Ráðstefna um nýsköpun í heilbrigðisvísindum
Veröld - Hús Vigdísar
Veröld - Hús Vigdísar
Viltu taka þátt í ráðstefnu um nýsköpun í heilbrigðisvísindum?
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands efnir til fimmtu nýsköpunarráðstefnunnar föstudaginn 19. nóvember 2021 í Veröld – húsi Vigdísar.
Ráðstefnan er fyrir alla, innan skólans og utan, sem vilja kynna verkefni eða hugmynd um nýsköpun í heilbrigðisvísindum.
Undir nýsköpun fellur til dæmis frumkvöðlastarf, nýjar lausnir og hugmyndir sem unnið er að s.s. nýjar vörur, aðferðir eða leiðir í þjónustu, greiningu og meðferð. Verkefnin þurfa að vera gagnleg fyrir samfélag og/eða atvinnulíf, vera virðisaukandi eða stuðla að ávinningi.
Ágrip
Skilafrestur ágripa er liðinn og dagkráin tilbúin. Lesa má öll ágrip ráðstefnunnar hér.
Skráning
Ekkert þátttökugjald er á ráðstefnuna en gestir þurfa að skrá sig á viðburðarsíðunni í Uglu (lokað svæði), einnig höfundar og meðhöfundar sem hyggjast mæta.
Ráðstefnan verður einnig í streymi: https://livestream.com/hi/nyskopunheilbrigdisvisindi
Dagskrá
- 12:30 – Setning Nýsköpunarráðstefnu HVS 2021 – Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, aðstoðarrektor vísinda
- 12:35 – Sagan af kennslutölvuleiknum Mínu og Draumalandinu: Nýsköpun í sjúklingafræðslu – Brynja Ingadóttir
- 13:05 – Nýsköpun í heilsueflingu
- Bragðlaukaþjálfun: Rannsókn á árangri nýs inngrips á matvendni barna með og án taugaþroskaraskana – Sigrún Þorsteinsdóttir.
- Er það bara ég eða stekkur súkkulaðið sjálft ofan í innkaupakerruna? Fæðuumhverfi í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu haustið 2021 – Birna Þórisdóttir.
- RED-Í rannsóknarverkefnið: þróun matstækja og ráðlegginga fyrir íslenskt íþróttafólk – Birna Varðardóttir.
- 13:55 – Nýsköpun í meðferð
- Retínósýruplástrar til meðhöndlunar á slitgigt í höndum – Helena Hamzehpour.
- 3D printing a patch for hand osteoarthritis – Bergþóra S. Snorradóttir.
- Fjarmeðferð eða venjubundin meðferð fyrir skjólstæðinga með svipuólaáverka á hálshrygg? Slembiröðuð samanburðarrannsókn – Harpa Söring Ragnarsdóttir.
- 14:40 – Hlé
- 15:00 – Nýsköpun í lyfjaþróun
- Meðgöngueitrun og fylgjuprótein 13 (PP13) – Helga Helgadóttir.
- Improving stability of biopharmaceuticals via spray drying – Pall Thor Ingvarsson.
- Development of new phenazine 5,10-dioxides derived from natural products to target acute myeloid leukemia and resistant infectious diseases – Elvar Örn Viktorsson.
- Production method development for a bioactive chitosan derivative – Vivien Nagy.
- 16:00 – Ráðstefnulok
Nánari upplýsingar hjá hvs@hi.is.
Við hlökkum til að sjá þig!
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands efnir til fjórðu nýsköpunarráðstefnunnar föstudaginn 19. nóvember 2021 í Veröld – húsi Vigdísar. Þér er boðið að taka þátt! Nánari upplýsingar, eins og dagskrá og ágrip, má finna á vefsíðu viðburðarins hér.