Kennsla upplýsingatækni og miðlunar, MT


Kennsla upplýsingatækni og miðlunar
MT gráða – 120 einingar
Námið býr nemendur undir kennslu í upplýsingatækni og miðlunar í grunnskóla. Námið er opið þeim sem hafa lokið B.Ed.-prófi í grunnskólakennslu með áherslu á upplýsingatækni eða BA/BS-prófi í skyldum greinum. Grunnskólakennarar með leyfisbréf geti sótt námið óháð sérhæfingu í fyrra námi.
Nemendur ljúka MT gráðu án þess að skrifa 30 eininga lokaverkefni.
Skipulag náms
- Haust
- Menntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytinga
- Nám og kennsla: Að mæta sérþörfum
- Óháð misseri
- Hönnun námsefnis og stafræn miðlun
- Upplýsingatækni í menntun og skólaþróun
- Loftslagsbreytingar og menntunB
- Inngangur að megindlegum rannsóknaraðferðumB
- Inngangur að eigindlegum rannsóknaraðferðumB
- Rými til sköpunar og samþættingar í skólastarfi: Stærðfræði, náttúrugreinar og upplýsingatækniE
Menntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytinga (KME110F)
Fjallað verður um hugtakið sjálfbær þróun og meginhugmyndir alþjóðlegra sáttmála um sjálfbærni. Tekin verða dæmi af ýmsum vandamálum er tengjast umhverfi og náttúru, s.s. loftslagsmálum, tegundafækkun, jarðvegseyðingu og mengun. Lögð verður áhersla á að greina vandamál úr umhverfi nemenda með áherslu á að finna mögulegar lausnir. Fjallað verður um hlutverk kennara í að vinna með ágreiningsmál og hvernig þeir geta kennt börnum að greina vanda, meta upplýsingar og setja fram hugsanlegar lausnir. Þátttakendur lesi og noti rannsóknir á sjálfbærnimenntun. Einnig munu þátttakendur skoða eigin viðhorf til sjálfbærrar þróunar, gildi sín og meta eigin hegðun.
Skyldumæting er í staðlotur samkvæmt kennslualmanaki Menntavísindasviðs.
Nám og kennsla: Að mæta sérþörfum (KME103F)
Meginviðfangsefni námskeiðsins eru kennsluhættir og námsaðstæður sem miða að því að efla árangur fjölbreyttra nemendahópa, huga að styrkleikum þeirra og veikleikum í skóla án aðgreiningar með manngildi, lýðræði og félagslegt réttlæti að leiðarljósi. Fjallað er um algengustu sérþarfir nemenda og sérstök áhersla lögð á árangursríkar (gagnreyndar) leiðir til að mæta margbreytilegum þörfum nemenda og efla þá í námi, meðal annars til að draga úr vanda varðandi lestrarnám, hegðun, líðan, einbeitingu, ofvirkni og einhverfu. Samhliða er rætt um mikilvægi þess að hafa hæfileika og styrkleika nemenda ávallt í forgrunni og aðgreina erfiðleika frá eiginleikum einstaklinga. Einnig er fjallað um fjölmenningarkennslu og kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku. Kynntar eru helstu aðferðir við bekkjarstjórnun og einstaklingsmiðuð úrræði til að bæta hegðun, félagsfærni, líðan og námsárangur fjölbreytts hóps nemenda. Fjallað er um þverfaglegt samstarf, teymisvinnu og samvinnu við foreldra barna með sérþarfir. Umfjöllunarefni námskeiðsins grundvallast á hugmyndafræði skóla án aðgreiningar og rannsóknum á því sem vel hefur gefist við að mæta fjölbreytilegum nemendahópi, með það að markmiði að veita öllum nemendum jafngild tækifæri í námi.
