Skip to main content

Reglur nr. 544-2010

Reglur um Tannlækningastofnun Háskóla Íslands, nr. 544/2010

PDF-útgáfa

1. gr.  Almennt.

Tannlækningastofnun Háskóla Íslands er vísindaleg rannsókna- og fræðslustofnun sem starfrækt er af Háskóla Íslands.


Stofnunin heyrir undir Tannlæknadeild á Heilbrigðisvísindasviði og er vettvangur rannsókna- og þróunarstarfs á fræðasviðum tannlækninga.

2. gr.  Hlutverk.

Hlutverk Tannlækningastofnunar er:

  1. að efla tengsl rannsókna og kennslu og samhæfa rannsóknir í tannlækningum sem unnið er að við Háskóla Íslands,
  2. að styðja kennslu og þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum og veita nemendum í framhaldsnámi aðstöðu og búnað til rannsóknarstarfa eftir því sem kostur er, 
  3. að stuðla að samstarfi við innlenda og erlenda rannsóknaraðila á sviði tannlækninga og sterkum tengslum við atvinnu- og þjóðlíf, 
  4. að sinna þjónustuverkefnum á sviði tannlækninga, 
  5. að gefa út og kynna niðurstöður rannsókna í tannlækningum, 
  6. að veita upplýsingar og ráðgjöf varðandi tannlækningar, 
  7. að gangast fyrir námskeiðum og fyrirlestrum á starfssviði stofnunarinnar.

3. gr.  Aðstaða.

Háskóli Íslands lætur stofnuninni í té starfsaðstöðu, þar á meðal húsnæði og búnað svo sem kostur er.

Stofnunin veitir starfsliði sínu skv. 8. gr. aðstöðu og nauðsynlegan búnað til rannsókna eftir því sem unnt er.

4. gr.  Skipulag.

Tannlækningastofnun starfar í einni rannsóknastofu. Skrifstofuhald er sameiginlegt með Tannlæknadeild og er deildarstjóri skrifstofu deildarinnar jafnframt deildarstjóri skrifstofu stofnunarinnar.


Stjórn Tannlækningastofnunar er heimilt, að fengnu samþykki forseta Heilbrigðisvísindasviðs, að skipta stofnuninni upp í faglega sjálfstæðar rannsóknastofur, í samræmi við 27. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands.

5. gr.  Stjórn.

Forseti Heilbrigðisvísindasviðs skipar Tannlækningastofnun fimm manna stjórn til þriggja ára í senn að fenginni tilnefningu deildarfundar í Tannlæknadeild. Skulu fjórir stjórnarmanna vera úr hópi kennara deildarinnar en einn vera úr hópi stúdenta, tilnefndur af stjórn Félags íslenskra tannlæknanema. Í stjórn skulu sitja bæði karlar og konur og skal þess gætt að hlutfall kynjanna sé ekki minna en 40%, sbr. 15. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.


Stjórnarskipti fara fram 1. júlí á því ári sem kjör stjórnarmanna hefur farið fram.


Stjórnin kýs sér formann úr hópi kennara og skiptir að öðru leyti með sér verkum. Sé ekki ráðinn forstöðumaður við stofnunina kemur formaður stjórnar fram fyrir hönd stofnunarinnar og annast daglegan rekstur hennar.

6. gr.  Stjórnarfundir.

Formaður stjórnar boðar stjórnarfundi bréflega, eða í tölvupósti, með þriggja daga fyrirvara. Fundarboð skal greina dagskrá fundar.


Skylt er að boða stjórnarfund óski tveir eða fleiri stjórnarmenn þess. Sama gildir ef forseti Tannlæknadeildar, forseti Heilbrigðisvísindasviðs eða rektor ber fram slíka ósk og hafa þeir þá málfrelsi og tillögurétt á fundinum, en ekki atkvæðisrétt.


Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns eða þess sem gegnir formannsstörfum.


Halda skal gerðabók stjórnar og skulu staðfestar fundargerðir færðar í hana. Afrit fundargerða skulu send forseta Tannlæknadeildar.


Ef forstöðumaður er ráðinn til stofnunarinnar situr hann stjórnarfundi með málfrelsi og tillögurétt, en án atkvæðisréttar.

7. gr.  Verkefni stjórnar.

Stjórnin tekur allar stefnumarkandi ákvarðanir fyrir stofnunina og setur henni starfsreglur. Stjórnin sker úr í vafaatriðum sem upp kunna að koma og varða innri starfsemi stofnunarinnar. 


Stjórnin stendur að gerð rannsóknaráætlana og framkvæmd þeirra.


Stjórnin ber ábyrgð á fjármálum hennar gagnvart deild og forseta Heilbrigðisvísindasviðs, samþykkir rekstrar- og fjárhagsáætlun og gerir tillögu til deildar um fjárveitingar og skiptingu þeirra ásamt skiptingu annarra tekna.


Stjórnin gerir tillögu að samþykktum um þjónusturannsóknir sem háskólaráð staðfestir.


Stjórnin efnir til ársfundar Tannlækningastofnunar þar sem ársskýrsla er lögð fram og fjallað um önnur mál svo sem kveðið er á um í reglum fyrir Háskóla Íslands.

8. gr.  Forstöðumaður og starfsmenn.

Heimilt er að ráða stofnuninni forstöðumann að fenginni tillögu stjórnar og með samþykki deildar. Forseti Heilbrigðisvísindasviðs gerir ráðningarsamning við forstöðumann og setur honum erindisbréf.


Um ráðningu starfsmanna stofnunarinnar fer eftir ákvæðum reglna fyrir Háskóla Íslands. Sé um að ræða ráðningu í starf og ekki er gert ráð fyrir því starfsheiti í reglunum fer deildarforseti eða stjórn stofnunarinnar í umboði hans með ráðningarmálið.

9. gr.  Fjármál.

Tekjur Tannlækningastofnunar Háskóla Íslands eru eftirfarandi:

  1. framlag frá Tannlæknadeild,
  2. styrkir til einstakra verkefna, 
  3. greiðslur fyrir þjónustustarfsemi, 
  4. tekjur af útgáfustarfsemi, 
  5. aðrar tekjur, t.d. gjafir og framlög úr ríkissjóði eftir því sem kveðið kann að vera á um í fjárlögum.

Reikningshald stofnunarinnar skal vera hluti af reikningshaldi háskólans. Fjárhagsáætlun skal kynnt og lögð fram til samþykktar á deildarfundi og samþykkt af forseta Heilbrigðisvísindasviðs.


Sé um að ræða útselda þjónustu, sem veitt er í samkeppni við einkaaðila, skal sú starfsemi fjárhagslega afmörkuð frá öðrum rekstri stofnunarinnar og þess gætt að sá rekstur sé ekki niðurgreiddur með öðrum tekjum, í samræmi við ákvæði samkeppnislaga.


Um stjórnunar- og aðstöðugjald af sértekjum fer eftir ákvæðum 73. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands.

10. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli heimildar í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, að fenginni tillögu Tannlæknadeildar og stjórnar Heilbrigðisvísindasviðs, öðlast þegar gildi.


Jafnframt falla úr gildi reglur nr. 734/2001 um Tannlækningastofnun Háskóla Íslands.

Háskóla Íslands, 15. júní 2010.