Málþing til heiðurs Hrefnu Ólafsdóttur lektors við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands

Hvenær
29. mars 2023 12:00 til 14:00
Hvar
Veröld - Hús Vigdísar
Fyrirlestrarsalur
Nánar
Aðgangur ókeypis
Málþing til heiðurs Hrefnu Ólafsdóttur lektors í tilefni starfsloka hennar við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands.
Dagskrá:
- 12:00 - 12:10 Dr. Stefán Hrafn Jónsson, forseti Félagsvísindasviðs HÍ. Ávarp.
- 12:10 - 12:20 Halldór Sig. Guðmundsson, dósent, deildarforseti Félagsráðgjafardeildar HÍ. Inngangsorð.
- 12:20 - 12:30 Bráðaþjónusta vegna barna í sjálfsvígshættu. Bertrand Andre Marc Lauth, barna-og unglingageðlæknir á Barna-og unglingageðdeild Landspítala og dósent við Læknadeild.
- 12:30 - 12:40 Lífið kallar; áhersla á að velja lífið. Dagbjörg Sigurðardóttir, barna-og unglingageðlæknir á Barna-og unglingageðdeild Landspítala.
- 12:40 - 12:50 Forvarnir með ungmennum, fjölskyldumiðuð nálgun. Eva Rós Ólafsdóttir, félagsráðgjafi í Berginu og stundakennari við HÍ.
- 12:50 - 13:00 Áfallamiðuð vinna. Auður Ósk Guðmundsdóttir, lektor við Félagsráðgjafardeild HÍ og félagsráðgjafi í geðheilsuteymi Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins.
- 13.00 - 13:10 Fjölskyldumeðferð í vinnu með börnum með geðrænan vanda. Guðlaug María Júlíusdóttir, lektor við Félagsráðgjafardeild HÍ, og deildarstjóri faghópa á Barna-og unglingageðdeild LSH.
- 13:10 - 13:20 Handleiðsla í starfi félagsráðgjafa. Nanna K. Sigurðardóttir, félagsráðgjafi.
- 13:20 - 13:50 Lokaorð og kveðjur frá Félagsráðgjafardeild. Kennarar Félagsráðgjafardeildar.
- 14:00 Slit málþings og léttar veitingar.
Fundarstjóri: Unnur V. Ingólfsdóttir, aðjúnkt og félagsráðgjafi.
Hrefna Ólafsdóttir lektor við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands
