeldis- og menntunarfræði
  • þekki helstu rannsóknaraðferðir og hugtök sem þeim tengjast
  • geti beitt algengum rannsóknaraðferðum og þannig aflað gagna, unnið úr þeim og túlkað á agaðan og viðurkenndan hátt
  • séu færir um að rýna í rannsóknir og nýta sér niðurstöður þeirra
  • hafi tileinkað sér rannsakandi hugarfar og gagnrýna hugsun

Kynnt verða algeng rannsóknarsnið megindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemendur nota tölvuforrit til að reikna algenga tölfræðistuðla og halda utan um og vinna úr gögnum. Sérstök áhersla verður lögð á þjálfun í túlkun matsniðurstaðna sem líklegt er að verði á vegi þeirra hópa sem taka námskeiðið.

Fyrirlestrar á vef, umræður og verkefni. Námskeiðið er kennt vikulega en fyrirlestrar verða eingöngu á vef. Verkefnatímar verða ekki teknir upp. Ekki er mætingarskylda í námskeiðið en nemendur eru hvattir til að mæta í kennslustundir.

Nemendur verða að hafa Jamovi (sjá nýjustu útgáfu á https://www.jamovi.org) uppsetta á fartölvum sem þeir mæta með í kennslustundir. 

Lesefni: Kaflar 1-11 í Navarro DJ and Foxcroft DR (2019). Learning statistics with jamovi: a tutorial for psychology students and other beginners. (Version 0.70). DOI: 10.24384/hgc3-7p15. Rafræn ókeypis kennslubók sem hala má niður á síðunni https://www.learnstatswithjamovi.com.

X

Inngangur að eigindlegum rannsóknaraðferðum (MVS213F, MVS212F, KME211F)

Fjallað verður um ólíkar rannsóknarstefnur og tengsl þeirra við uppbyggingu og útfærslu rannsókna. Einnig um siðfræði vísinda með áherslu á hagnýt atriði og um gæðahugtök, s.s. réttmæti, trúverðugleika og ólíka sýn á þessi hugtök. Í námskeiðinu beinist athyglin að eigindlegum aðferðum. Kynnt verða algeng rannsóknarsnið eigindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemar fá nokkra þjálfun í að beita algengum aðferðum rannsókna m.a. vettvangsathugunum, viðtölum og heimildaathugunum. Þá vinna nemar með öflun, skráningu, flokkun, greiningu og túlkun gagna, og með framsetningu þeirra og gera heildstæða rannsóknaræfingu.

Fyrirlestrar, umræður og verkefni. Skyldumæting er í staðlotum.

X

Skólastarf og rannsóknir (MVS213F, MVS212F, KME211F)

Fjallað verður um innlendar og erlendar rannsóknir um nám og kennslu og greint hvernig þær geta stutt við þróun kennsluhátta og skipulag námsumhverfis. Rýnt verður í ólíkar rannsóknarstefnur og tengsl þeirra við rannsóknaraðferðir.

Matstæki sem skólum bjóðast, meðal annars á vegum Menntamálastofnunar, verða kynnt og rædd á námskeiðinu. Þar má nefna HLJÓM-2 fyrir leikskóla, Lesskimun fyrir fyrsta bekk, önnur lesskimunarpróf, mælaborðið Lesfimi og Matsferil sem er nýtt tæki í þróun hjá stofnuninni.

Einnig verða skoðaðar alþjóðlegar kannanir svo  sem PISA fyrir 10. bekkinga og TALIS sem er könnun meðal kennara.

Námskeiðið á að vera hagnýtt og nýtast kennurum í daglegu starfi.

Vinnulag
Haldnir verða fyrirlestrar, málstofur og umræðutímar. Nemendur taka þátt í athugunum og æfa sig í að lesa og túlka niðurstöður rannsókna sem styðja þá í kennarastarfi.

Fyrir hverja er þetta námskeið?
Námskeiðið er einkum ætlað nemendum í leik- og grunnskólakennaranámi sem valið hafa MT-námsleiðir.