Hönnun námsefnis og stafræn miðlun (SNU007M)
Á námskeiðinu verður unnið að hugmyndum, miðlun og efnisgerð á opinn og skapandi hátt. Nemendur og kennarar ræða leiðir til að búa til og þróa margbreytilegt efni til nota í námi og kennslu. Farið verður yfir undirstöðuatriði námsefnisgerðar, þarfagreiningu og hönnunarferli með áherslu á efnisöflun, efnisskipan, notendaskil, gagnvirkni, yfirbragð og nýja miðla, meðal annars í ljósi fræðikenninga um nám og kennslu. Sérstakri athygli verður beint að efnisbyggingu, samspili miðla, yfirbragði efnis, gagnvirkni og notendaskilum. Farið verður yfir helstu þætti miðlunar og bent á úrval verkfæra til hljóðvinnslu, myndvinnslu og miðlunar en ekki lögð áhersla á verkfærakennslu. Auk hefðbundinna aðferða við hönnun námsefnis og gagnvirkra námsgagna verður bent á möguleika fólgna í samvinnu og lausnaleit (prójekt-vinnu) við efnisgerð og farið yfir kosti fólgna í opnu menntaefni og endurblöndun efnis. Nemendur eiga val um viðfangsefni í efnisgerð, efnistök og vinnulag. Nemendur leggja drög að eða móta námsefni eða sagnaefni til nota í uppeldis- eða skólastarfi, oft með stærri verk í huga. Með efnisgerð og áætlunum á námskeiðinu má leggja grunn að lokaverkefnum í meistaranámi. Einnig má þegar svo ber undir leggja drög að þróunarstarfi, samstarfi og styrkumsóknum.
Upplýsingatækni í menntun og skólaþróun (SNU007F)
Í námskeiðinu er fjallað um:
- áhrif upplýsingatækni á menntun og skólastarf
- námskrá og stefnumótun á sviði upplýsingatækni í skólastarfi
- hugtök, kenningar og rannsóknir sem tengjast notkun upplýsingatækni í námi og kennslu
- innleiðingu tölva og upplýsingatækni í skólastarf
- kennsluhætti, símenntun kennara, hugbúnað og stafrænt námsefni
- stafræna hæfni nemenda og kennara og læsi á upplýsingar, miðla, tölvur og tækni
- hlutdeild upplýsingatækni í lífi fólks innan og utan skóla
Vinnulag:
Lestur og umræða um námskrá og stefnu, fræði, nýjar rannsóknir og athuganir á vettvangi. Þátttakendur vinna einir eða í smærri hópum að efnissöfnun og kynningum á efni sem tengist áhugasviði þeirra. Þeir miðla hugmyndum sínum og reynslu af notkun upplýsingatækni í námi og kennslu og leggja sitt af mörkum við að byggja upp öflugt náms- og fagsamfélag.
Loftslagsbreytingar og menntun (SNU203F)
Fjallað verður um orsakir og afleiðingar loftslagsbreytinga eins og þær birtast í náttúrunni heima og á heimsvísu. Tekin verða dæmi af mengun lands og sjávar og sjónum beint að aðgerðum til að vernda náttúruna, endurheimta fyrri landgæði og stuðla að kolefnishlutlausu spori landsins .
Fjallað verður um álitamál tengd loftlagsbreytingum og tekin dæmi af hvernig má vinna með ólíkar hliðar loftslagsbreytinga í skólastarfi í náttúrufræði, stærðfræði og upplýsingatækni.
Þátttakendur vinna verkefni er tengjast aldurshópi að eigin vali, sem eru ýmist einstaklings-, para- eða hópverkefni.
Inngangur að megindlegum rannsóknaraðferðum (MVS213F, MVS212F)
Markmiðið er að nemendur
- hafi innsýn í megindlega aðferðafræði á sviði rannsókna í uppeldis- og menntunarfræði
- þekki helstu rannsóknaraðferðir og hugtök sem þeim tengjast
- geti beitt algengum rannsóknaraðferðum og þannig aflað gagna, unnið úr þeim og túlkað á agaðan og viðurkenndan hátt
- séu færir um að rýna í rannsóknir og nýta sér niðurstöður þeirra
- hafi tileinkað sér rannsakandi hugarfar og gagnrýna hugsun
Kynnt verða algeng rannsóknarsnið megindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemendur nota tölvuforrit til að reikna algenga tölfræðistuðla og halda utan um og vinna úr gögnum. Sérstök áhersla verður lögð á þjálfun í túlkun matsniðurstaðna sem líklegt er að verði á vegi þeirra hópa sem taka námskeiðið.
Fyrirlestrar á vef, umræður og verkefni. Námskeiðið er kennt vikulega en fyrirlestrar verða eingöngu á vef. Verkefnatímar verða ekki teknir upp. Ekki er mætingarskylda í námskeiðið en nemendur eru hvattir til að mæta í kennslustundir.
Nemendur verða að hafa Jamovi (sjá nýjustu útgáfu á https://www.jamovi.org) uppsetta á fartölvum sem þeir mæta með í kennslustundir.
