Show Rannsóknarmiðstöðvar og rannsóknaseturShow Rannsóknarmiðstöð um markaðs- og þjónustufræði Rannsóknarmiðstöð markaðs- og þjónustufræði Rannsóknarmiðstöð um markaðs- og þjónustufræði (Center of Marketing and Service Management – CMS) er vísindaleg rannsóknastofnun sem starfrækt er af Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands (University of Iceland, School of Business). Rannsóknarmiðstöðin er vettvangur fyrir fræðilegar og hagnýtar rannsóknir á sviði markaðs- og þjónustufræða. Markmiðið er að efla þekkingu á fræðasviðinu með því að vinna að vönduðum rannsóknum og miðla niðurstöðum á viðeigandi vettvangi. Ennfremur að þjóna íslensku atvinnulífi með vönduðum rannsóknum er tengjast fyrirtækjum og stofnunum og starfsumhverfi þeirra. Forstöðumaður Þórhallur Örn Guðlaugsson prófessor Show Hlutverk Hlutverk rannsóknarmiðstöðvarinnar er að: Stunda fræðilegar rannsóknir er tengjast stefnumótun markaðsmála, vörumerkjastjórnun, markaðshneigð, siðferðilegum álitaefnum í markaðsstarfi, kauphegðun, þjónustustefnu, þjónustuþróun, þjónustuumhverfi og þjónustugæðum. Stunda hagnýtar rannsóknir er tengjast markaðsgreiningu, vörumerkjagreiningu, atvinnuvegagreiningu, samkeppnisgreiningu, þjónustugreiningu og þjónustugæðum. Vera bakland kennslu í markaðs- og þjónustufræðum og eiga þátt í þjálfun nemenda í rannsóknum á sviðinu. Sinna tengslum og efla samstarf við innlenda og erlenda rannsóknaraðila á sviði markaðs- og þjónustufræða. Standa fyrir viðburðum, s.s. málfundum og ráðstefnum á sviði markaðs- og þjónustufræða. Rannsóknarmiðstöðin hefur sjálfstæða strauma sem gerir það mögulegt að hægt er að sinna tiltölulega ólíkum viðfangsefnum innan fræðasviðsins. Forstöðumaður er dr. Þórhallur Örn Guðlaugsson prófessor, th@hi.is Sjá nánar á markor.is/cms. Show Ráðgjafaráð Í vinnslu Show Rannsóknarmiðstöð um nýsköpun og alþjóðaviðskipti Rannsóknarmiðstöð um nýsköpun og alþjóðaviðskipti Rannsóknarmiðstöð um nýsköpun og alþjóðaviðskipti (Icelandic research center for Innovation and Globalization) er vettvangur rannsókna- og þróunarstarfs á sviði nýsköpunar og alþjóðaviðskipta. Lögð er áhersla á að þær rannsóknir sem unnar verða innan miðstöðvarinnar skili af sér niðurstöðum sem munu miðla aukinni þekkingu til fræðaheimsins, bæði hérlendis og erlendis. Einnig að niðurstöðurnar skili aukinni þekkingu inn í íslenskt þjóðlíf sem meðal annars muni stuðla að meiri og betri kennslu í nýsköpun og alþjóðaviðskiptum. Show Forsvarsmaður Show Hlutverk Hlutverk Rannsóknarmiðstöðvarinnar er í meginatriðum fimmþætt: Að stunda rannsóknir á sviði nýsköpunar og alþjóðaviðskipta í sterkum tengslum við atvinnu- og þjóðlíf og kynna þær Að vera bakland kennslu í nýsköpun og alþjóðaviðskiptum og eiga þátt í þjálfun meistara- og doktorsnema í rannsóknum á sviðinu Að sinna tengslum og efla samstarf við innlenda og erlenda rannsóknaraðila á sviði nýsköpunar og alþjóðaviðskipta Að sinna þjónustuverkefnum á sviði nýsköpunar og alþjóðaviðskipta Að gangast fyrir atburðum sem varða nýsköpun og alþjóðaviðskipti Show Rannsóknarmiðstöð skapandi greina Rannsóknarmiðstöð skapandi greina Rannsóknarmiðstöð um skapandi greinar starfaði á árunum xxxx-20xx og sinnti ýmsum rannsóknar- og þjónustuverkefnum. Árið 20xx var stofnað Rannsóknarsetur skapandi greina í samstarfi Háskólans á Akureryri, Háskólans á Bifröst, Háskólans á Hólum, Háskóla Íslands, og Listaháskóla Íslands. Rannsóknarsetur skapandi greina hefur tekið við verkefnum stofnunarinnar, en vefsíða þess er: https://www.rssg.is Show Rannsóknarmiðstöð stefnu og samkeppnishæfni Rannsóknarmiðstöð stefnu og samkeppnishæfni Rannsóknamiðstöð stefnu og samkeppnishæfni (Center for Strategy and