X

Nám og kennsla - fagmennska í starfi (KME301F)

Meginviðfangsefni námskeiðsins er fagmennska í starfi kennara og hlutverk, ábyrgð og skyldur umsjónarkennara sem og fagreinakennara. Sérstök áhersla er lögð á að styðja kennaranema í að móta heildstæða starfskenningu, efla fagvitund, skerpa sýn á kennarastarfið og skilning á þeim skuldbindingum sem starfið felur í sér. Á námskeiðinu er áhersla lögð á tengsl kennslu og náms og það hlutverk kennarans að byggja upp öflugt og skapandi námsumhverfi. Fjallað verður um siðfræði kennarastarfsins, manngildissjónarmið og ábyrgð kennara, gagnvart velferð barna og foreldrasamstarfi. Meðal viðfangsefna verða sjálfsrýni og sjálfsmat, ígrundun eigin kennslu og í samræðu við nema úr öðrum faggreinum. Auk þess er lögð áhersla á samskiptafærni, m.a. í samskiptum við foreldra, viðtalstækni, teymiskennslu og teymisvinnu og mismunandi leiðir til bekkjarstjórnunar.

Vinnulag byggir á fyrirlestrum, umræðum, málstofum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við vettvangsnám. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr skólastarfi. Kennaranemar lesa valdar greinar og rannsóknir sem tengjast námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér. Þeir vinna námsþáttaverkefni og halda rannsóknardagbók a.m.k. einu sinni í viku meðan á vettvangsnámi stendur. Kennaranemar vinna að jafnaði saman í teymi á vettvangi í samstarfi við æfingakennara og kennara námskeiðsins. Þeir fara með ákveðin verkefni til að skoða og vinna með, auk þess sem þeir skipuleggja samþætt, lýðræðislegt verkefni um málfefni líðandi stundar. Einnig safna þeir gögnum af vettvangi sem nýtt eru í tengslum við vinnu að námsþáttum námskeiðsins. Áhersla er lögð á að skrifin tengist kenningum um nám og kennslu, faggrein, siðfræði og starfskenningu kennaranema. Vettvangsnámshlutinn er einnig hluti af námsvinnunni í bóknámshluta námskeiðsins, þ.e. einstakir námsþættir og vettvangsnámið eiga að mynda eina samofna heild.

Vettvangsnámið dreifist yfir allt skólaárið, allt frá því þegar skólar hefja störf í ágúst þar til skóla lýkur að vori. Mætingaskylda er á námskeiðinu á mánudögum eftir hádegi á Menntavísindasviði eða í rauntíma á neti fyrir þá sem búa að landsbyggðinni utan við Selfoss eða Akranes.

Kennaranemar velja sjálfir hvort þeir fara í launað starfsnám eða ólaunað vettvangsnám:

Launað starfsnám (leiðbeinendur í kennslu). Kennaranemar sem hyggja á launað starfsnám leita sér sjálfir að stöðu og sækja um. Þeir stunda vettvangsnámið  í eigin bekk/námshópum sem þeir eru að kenna.
Í launuðu starfsnámi er hálft starf fullgilt vettvangsnám og kennaranemar sinna bæði störfum umsjónarkennara og kennslu í faggrein/sérhæfingu sinni. Miðað er við að allir kenni að lágmarki 4 kennslustundir á viku í faggrein sinni. Vettvangsnámið er hluti af starfi og fylgir því skólaárinu í grunnskóla viðkomandi.

Ólaunað vettvangsnám. Kennaranemar sem hyggja á ólaunað vettvangsnám geta lagt til hvar þeir vilji stunda sitt vettvangsnám. Í könnun sem send verður út í maí geta þeir óskað eftir borgarhluta/ landsvæði eða skóla.

Á vettvangi skila þeir að jafnaði fjögurra til sex klukkustunda viðveru á dag, 2 – 3 daga í viku, þ.e. 12 klukkustundum á viku. Þar af er miðað við að þeir kenni 8 kennslustundir og þarf kennsla í faggrein að vera minnst 4 kennslustundir á viku. Einnig þarf nemi að hafa tækifæri til að kynnast hlutverki umsjónarkennara.

Vettvangsnámstímabilið í ólaunuðu vettvangsnámi fylgir háskólaárinu.