Lesefni: Kaflar 1-11 í Navarro DJ and Foxcroft DR (2019). Learning statistics with jamovi: a tutorial for psychology students and other beginners. (Version 0.70). DOI: 10.24384/hgc3-7p15. Rafræn ókeypis kennslubók sem hala má niður á síðunni https://www.learnstatswithjamovi.com.
Inngangur að eigindlegum rannsóknaraðferðum (MVS213F, MVS212F)
Fjallað verður um ólíkar rannsóknarstefnur og tengsl þeirra við uppbyggingu og útfærslu rannsókna. Einnig um siðfræði vísinda með áherslu á hagnýt atriði og um gæðahugtök, s.s. réttmæti, trúverðugleika og ólíka sýn á þessi hugtök. Í námskeiðinu beinist athyglin að eigindlegum aðferðum. Kynnt verða algeng rannsóknarsnið eigindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemar fá nokkra þjálfun í að beita algengum aðferðum rannsókna m.a. vettvangsathugunum, viðtölum og heimildaathugunum. Þá vinna nemar með öflun, skráningu, flokkun, greiningu og túlkun gagna, og með framsetningu þeirra og gera heildstæða rannsóknaræfingu.
Fyrirlestrar, umræður og verkefni. Skyldumæting er í staðlotum.
Rými til sköpunar og samþættingar í skólastarfi: Stærðfræði, náttúrugreinar og upplýsingatækni (SNU202M)
Á námskeiðinu kynnast þátttakendur leiðum til vinna með sköpun í kennslu stærðfræði, náttúrugreina og upplýsingatækni ásamt því að auka þekkingu sína og skilning á völdum viðfangsefnum þessara sviða. Jafnframt verður unnið með leiðir til að samþætta þessi svið í skólastarfi.
Náttúrufræðileg viðfangsefni námskeiðsins eru stjörnufræði og þróun lífs. Fjallað verður um sögu alheimsins og myndun sólkerfisins og jarðarinnar, ekki síst með áherslu á það hvernig efnafræðilegar og eðlisfræðilegar aðstæður mynduðust fyrir kviknun lífs og viðhaldi þess. Kynntar verða hugmyndir um uppruna lífs og fjallað um sögu lífs á jörðinni.
Stærðfræðileg viðfangsefni námskeiðsins eru annars vegar úr hnitarúmfræði og hins vegar verður fjallað um grundvallaratriði um reiknirit, svo sem notkun breytistærða, falla, lykkja og rökskilyrða í forritun. Kynnt verður hvernig þessi stærðfræði nýtist til þess að smíða einföld grafísk líkön í tölvu, svo sem tölvuleiki eða listaverk.
Áherslur í upplýsingatækni og miðlun snúa meðal annars að möguleikum til að efla nám og kennslu ungmenna með skapandi þverfaglegum verkefnum og nýtingu tækni og búnaðar (s.s. þrívíddarprenturum) sem finna má í nýsköpunarsmiðjum (gerverum, snillismiðjum; e. makerspace, Fablabs). Einnig verða kynnt stafræn umhverfi til sköpunar, samstarfs og leikja með forritun og tilraunum. Nemendur kynna sér rannsóknir og þróunarstarf á þessu sviði hér á landi og erlendis með lestri fræðigreina, vettvangsheimsóknum og viðfangsefnum í nýsköpunarsmiðjum, til dæmis tengdum umhverfismálum og plastmengun.
- Haust
- Nám og kennsla - fagmennska í starfi
- Vor
- Nám og kennsla – vettvangsnám í faggrein
- Óháð misseri
- Nám og kennsla á Netinu
Nám og kennsla - fagmennska í starfi (KME301F)
Meginviðfangsefni námskeiðsins er fagmennska í starfi kennara og hlutverk, ábyrgð og skyldur umsjónarkennara sem og fagreinakennara. Sérstök áhersla er lögð á að styðja kennaranema í að móta heildstæða starfskenningu, efla fagvitund, skerpa sýn á kennarastarfið og skilning á þeim skuldbindingum sem starfið felur í sér. Á námskeiðinu er áhersla lögð á tengsl kennslu og náms og það hlutverk kennarans að byggja upp öflugt og skapandi námsumhverfi. Fjallað verður um siðfræði kennarastarfsins, manngildissjónarmið og ábyrgð kennara, gagnvart velferð barna og foreldrasamstarfi. Meðal viðfangsefna verða sjálfsrýni og sjálfsmat, ígrundun eigin kennslu og í samræðu við nema úr öðrum faggreinum. Auk þess er lögð áhersla á samskiptafærni, m.a. í samskiptum við foreldra, viðtalstækni, teymiskennslu og teymisvinnu og mismunandi leiðir til bekkjarstjórnunar.
