Skip to main content

Um doktorsnám í matvælafræði

Matvæla- og næringarfræðideild býður upp á mjög öflugt doktorsnám. Rannsóknavirkni deildarinnar er ein sú mesta í Háskólanum og gott samstarf er á milli kennara og stofnana og fyrirtækja innanlands.

Doktorsnám í matvælafræði felur í sér 180 eða 240 eininga vísindaleg og tæknileg rannsóknarverkefni sem leiða til nýrrar þekkingar og nýsköpunar. Öllum nemendum í framhaldsnámi stendur til boða að taka hluta af námi sínu erlendis í samvinnu við leiðbeinendur. Rík áhersla er lögð á að rannsóknaniðurstöður séu birtar á ritrýndum alþjóðlega viðurkenndum vettvangi.

Öflugt samstarf og rannsóknir

Öflugt samstarf er á milli kennara deildarinnar og stofnana og fyrirtækja innanlands. Sérstakur samningur er við Matís ohf, sem er opinbert hlutafélag í rannsóknum, þróun og nýsköpun matvæla. Á Matís vinnur fjöldi nemenda að verkefnum í framhaldsnámi með það að markmiði að efla alþjóðlega samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu, stuðla að hollustu og öryggi matvæla.

Kennarar deildarinnar eru einnig í mjög virku samstarfi við virta háskóla í Evrópu og Bandaríkjunum. Nemendur fá tækifæri til að tengjast atvinnulífi og öðlast reynslu í samskiptum við innlenda sem og erlenda aðila í námi sínu, sem er ómetanleg reynsla og nemendur búa að eftir að námi lýkur. Nemendur bæði í grunn- og framhaldsnámi eiga því kost á mikilli reynslu gegnum alþjóðleg tengsl. Nánar um samstarf deildarinnar.

Rannsóknaáherslur við deildina falla innan eftirtalinna fagsviða:

  • Matvælaefnafræði
  • Matvælavinnsla
  • Matvælaverkfræði
  • Matvælaörverufræði
  • Öryggi matvæla
  • Líftækni
  • Vöruþróun

Tækifæri í rannsóknum á sviði matvælafræði og næringarfræði hérlendis eru gríðarlega mikil. Áhugi almennings eða neytandans á góðri matvælaframleiðslu og næringu er einnig alþjóðlegur og kallar á matvælafræðinga og næringarfræðinga til margra starfa. Sjá nánar um rannsóknir við deildina.

Doktorsnám með alþjóðlega gæðavottun

Doktorsnám við Heilbrigðisvísindasvið hefur hlotið alþjóðlega gæðavottun frá ORPHEUS (Organisation for PhD Education in Biomedicine and Health Sciences in the European System). Háskóli Íslands er fimmti háskólinn í Evrópu til þess að hljóta vottunina. ORPHEUS eru alþjóðleg samtök sem meta gæði doktorsnáms í líf- og heilbrigðisvísindum við evrópska háskóla.