X

Kennsla í margbreytilegum nemendahópi (KME115F, MAL102F)

Markmið námskeiðsins er að starfandi kennarar og kennaranemar eflist í að nýta eigin auðlindir í vinnu með margbreytilegum nemendahópum.  Byggt er á kennslufræði menntunar fyrir alla (inclusive pedagogy) og kennslufræði nýsköpunarmenntar þar sem lögð er áhersla á heildstæða og skapandi nálgun við undirbúning og skipulag kennslu og að nýta auðlindir nemenda.

Viðfangsefni
Námskeiðið byggir á hugmyndafræði menntunar fyrir alla og nýsköpunar- og frumkvöðlamenntunar. Fjallað verður um mismunandi vinnubrögð og kynntir kennsluhættir og kennsluaðferðir sem hafa reynst vel í fjölbreyttum nemendahópum. Áhersla er á kennsluhætti og kennsluaðferðir nýsköpunarmenntar, samvirks náms, altæka hönnun náms, fjölmenningarlega kennslu og listrænar og skapandi aðferðir. Fjallað verður um samstarf við foreldra og aðrar starfsstéttir er starfa við eða tengjast skólastarfi. Þátttakendur skilgreina og þróa eigin starfskenningu.

Vinnulag
Námskeiðið er skipulagt sem blandað nám, bæði fjarnám og staðnám. Kennslan fer fram bæði í staðlotum og staðtímum milli staðlota og á netinu. Námskeiðinu er skipt upp í fjórar námslotur (tímabil) sem eru skipulagðar út frá ákveðnum þemum. Þau tengjast öll kennslu í margbreytilegum nemendahópi og eru: hugmyndafræði menntunar fyrir alla og nýsköpunarmenntar, fagmennska og forysta í kennslu margbreytilegra nemendahópa, kennsluhættir í margbreytilegum nemendahópum og samstarf í skóla fyrir alla. Hver námslota stendur yfir í þrjár til fjórar vikur. Kennsla og nám verður í formi fyrirlestra, umræðna í tímum og á Canvas, stuttra verkefna í tímum og á Canvas og verkefna með formlegum skilum. Námskeiðið byggir á sjálfstæðri vinnu, ábyrgð og þátttöku nemenda.

Gert er ráð fyrir 80% þátttöku í virkni á námskeiðinu (þátttaka og skil verkefna). 

X

Nám og kennsla: Að mæta sérþörfum (KME115F, MAL102F)

Meginviðfangsefni námskeiðsins eru kennsluhættir og námsaðstæður sem miða að því að efla árangur fjölbreyttra nemendahópa, huga að styrkleikum þeirra og veikleikum í skóla án aðgreiningar með manngildi, lýðræði og félagslegt réttlæti að leiðarljósi. Fjallað er um algengustu sérþarfir nemenda og sérstök áhersla lögð á árangursríkar (gagnreyndar) leiðir til að mæta margbreytilegum þörfum nemenda og efla þá í námi, meðal annars til að draga úr vanda varðandi lestrarnám, hegðun, líðan, einbeitingu, ofvirkni og einhverfu. Samhliða er rætt um mikilvægi þess að hafa hæfileika og styrkleika nemenda ávallt í forgrunni og aðgreina erfiðleika frá eiginleikum einstaklinga. Einnig er fjallað um fjölmenningarkennslu og kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku. Kynntar eru helstu aðferðir við bekkjarstjórnun og einstaklingsmiðuð úrræði til að bæta hegðun, félagsfærni, líðan og námsárangur fjölbreytts hóps nemenda. Fjallað er um þverfaglegt samstarf, teymisvinnu og samvinnu við foreldra barna með sérþarfir. Umfjöllunarefni námskeiðsins grundvallast á hugmyndafræði skóla án aðgreiningar og rannsóknum á því sem vel hefur gefist við að mæta fjölbreytilegum nemendahópi, með það að markmiði að veita öllum nemendum jafngild tækifæri í námi.