Vinnulag byggir á fyrirlestrum, umræðum, málstofum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við vettvangsnám. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr skólastarfi. Kennaranemar lesa valdar greinar og rannsóknir sem tengjast námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér. Kennaranemar vinna námsþáttaverkefni og halda rannsóknardagbók a.m.k. einu sinni í viku meðan á vettvangsnámi stendur. Kennaranemar vinna að jafnaði saman í teymi á vettvangi í samstarfi við æfingakennara og kennara námskeiðsins. Þeir fara með ákveðin verkefni til að skoða og vinna með, auk þess sem þeir skipuleggja samþætt, lýðræðislegt verkefni um málfefni líðandi stundar. Einnig safna þeir gögnum af vettvangi sem nýtt eru í tengslum við vinnu að námsþáttum námskeiðsins. Áhersla er lögð á að skrifin tengist kenningum um nám og kennslu, faggrein, siðfræði og starfskenningu kennaranema. Vettvangsnámshlutinn er einnig hluti af námsvinnunni í bóknámshluta námskeiðsins, þ.e. einstakir námsþættir og vettvangsnámið eiga að mynda eina samofna heild.
Vinnulag
Vettvangsnámið dreifist yfir allt skólaárið, allt frá því þegar skólar hefja störf í ágúst þar til skóla lýkur að vori. Mætingaskylda er á námskeiðinu á mánudögum eftir hádegi á Menntavísindasviði eða í rauntíma á neti fyrir þá sem búa að landsbyggðinni utan við Selfoss eða Akranes.
Kennaranemar velja sjálfir hvort þeir fara í launað starfsnám eða ólaunað vettvangsnám:
Launað starfsnám (leiðbeinendur í kennslu)
Nemendur sem hyggja á launað starfsnám leita sér sjálfir að stöðu og sækja um.
Þeir kennaranemar sem verða í launuðu starfsnámi (í starfi sem leiðbeinendur) taka vettvangsnámið í eigin bekk/námshópum sem þeir eru að kenna. Í launuðu starfsnámi er hálft starf fullgilt vettvangsnám. Þeir þurfa að sinna bæði störfum umsjónarkennara og kennslu í faggrein/sérhæfingu sinni. Miðað er við að allir kenni að lágmarki 4 kennslustundir á viku í faggrein sinni. Vettvangsnámið er hluti af starfi og fylgir því skólaárinu í grunnskóla viðkomandi.
Ólaunað vettvangsnám
Nemar sem hyggja á ólaunað vettvangsnám geta lagt til hvar þeir vilji stunda sitt vettvangsnám. Í könnun sem send verður út í maí geta þeir óskað eftir svæði eða skóla.
Nemar þurfa að skila fjögurra til sex klukkustunda viðveru að jafnaði á dag, 2 – 3 daga í viku, þ.e. 12 klukkustundum á viku. Þar af er við það miðað að þeir kenni 8 kennslustundir og þarf kennsla í faggrein að vera minnst 4 kennslustundir á viku og nemi þarf að hafa tækifæri til að kynnast hlutverki umsjónarkennara.
Vettvangsnámstímabilið í ólaunuðu vettvangsnámi fylgir háskólaárinu.
Nám og kennsla – vettvangsnám í faggrein (FAG401F)
Meginviðfangsefni námskeiðsins er vettvangsnám í faggrein. Lögð er áhersla á að nemar prófi sig í kennslu og fái tækifæri til að ræða, meta, ígrunda og þróa kennslu sína. Þeir þróa kennsluáætlun byggða á aðalnámskrá grunnskóla og skólanámskrá. Þeir greina atvik úr kennslu sinni og draga lærdóm af þeim. Þeir skoða fjölbreyttar kennsluaðferðir og beita þeim í kennslu á vettvangi.
Vinnulag: Nemendur eru á vettvangi alla önnina á báðum námskeiðum og mæta reglulega í kennslustundir í háskólanum. Byggt er á fyrirlestrum, umræðum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við námskeiðið Nám og kennsla - fagmennska. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér.