Competitiveness - CSC) er vísindaleg rannsóknastofa og fræðasamfélag á sviði stefnu og samkeppnishæfni sem starfar innan Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands (University of Iceland School of Business). Rannsóknamiðstöðin er vettvangur rannsókna- og þróunarstarfs á sviði stefnumiðaðrar stjórnunar og samkeppnishæfni í víðum skilningi. Hlutverk rannsóknamiðstöðvarinnar er að: Efla rannsóknir á sviði stefnumiðaðrar stjórnunar og samkeppnishæfni í sterkum tengslum við atvinnulífið og samfélagið og kynna þær, Vera bakland kennslu í stefnumiðaðri stjórnun og samkeppnishæfni og vera umgjörð fyrir þjálfun meistara- og doktorsnema í rannsóknum á sviðinu, Byggja upp tengsl og efla samstarf við innlenda og erlenda rannsóknaraðila á sviði stefnu og samkeppnishæfni, Gangast fyrir atburðum, s.s. málstofum og ráðstefnum, sem varða stefnu og samkeppnishæfni. Vera rammi utan um samfélag þeirra sem vilja taka höndum saman um rannsóknir, fræðastarf og þjónustuverkefni á sviði stefnu og samkeppnishæfni. Show Forsvarsmaður Runólfur Smári Steinþórsson, professor Show Ráðgjafarráð Ráðgjafarráð rannsóknarmiðstöðvarinnar skipa: Runólfur Smári Steinþórsson, prófessor (formaður) Gylfi Magnússon, prófessor Hannes Ottósson, lektor Hrönn Ingólfsdóttir, forstöðumaður stefnumótunar og sjálfbærni hjá Isavía Ingibjörg Sigurðardóttir, lektor Háskólanum á Hólum Show Rannsóknir á klasastarfi Innan Rannsóknarmiðstöðvar stefnu og samkeppnishæfni hafa farið fram rannsóknir á klasastarfi allt frá því kennsla hófst í námskeiðinu Samkeppnishæfni við Viðskiptafræðideild árið 2007 á grundvelli alþjóðlegs samstarfs undir forystu Stofnunar Michaels E. Porters við Harvard Business School. Síðan þá hafa nemendur unnið stór verkefni á hverju ári og sumir þeirra hafa skrifað meistararitgerðir um efnið. Dæmi um rannsóknir á klasastarfi af þessu tagi má sjá í grein í Tímariti um viðskipti og efnahagsmál árið 2017 eftir Freyju Gunnlaugsdóttur og Runólf Smára Steinþórsson: Einkenni og áskoranir tónlistarklasa á Íslandi (https://efnahagsmal.is/index.php/efnahagsmal/article/view/a.2017.14.2.2). Dæmi um aðrar klasarannsóknir er grein í Scandinavian Journal of Hospitality and Tourism árið 2018 eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur og Runólf Smára Steinþórsson: Development of micro-clusters in tourism: a case of equestrian tourism in northwest Iceland (DOI: https://doi.org/10.1080/15022250.2018.1497286). Varðandi klasarannsóknir á Íslandi þá var Rannsóknarmiðstöð um stefnu og samkeppnishæfni um skeið í miklu samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Klasasetur Íslands. Dæmi um ritverk frá þeim tíma er bókin Klasar – bók um klasa: Safn greina eftir Runólf Smára Steinþórsson prófessor við Háskóla Íslands, sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands gaf út. Rannsóknarmiðstöð stefnu og samkeppnishæfni er einnig í beinu samstarfi við helstu klasa á Íslandi og skoða þátt þeirra og hlutverk í vistkerfi nýsköpunar á Íslandi. Nýjasta rannsóknin sem unnið er að er alþjóðavæðing íslenska sjávarklasans. Rannsakendur í þeirri rannsókn eru Mads Bruun Ingstrup, lektor, University of Southern Denmark, Torben Damgaard, lektor, University of Southern Denmark og Runólfur Smári Steinþórsson, prófessor, Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Show INNFORM á Íslandi INNFORM stendur fyrir Innovative Forms of Organizing. Um er að ræða alþjóðlega rannsókn á þróun í skipulagi fyrirtækja, stefnu þeirra og starfsáherslum sem unnin var frá University of Warwick undir forystu dr. Andrew Pettigrew, sem nú starfar sem prófessor við Said viðskiptaháskólann, sem er innan Háskólans í Oxford. Andrew Pettigrew gaf leyfi