Skip to main content

Sálfræði

Sálfræði

Heilbrigðisvísindasvið

Sálfræði

MS gráða – 120 einingar

MS-nám í sálfræði er tveggja ára framhaldsnám við Sálfræðideild HÍ sem veitir nemendum kost á að afla sér framhaldsmenntunar á sérsviði innan sálfræðinnar.

Skipulag náms

X

Verklag í vísindum (LÝÐ202F)

Námskeiðið veitir hagnýta leiðsögn við undirbúning rannsóknar. Heimildaöflun, tilgátuþróun og gerð yfirlitsgreinar (systematic critical review) á fræðasviði fyrirhugaðaðrar rannsóknar. Nemendur fá einnig þjálfun í að vinna rannsóknaráætlun og kynna hana.

Námskeiðið er ætlað nemendum á meistara- eða doktorsstigi sem hafa valið sér svið/rannsóknarspurningu lokaverkefnis.

X

Hugtakagreining í sálfræði (SÁL232M)

Megináhersla verður lögð á almannasálfræði (commonsense psychology) og hvernig forðast má að beita reynsluprófum á setningar sem tjá fyrirframþekkingu (a priori knowledge). Einnig verður fjallað um greiningu á gervitæknimáli (jargon) í sálfræði á íslensku og ensku; vitsmunakenningar um geðshræringar og hvernig greining á almannasálfræði nýtist í hugrænni atferlismeðferð.

X

Tölfræði (SÁL233M)

Viðfangsefni námskeiðsins er aðfallsgreining, túlkun niðurstaðna, mat á líkönum, líkanagerð og samanburð líkana. Gerð verður grein fyrir raunhæfri greiningu og mati á gæðum líkana. Fjallað verður m.a. umbreytingar, flokkabreytur og samvirkni.

X

MS-ritgerð í sálfræði (SÁL441L)

MS-ritgerð í sálfræði

X

MS-ritgerð í sálfræði (SÁL441L)

MS-ritgerð í sálfræði

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá

Hjálplegt efni

Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.