Nám og kennsla á Netinu (SNU008M)
Inntak, viðfangsefni og vinnulag:
Fjallað er um miðlun, framsetningu og skipulag námsefnis og námsumhverfis á Neti, í fræðilegu samhengi. Einnig er fjallað um hugmyndir og kenningar sem tengja má netnámi og uppbyggingu námssamfélaga. Áhersla er á félags- og menningarlega sýn (socio-cultural approach), dreifða vitsmuni (distributed cognition) og nám sem tengja saman þekkingu og að tengjast hvert öðru (connectivism) með aðstoð netmiðilsins. Áhersla er á gerð og vinnu með opin námsgögn og opinn hugbúnað sem hentar skólastarfi. Þá er athygli beint að möguleikum og vandamálum tengdum netnotkun í lífi og skólastarfi og úrlausnum þeirra. Nemendur byggja upp stafræna verkmöppu (eportfolio). Námskeiðið er verkefnamiðað og að miklu leyti með fjarnámssniði.
Leitast verður við að nota kennsluaðferðir sem byggja á veftækni og nýjum netverkfærum og þjálfa þannig nemendur til vinnu í slíku umhverfi.
- Óháð misseri
- Fræðslustarf, nýsköpun og atvinnulífE
- Eflandi kennslufræðiV
- Tölvutengt tungumálanám – upplýsingartækni og kennsla erlendra tungumálaV
- Fjarnám og kennslaV
- Leiksmiðja, sköpun í stafrænum heimi.E
Fræðslustarf, nýsköpun og atvinnulíf (UME207F)
Markmið námskeiðsins er að efla nýsköpun og framtakssemi hjá kennurum, stjórnendum og öðrum leiðtogum í skóla- og frístundastarfi. Ennfremur að koma til móts við einstaklinga og stofnanir sem vilja fara út í nýsköpun í skóla- og frístundastarfi og í atvinnulífi. Unnið verður bæði með nýsköpunar- og frumkvöðlamennt hérlendis og erlendis og möguleika á annarri nýbreytni í skóla- og frístundastarfi. Kennslufræði nýsköpunar- og frumkvöðlamenntar er kynnt. Dregin verður upp mynd af því sem vel er gert hérlendis á sviðinu. Á námskeiðinu verður leitast við að hreyfa við þátttakendum þannig að þeir nýti eigin þekkingu og mannauð í skólasamfélaginu og samfélaginu til að skapa raunveruleg verkefni sem nýtast í starfi. Leitast verður við að gera einstaklinga færa um að annast fræðslu fyrir þá sem hafa áhuga á að stunda nýsköpun í skólum og eða á vinnumarkaði. Þátttakendur geti skipulagt þróunarstarf í skólum og mótað þróunaráætlanir.
Eflandi kennslufræði (UME101M)
Markmið námskeiðsins er að veita fólki í skólum og öðru fræðslustarfi tækifæri til að öðlast haldbæran skilning á hugmyndafræði eflandi kennslufræði og einkennum eflandi skólasamfélags.
Inntak / viðfangsefni
Grunnur að merkingarbæru námi er að efla þá sem námið stunda. Það er að segja að aðstoða þá við að verða að „meira manni" eftir að upplifa áskoranir námsins og ná að nýta þá reynslu í eigin þágu og annarra.
Eflandi kennslufræði er vaxandi afl í menntavísindum með bæði fræðilegt og faglegt gildi. Á námskeiðinu verða hugmyndir um sjálfskilning og sjálfsákvörðunarrétt tengdar við umfjöllun um skapandi skólastarf í anda gagnrýnnar og eflandi kennslufræði. Einkenni eflandi skólasamfélags verður skoðað út frá kennslufræðilegu sjónarhorni.
Skoðuð verða dæmi um eflandi kennsluhætti út frá fræðilegu sjónarhorni og rýnt í þau út frá hugmyndafræði um eflandi skólasamfélag.
Námskeiðið er byggt upp á undirbúnum umræðutímum og verkefnum. Reglulegir fundir verða á tveggja vikna fresti, annaðhvort á neti eða staðbundið.
Tölvutengt tungumálanám – upplýsingartækni og kennsla erlendra tungumála (LVG206M, ÍET201M)
Meginmarkmið námskeiðsins er að
- veita þátttakendum yfirsýn yfir og skilning á helstu kenningum og rannsóknum um tölvutengt tungumálanám.