fyrir því að rannsóknarsniðið og INNFORM spurningakönnunin yrði notuð hér á landi. Niðurstöður Innform rannsóknarinnar á Íslandi hafa verið kynntar í tveimur greinum, auk umfjöllunar á Þjóðarspegli. Fyrri greinin birtist í Tímariti stjórnmála og stjórnsýslu haustið 2012: Skipulag íslenskra fyrirtækja 2004 – 2007, eftir Einar Svansson og Runólfur Smári Steinþórsson (Organizational structure in Icelandic companies 2004-2007 | Icelandic Review of Politics & Administration (irpa.is)). Seinni greinin birtist í Tímariti um viðskipti og efnahagsmál vorið 2018: Skipulag fyrirtækja á Íslandi fyrir og eftir hrun, eftir Runólf Smára Steinþórsson, Önnu Marín Þórarinsdóttur og Einar Svansson (DOI: https://doi.org/10.24122/tve.a.2018.15.1.5). Umsjónarmenn Innform rannsóknarinnar á Íslandi eru Runólfur Smári Steinþórsson, prófessor, Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og Einar Svansson, lektor, við Háskólann á Bifröst. Show Stefna í raun og veru "Stefna í raun og veru" stendur fyrir ákveðinn samnefnara og tiltekna áherslu í rannsóknum á stjórnun og stefnumótun ("Strategy as Practice") sem hefur rutt sér til rúms í stefnumótunarfræðunum. Þessi áhersla hefur átt miklu fylgi að fagna í Evrópu og á Norðurlöndunum. Rannsóknarverkefnið "stefna í raun og veru" miðar að því að gera fjölbreyttar raunrannsóknir á stjórnunarháttum, skipulagi og stefnumiðaðri stjórnun fyrirtækja og stofnana hér á Íslandi. Jafnframt er ætlunin að vinna úr raunrannsóknunum framlag til fræðanna um stefnumiðaða stjórnun. Með rannsóknarverkefninu er einnig ætlunin að taka virkan þátt í því alþjóðlega fræðasamfélagi sem er til staðar á sviði stefnumiðaðrar stjórnunar. Sem dæmi um rannsókn og ritverk sem tengist þessari áherslu í rannsóknum má benda á greinina: Stefnu í reynd í litlu íslensku hátæknifyrirtæki, eftir Runólf Smára Steinþórsson og Söndru Margréti Sigurjónsdóttur (DOI: https://doi.org/10.24122/tve.a.2015.12.1.4). Umsjón með rannsóknarverkefninu „Stefna í raun og veru“ hefur Runólfur Smári Steinþórsson, prófessor Show Rannsóknarmiðstöð um viðskiptasiðfræði - Siðvís Rannsóknarmiðstöð um viðskiptasiðfræði - Siðvís Rannsóknarmiðstöð um viðskiptasiðfræði (Center of Business Ethics) er vettvangur rannsókna og fræðslu á sviði viðskiptasiðfræði. Starfsemi Rannsóknarmiðstöðvarinnar fellur undir ábyrgð stjórnar Viðskiptafræðistofnunar. Leiðarljós miðstöðvarinnar er bætt siðferði í viðskiptum á Íslandi. Hlutverk rannsóknarmiðstöðvar er: Vera leiðandi afl í rannsóknum á margvíslegum viðfangsefnum viðskiptasiðfræðinnar Stuðla að bættu viðskiptasiðferði á Íslandi Stuðla að aukinni umræðu um viðskiptasiðfræði Stuðla að fræðslu um viðskiptasiðfræði, bæði innan háskólasamfélagsins sem og atvinnulífsins, m.a. með námskeiðahaldi og útgáfu fræðsluefnis á sviði viðskiptasiðfræði Koma á virkum tengslum við erlendar rannsóknarmiðstöðvar um viðskiptasiðfræði Show Stjórn Stjórn rannsóknarmiðstöðvarinnar skipa: Elmar Hallgríms, lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, stjórnarformaður Ásthildur Otharsdóttir, ráðgjafi Róbert H. Haraldsson, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands Steinunn Bjarnadóttir, forstöðumaður hjá Íslandsbanka og stjórnarformaður Íslandssjóða Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða Vilhjálmur Jens Árnason, ráðgjafi Show Rannsóknasetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi Rannsóknasetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi Stjórn Katrín Jakobsdóttir stjórnarformaður Meðstjórnendur Viðar Lúðvíksson Ásta Dís Óladóttir Show Bækur Sjávarútvegur og eldi Höfundar: Ásta Dís Óladóttir og Ágúst Einarsson Útgefin 2024 Rekstur og hagfræði Höfundur: Gylfi Magnússon