Kynningarfundur fyrir nýsköpunarhraðallinn HÍ - AWE

Gróska
Fenjamýri
Kynningarfundur fyrir nýsköpunarhraðal HÍ – AWE- verður haldinn í Grósku hugmyndahúsi þriðjudaginn 31. janúar nk. kl. 12:30.
Markmið hraðalsins er að styðja konur í að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar og fyrirtæki, auka hlut þeirra innan frumkvöðla- og nýsköpunargeirans á Íslandi og efla tengslanet kvenna. Mikil aðsókn hefur verið að hraðlinum og hefur þátttaka í honum skilað konum ánægjulegum árangri við að koma nýsköpunar- og viðskiptahugmyndum sínum á laggirnar.
Á fundinum verður farið yfir hvað felst í þátttöku í hraðlinum, hvernig hann fer fram og hvenær, hvaða stuðningur verður í boði í gegnum hraðalinn auk þess sem farið verður yfir öll praktísk atriði sem tengjast nýsköpunarhraðli HÍ- AWE.
Fundurinn verður í Fenjamýri í Grósku sem hluti af Atvinnudögum HÍ 2023 en hann verður einnig tekinn upp á ZOOM fyrir þær sem eiga ekki heimangengt og verður slóð sett inn á vefinn www.awe.hi.is eftir fundinn.
Virkjum nýsköpunarkraft kvenna!
Dagskrá fundar verður auglýst nánar síðar en meðal dagskráliða verða:
👉 Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, ávarpar gesti
👉 Carrin F. Patman, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, ávarpar gesti
👉 Mentorar hraðalsins og frumkvöðlarnir Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch og Fida Abu Libdeh fara yfir dagskrá nýsköpunarhraðalsins og hagnýt mál sem tengjast þátttöku í honum
👉 Grace Achieng, stofnandi Gracelandic og þátttakandi í hraðlinum 2022, deilir reynslu sinni
👉 Sigríður Hrund Pétursdóttir, formaður FKA, slítur fundi
👉 Eftir fundinn geta viðstaddir spurt spurninga og fengið svör
Nánari upplýsingar á www.awe.hi.is
Kynningarfundur fyrir nýsköpunarhraðal HÍ – AWE- verður haldinn í Grósku hugmyndahúsi þriðjudaginn 31. janúar nk. kl. 12:30.