- þátttakendur öðlist þekkingu og kunni skil á helstu kenningum og rannsóknum um rafræn læsi (digital literacies) og tungumálnam.
- þátttakendur fái tækifæri til að tengja saman fræðilega þekkingu og hagnýta reynslu af tölvu og upplýsingartækni í tungumálakennslu.
Viðfangsefni:
Á námskeiðinu verður fjallað um áhríf upplýsingartækni á uppeldi, menntun og skólastarf. Lögð er áhersla á að fjalla um tölvustutt tungumála nám (CALL - Computer Assisted Language Learning) og áhríf og þróun þess síðastliðin 30 ár. Einnig verður fjallað um kenningar og rannsóknir er varðar notkun upplýsingartækni í tungumálanámi í skólastofunni í grunn- og framhaldsskóla. Ýmis forrit verða kynnt og skoðað hvernig má nýta þau til að þjálfa mismunandi þættir tungumálsins.
Vinnulag:
Kennslan fer að jafnaði fram í fyrirlestrum og umræðum. Nemendur fá margvísleg verkefni til úrlausnar og skila úrlausnum ýmist munnlega eða skriflega. Einnig munu þátttakendur vinna einir eða í hópum að efnissöfnun og kynningum á efni sem tengist áhugasviði þeirra. Efnið gætu tengst nýtingu tölvu og veraldarvefsins i tungumálakennslu, rannsóknar- og þróunarstörfum, fjarkennslu erlendra tungumála, gerð rafræns námsefnis til notkunar í tungumálakennslu, vendinám, notkun spjaldtölvur í tungumálanámi o.fl. Nemendur vinna og skila rafræn ferilsmöppu.
Fjarnám og kennsla (SNU008F)
Á námskeiðinu verða hugtökin fjarnám- og fjarkennsla og tengd hugtök s.s. blandað nám, dreifnám og netnám skoðuð og skilgreind. Skoðaðar verða hugmyndir og kenningar sem tengjast sviðinu og hvernig þær hafa þróast frá áherslu á sjálfstætt nám (independent study) á tímum bréfaskóla til áherslu á samskipti og uppbyggingu sameiginlegrar þekkingar á tímum netvæðingar og alþjóðahyggju. Fjallað verður um erlendar og innlendar rannsóknir á fjarnámi og -kennslu. Athygli er beint að stöðu fjarnáms á mismunandi skólastigum, fjarnemum og þörfum þeirra, kennsluháttum með nýtingu mismunandi miðla og hönnun fjarnámsáfanga m.t.t. alþjóðlegra viðmiða og gæðastaðla.
Vinnulag
Fyrirlestrar, lestur og umræður um fræði og nýjar rannsóknir; athuganir á mismunandi fjarnáms- og kennsluaðferðum og tæknibúnaði til fjarkennslu á mismunandi skólastigum. Meðal annars verður skoðað og rætt um það fjarnám sem þátttakendur hafa reynslu af sem fjarnemar og/eða kennarar, nemendur gera eitt minna hópverkefni (lausnaleitarnám) og annað stærra einstaklingsverkefni.
Leiksmiðja, sköpun í stafrænum heimi. (LVG205M)
Markmiðið með Leiksmiðjunni, sköpun í stafrænum heimi er að skapa vettvang fyrir gagnvirka leiklist og er námskeiðinu ætlað að vera lifandi leikhúsvettvangur og miðstöð tilrauna fyrir hvers kyns leiklist sem tengist netmiðlum allt frá lifandi uppákomum til tilbúinna mynd- og hljóðverka.
Áhersla er á stafrænar sviðslistir þ.m.t. leiksýningar og hljóðverk þar sem tölvutækni er notuð til að miðla verki eða hluta af verki.
Áhersla er lögð á að nemendur öðlist skilning og þekkingu á starfi leiklistarkennara bæði fræðilega og verklega. Kynntar verðar nýjustu rannsóknir og fræðigreinar og verkefni unnin í tengslum við það.
Fyrirkomulag: Námskeiðið er kennt í nokkrum lotum.
Hafðu samband
Kennsluskrifstofa
1. hæð, Stakkahlíð – Enni
Opið kl. 8.15 – 15.00 alla virka daga
Sími 525 5950
mvs@hi.is

Hjálplegt efni
Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.