Skip to main content

Opið hús í „Húsi íslenskunnar“

Opið hús í „Húsi íslenskunnar“ - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
20. apríl 2023 10:00 til 16:00
Hvar 

Hús íslenskunnar

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Nýtt hús Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Háskóla Íslands, sem hefur gengið undir nafninu „Hús íslenskunnar", verður vígt 19. apríl. Af því tilefni verður húsið opnað almenningi sumardaginn fyrsta, 20. apríl. Þá geta gestir skoðað húsið áður en flutt er inn í það og starfsemi hefst. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá þar sem íslensk tunga verður í aðalhlutverki.

Húsnæðið mun hýsa starfsemi Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands og verður miðstöð rannsókna og kennslu í íslenskum fræðum: tungu, bókmenntum og sögu. Þar verða jafnframt varðveitt frumgögn um íslenska menningu, þ.e. handrit, skjöl, orða- og nafnfræðisöfn og þjóðfræðasöfn.

Í byggingunni eru ýmis sérhönnuð rými, svo sem fyrir varðveislu, rannsóknir og sýningu á fornum íslenskum skinnhandritum, vinnustofur kennara og fræðimanna, lesaðstaða fyrir nemendur, fyrirlestra- og kennslusalir og bókasafn með lesaðstöðu.

Í boði allan daginn

  • Kvæðamaður skýtur upp kollinum víða um húsið.
  • Leiðsögn um aðra hæð hússins.
  • Myndlistarsýning: Hvernig blasa íslensku þjóðsögurnar við nemendum í íslensku sem öðru máli?
  • [ˈl̥jouðrɪtʏnar̥stɔːva]: Íslenskunemar hljóðrita nafnið þitt.
  • Klikk-klikk-klikk-klikk-ding! Pantaðu ljóð hjá ritlistarnemum.
  • Kjóstu mesta skúrkinn í íslenskum bókmenntum.
  • Veldu skrýtnasta íslenska orðið.
  • Hýryrði 2023.
  • Talaðu við tækið: Miðeind kynnir nýja gervigreindarlausn á íslensku.

Í bókasafni

  • 10.15 Kvæðabarnafjelag Laufásborgar kveður rímur.
  • 14.00 Jakob Birgisson uppistandari tekur tunguna í gegn.
  • 15.00 Una Torfadóttir tónlistarkona treður upp.

Í fyrirlestrasal

  • 10.00 Upp úr holu íslenskra fræða: Stutt myndbönd um byggingu hússins.
  • 11.00 Arndís Þórarinsdóttir les fyrir börn og fullorðna úr bók sinni Bál tímans: Örlagasaga Möðruvallabókar í sjö hundruð ár.
  • 12.00 Málstofa: Rithöfundarnir Bergsveinn Birgisson og Arndís Þórarinsdóttir
  • Ég, Gaius og Gunnlaugur

    Arndís Þórarinsdóttir, rithöfundur

  • Þormóður Torfason - Velgjörðarmaður íslenskra fræða
    Bergsveinn Birgisson, rithöfundur

    Málstofustjórn: Margrét Eggertsdóttir

  • 13.00 Hvað er á seyði í Árnastofnun? Fræðimenn segja frá rannsóknum sínum.
  • Himinninn yfir Snorralaug: Með orðum goðafræðinnar  
    Gísli Sigurðsson, rannsóknarprófessor 
  • Fornrit, örnefni og umhverfisminni 
    Emily Lethbridge, rannsóknardósent  
  • Jólasveinar, Grýlubörn og hin fornu tröll 
    Yelena Sesselja Helgadóttir, nýdoktor  
  • Skiptir máli hvernig bókin var gerð? 
    Beeke Stegmann, rannsóknarlektor  
  • Handrit á faraldsfæti 
    Katelin Marit Parsons, nýdoktor  
  • Getta sko! Talmálsrannsóknir fyrr og nú  
    Helga Hilmisdóttir, rannsóknardósent  
  • Hvað eru íslensk orð gömul?  
    Ellert Þór Jóhannsson, rannsóknarlektor  
  • Málið.is, vefur um íslensku 
    Halldóra Jónsdóttir, orðabókarritstjóri

Málstofustjórn: Guðvarður Már Gunnlaugsson

  • 14.00 Hvað er á seyði í íslenskunni? Fræðimenn við Háskóla Íslands segja frá rannsóknum sínum.
  • Nokkur orð um norðurljós  
    Aðalheiður Guðmundsdóttir, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda 
  • Er hægt að segja bókmenntasögu með línuritum og súluritum? 
    Jón Karl Helgason, prófessor í íslensku sem öðru máli 
  • Helvítið þitt og helvítið á honum 
    Katrín Axelsdóttir, dósent í íslensku sem öðru máli 
  • Viltu tala íslensku við mig? Íslenskunám utan kennslustofunnar 
    Guðrún Theodórsdóttir, dósent í íslensku sem öðru máli 
  • Máltaka íslenskra barna í breyttu málumhverfi samtímans 
    Sigríður Sigurjónsdóttir, prófessor í íslenskri málfræði, og Iris Edda Nowenstein, doktorsnemi í íslenskri málfræði 
  • Hinsegin Laxness: Höfundarverk lesið með nýjum gleraugum  
    Ásta Kristín Benediktsdóttir, lektor í íslenskum samtímabókmenntum  

Málstofustjórn: Brynja Þorgeirsdóttir

  • 15.00 Sumarsögur og fjögur skáld. Fjórir rithöfundar lesa úr verkum sínum og fagna sumri.

    Bergþóra Snæbjörnsdóttir

    Brynja Hjálmsdóttir

    Brynjólfur Þorsteinsson

    Dagur Hjartarson

    Kynnir: Huldar Breiðfjörð

Nýtt hús Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Háskóla Íslands, sem hefur gengið undir nafninu „Hús íslenskunnar", verður vígt 19. apríl. Af því tilefni verður húsið opnað almenningi sumardaginn fyrsta, 20. apríl.

Opið hús í „Húsi íslenskunnar“