Nútíma skjalastjórnun og langtímavarsla opinberra skjala
Hvenær
22. september 2023 12:00 til 13:00
Hvar
Þjóðminjasafn (fyrirlestrasalur)
Nánar
Aðgangur ókeypis
Ragna Kemp Haraldsdóttir, dósent í upplýsingafræði, við Háskóla Íslands, flytur fyrirlesturinn „Nútíma skjalastjórnun og langtímavarsla opinberra skjala“ í fyrirlestraröðinni „Eru söfn einhvers virði?“. Fyrirlesturinn verður haldinn í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins föstudaginn 22. september kl. 12-13.
Miðstöð einsögurannsókna við Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands, Þjóðminjasafn Íslands og námskeiðið Einkaskjöl: Vitnisburður hina valdlausu? við námsbraut í sagnfræði efna til fyrirlestraraðarinnar. Fundarstjórar verða þau dr. Anna Heiða Baldursdóttir, dr. Sólveig Ólafsdóttir og Sigurður Gylfi Magnússon, prófessor í menningarsögu.
Dagskrá fyrirlestraraðarinnar:
- 25. ágúst. Stjórnmál og söfn – Pólitískir gjörningar á undanförnum mánuðum. Sigurður Gylfi Magnússon, prófessor í menningarsögu við Háskóla Íslands.
- 1. september. Einkaskjöl og opinber skjöl, skjalasöfn og stjórnskipan. Héraðsskjalasafn Kópavogs í ljósi sögunnar. Hrafn Sveinbjarnarson, sagnfræðingur – forststöðumaður héraðsskjalasafns Kópavogs.
- 8. september. Draumur sem brást – hvers vegna á þjóðin ekkert leiklistar- eða tónlistarsögusafn? Dr. Jón Viðar Jónsson listfræðingur.
- 15. september. Hvar býr þekkingin? Orri Vésteinsson, prófessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands.
- 22. september. Nútíma skjalastjórn og langtímavarsla opinberra skjala. Ragna Kemp Haraldsdóttir, lektor í upplýsingafræði við Háskóla Íslands.
- 29. september. Söfn og kennsla: Þurfamannaæfir. Ragnheiður Kristjánsdóttir, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands
- 6. október. Miðlun menningararfs. (Ó)Þarfar rannsóknir á söfnum. Dr. Anna Heiða Baldursdóttir, nýdoktor við Landsbúnaðarsafnið á Hvanneyri.
Hlé í tvær vikur
- 27. október. Óhjálplega safnið. Sigurjón Baldur Hafsteinsson, prófessor í safnafræði við Háskóla Íslands
- 3. nóvember. Einkasafn og einsaga – tengsl safna og vísinda. Sigurður Gylfi Magnússon, prófessor í menningarsögu við Háskóla Íslands.
- 10. nóvember. Er hægt að leggja Þjóðminjasafnið niður? Dr. Kristján Mímisson, sérfræðingur í miðlun menningarsögu á Þjóðminjasafni Íslands.
- 17. nóvember. Er Hafnafjörður týndur? Gögn gamla Hafnafjarðar. Dr. Sólveig Ólafsdóttir, nýdoktor við Háskóla Íslands
- 24. nóvember. Hvers vegna í ósköpunum ættum við að halda upp á þetta? Bókasafn Íslenska esperantosambandsins og saga alþjóðahyggju á Íslandi. Benedikt Hjartarson, prófessor í almennri bókmenntafræði og menningarfræði við Háskóla Íslands.
- 1. desember. Samantek og umræða.
Ragna Kemp Haraldsdóttir, lektor í upplýsingafræði.