Útgefin 2023 Rannsóknir í viðskiptafræði III Ritstjórar: Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, Runólfur Smári Steinþórsson og Þórhallur Örn Guðlaugsson. Útgefin 2022 Rannsóknir í viðskiptafræði II Ritstjórar: Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, Runólfur Smári Steinþórsson og Þórhallur Örn Guðlaugsson. Útgefin 2022 Fisheries and Aquaculture Höfundar: Ágúst Einarsson og Ásta Dís Óladóttir. Útgefin 2021 Rannsóknir í viðskiptafræði I Ritstjórar: Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, Runólfur Smári Steinþórsson og Þórhallur Örn Guðlaugsson. Útgefin 2020 Verkefnastjórnun og verkfærið MS project Höfundur: Eðvald Möller Útgefin 2020 Demystifying Leadership in Iceland: An Inquiry into Cultural, Societal, and Entrepreneurial Uniqueness Höfundar Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Inga Minelgaité, Svala Guðmundsdóttir og Olga Stangej Útgefin 2018 Sterkari í seinni hálfleik Höfundur Árelía Eydís Guðmundsdóttir Útgefin 2017 The Icelandic Financial Crisis: A Study into the World´s Smallest Currency Area Höfundar Ásgeir Jónsson og Hersir Sigurgeirsson Útgefandi Palgrave Macmillan, 2016 Bringing Down the Banking System: Lessons from Iceland. New York: Palgrave Macmillan, 2014. Nánari upplýsingar um bókina fá finna á þessum hlekk: Bringing Down the Banking System. Höf: Anat Admati og Guðrún Johnsen. „The Distorted System: Iceland´s Lessons Yet To Be Learned“ birtist í tímaritinu QFinance. Smellið á þennan hlekk til að hlaða henni niður. Á réttri hillu Höfundur Árelía Eydís Guðmundsdóttir Útgefin 2011 Rannsóknir í markaðsfræði Höfundur Þórhallur Örn Guðlaugsson Útgefin 2009 Að fanga heiminn Höfundur Gunnar Óskarsson Útgefin 2009 Geothermal living Höfundur Örn D. Jónsson Útgefin 2009 Penny for your thoughts! 10 lessons to help you invest in and grow with a creative business Höfundar eru Tobias Nielsén, Dominic Power og Margrét Sigrún Sigurðardóttir. Viðskiptafræðistofnun gefur bókina út og Háskólaútgáfan sér um dreifingu. Show Bækur gefnar út af Viðskipta- og hagfræðideild Háskaleg hagkerfi: Tækifæri og takmarkanir umbóta Dr. Þráinn Eggertsson. Útgefin 2007 Bókin kom upphaflega út á ensku hjá University of Michigan Press (2005). HOLDAFAR - hagfræðileg greining Dr. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir Útgefin 2007 Greinasafn, fyrra bindi. Dr. Ágúst Einarsson Útgefið 2007 Labour Market Adjustments in Europe Ritstjórar: Julián Messina, Claudio Michelacci, Claudio Michelacci og Gylfi Zoega. Útgefið 2006 Verkefni í rekstrarhagfræði Dr. Ágúst Einarsson Útgefin 2006 Developmental Entrepreneurship: Adversity, Risk, and Isolation Ritstjórar: Craig S. Galbraith og Curt H. Stiles Dr. Örn D. Jónsson ásamt Rögnvaldi J. Sæmundssyni sjá grein bls. 217. Útgefin 2006 Stundarhagur Dr. Guðmundur Magnússon Útgefin 2005 Tveir heimar Dr. Þorvaldur Gylfason Rekstrarhagfræði Dr. Ágúst Einarsson er höfundur. Technology in Society - Society in Technology Tæknin í samfélaginu - samfélagið í tækninni. Ritstjórar: Dr. Örn D. Jónsson og Edward H. Huijbens Útgefin 2005 Keynes´s General Theory and Current Views Dr. Guðmundur Magnússon prófessor og Jesper Jespersen prófessor ritstýrðu. Hagræn áhrif tónlistar Dr. Ágúst Einarsson prófessor, höfundur. Nýsköpun staður - stund Dr. Örn Daníel Jónsson prófessor valdi greinarnar. Útgefin 2004 Hættumörk Dr. Guðmundur K Magnússon, tók saman og er einnig höfundur. Útgefin 2004 Heilræði fyrir unga menn í verzlun og viðskiftum Georg H. F. Schrader þýtt hefur Steingrímur Matthíasson Eignastýring Gylfi Magnússon, höfundur. Útgefin 2002 Tækninnar óvissi vegur - Ritgerðasafn Dr. Þráinn Eggertsson tók saman facebooklinkedintwitter