X

Nám og kennsla - vettvangsnám á yngsta stigi grunnskóla (GKY401F)

Meginviðfangsefni námskeiðsins er vettvangsnám á yngsta stigi grunnskóla. Lögð er áhersla á að nemar prófi sig í kennslu og fái tækifæri til að ræða, meta ígrunda og þróa kennslu sína. Þeir þróa kennsluáætlun byggða á aðalnámskrá grunnskóla og skólanámskrá. Þeir greina atvik úr kennslu sinni og draga lærdóm af þeim. Þeir skoða fjölbreyttar kennsluaðferðir og beita þeim í kennslu á vettvangi.

Nemendur eru á vettvangi allt misserið á báðum námskeiðum (KME301F Nám og kennsla - fagmennska í starfi og GKY401F Nám og kennsla - vettvangsnám á yngsta stigi grunnskóla) og mæta reglulega í kennslustundir í háskólanum. Byggt er á fyrirlestrum, umræðum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við vettvangsnámið. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr skólastarfi. Kennaranemar lesa valdar greinar og rannsóknir sem tengjast námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér.

Vinnulag
Vettvangsnámið dreifist yfir allt skólaárið, allt frá því þegar skólar hefja störf í ágúst þar til skóla lýkur að vori. Mætingaskylda er á námskeiðinu á mánudögum eftir hádegi á Menntavísindasviði eða í rauntíma á neti fyrir þá sem búa á landsbyggðinni utan við Selfoss eða Akranes.

X

Samstarf á mótum skólastiga (KME004F)

Viðfangsefni á námskeiðinu eru hugmyndafræði og rannsóknir á námi barna þegar þau fara á milli skólastiga leikskóla, grunnskóla og frístundar. Skoðað verður hvað hugtökin þáttaskil (e. transition)samfella (e. continiuity) í námi barna og skólafærni (e. schoolreadiness) fela í sér. Byggt er á ólíkum sjónarhornum barna, foreldra og kennara. Rýnt verður í þætti, s.s. námskrár, viðhorf og hefðir sem hafa áhrif á þróun skólastarfs. Fjallað verður um fjölbreyttar námsleiðir barna á þessum tímamótum og kynntar verða nálganir í námi og kennslu sem byggja á rannsóknum og virkni barna með áherslu á leik, könnunaraðferð, (e. project approach), leik með einingakubba og heimspeki með börnum.

X

Stærðfræðimenntun á yngsta- og miðstigi grunnskóla (GKY402F)

Gert er ráð fyrir að vinna í námskeiðinu sé samofin vettvangsnámi í öðrum námskeiðum, þar sem áhersla er á að nemendur nýti það sem þeir læra í námskeiðinu á vettvangi ásamt því að leggja mat á eigin kennslu og nám nemenda sinna. Starfandi kennarar geta sótt námskeiðið ef þeir hafa kost á því að vinna verkefni með eigin nemendum. Meðal þess sem fjallað er um á námskeiðinu og nemendur munu fást við er:

  • Stærðfræðinám og kennsla í 1.-7. bekk
  • Lestur og ígrundun rannsókna á stærðfræðinámi með tilliti til eigin náms og kennslu
  • Leiðir sem efla hugtakaskilning og sköpun barna
  • Leiðsagnarmat í stærðfræðinámi
  • Verkefnavinna og sameiginleg ígrundun í kennslustundum
  • Notkun upplýsingatækni í stærðfræðikennslu 

Vinnulag
Nemendur taka þátt vikulegum kennslustundum þar sem rætt er um lesefni og fyrirlestra sem er aðgengilegt á námsvef. Í vikulegum kennslustundum eru einnig unnin stærðfræðiverkefni sem efla skilning kennaranema á stærðfræðinámi. Í staðlotum er unnið verklega og gert ráð fyrir virkri þátttöku. Bókin Mathematical Mindset er grunnlesefni og kynnast kennaranemar mikilvægi vaxtarhugarfars, verðugra verkefna og sköpunar fyrir stærðfræðinám.

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá

Hafðu samband

Kennsluskrifstofa Menntavísindasviðs

1. hæð, Stakkahlíð – Enni
s. 525 5950 mvs@hi.is

Opið kl. 8.15 – 15.00 alla virka daga

Fylgstu með Menntavísindasviði

 Instagram   Youtube 
 Facebook

Stakkahlíð

Hjálplegt efni

Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.