Sviðsþing Menntavísindasviðs
Askja
Misserisþing Menntavísindasviðs fer fram nk. miðvikudag 31. maí kl. 13-18 í Öskju N-132.
Meginviðfangsefni þingsins verður flutningur sviðsins í Sögu auk þess sem við munum kveðja samstarfsfólk á sviðinu sem lokið hefur störfum nýverið.
Dagskrá:
13:00-13:15 - Ávarp forseta sviðs - Kolbrún Þ. Pálsdóttir
13:15-13:20 - Ávarp forseta sviðsráðs nemenda - Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir
13:20-14:00 - Menntavísindasvið í Sögu - Kristján Garðarsson, arkitekt.
14:00-14:35 - Fyrirspurnir og umræður um Sögu.
14:35-14:50 – Kaffihlé.
14:50-16:15 - Hópavinna: Viðmið og lausnir við nýtingu rýma ræddar.
16:15-16:35 – Leynigestur og léttar veitingar
Fundarstjórar eru Berglind Rós Magnúsdóttir, prófessor og Jakob Frímann Þorsteinsson aðjúnkt við Menntavísindasvið.
Vænst er til þess að starfsfólk sviðsins mæti og taki virkan þátt í umræðum og hópavinnu undir forystu deildarforseta.