Skip to main content

Doktorsvörn í almennri bókmenntafræði

Doktorsvörn í almennri bókmenntafræði - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
2. maí 2017 13:00
Hvar 

Aðalbygging

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Þriðjudaginn 2. maí fer fram doktorsvörn við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Þá ver Magnús Þór Þorbergsson doktorsritgerð sína í almennri bókmenntafræði sem nefnist á íslensku: Leiksvið þjóðar: Þjóð, stétt, sjálfsmynd og mótun leiklistarvettvangs á Íslandi 1850-1930. Ritgerðin er skrifuð á ensku. Vörnin fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu og hefst kl. 13:00.

Andmælendur eru Joanna Robinson, dósent í leiklistarfræðum við University of Nottingham og Ólafur Rastrick, lektor í þjóðfræði. Aðalleiðbeinandi Magnúsar var Benedikt Hjartarson prófessor, en í doktorsnefnd voru auk hans þeir Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði, og Stephen Elliot Wilmer, prófessor emeritus í leiklistarfræðum við Trinity College Dublin. Gunnþórunn Guðmundsdóttir, deildarforseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnar athöfninni.

Um verkefnið

Ritgerðin er rannsókn á tengslum leiklistar og leiklistarstarfsemi við sviðsetningu á sjálfsmynd þjóðar og mótun leiklistarvettvangs á Íslandi 1850-1930. Meginviðfangsefni rannsóknarinnar eru að spyrja hvernig skoða má leikhús sem vettvang fyrir mótun og sviðsetningu sjálfsmyndar þjóðar á síðari hluta nítjándu aldar og í byrjun þeirrar tuttugustu, hvernig sviðsetning þjóðarinnar í leikhúsinu endurpeglar og tekst á við samfélagslegt og stjórnmálalegt umrót tímabilsins og hvernig breytingar á verkefnavali og starfsemi Leikfélags Reykjavíkur sem leiðandi leikhúss landsins, eru til marks um breytingar á sjálfsmynd þjóðar og samfélagsgerð. Til að svara þessum spurningum beinir ritgerðin sjónum að upphafi og þróun leiklistarvettvangs á Íslandi, með megináherslu á Reykjavík, frá fyrstu opinberu leiksýningunum um miðja nítjándu öld fram til 1930, þegar bygging væntanlegs þjóðleikhúss stöðvast. Rannsóknin styðst við kenningar Pierres Bourdieu um menningarvettvang (e. cultural field) í greiningu á þróun íslensks leikhúss á tímabilinu og þeirri umræðu sem átti sér stað um lögmæti athafna, gjörða og staðsetninga innan leiklistarvettvangsins. Ritgerðin sækir einnig í kenningar leiklistarfræðingsins Loren Kruger um sviðsett þjóðerni (e. theatrical nationhood) til að varpa ljósi á sviðsetningu þjóðarinnar í leikhúsinu, ekki aðeins á sviðinu, heldur einnig sem stofnun og samastaður hins opinbera sviðs. Rannsóknin beinir því sjónum að opinberri umræðu um leiklist auk þess að skoða athafnir og aðgerðir einstakra leikenda innan leiklistarvettvangsins eins og þær birtast t.d. í einstökum leikritum og leiksýningum tímabilsins, sem og í verkefnavali einstakra leikhópa, og tengsl þeirra við breytingar á sjálfsmynd þjóðar, stéttamyndun og samfélagsgerð.   

Um doktorsefnið

Magnús Þór Þorbergsson (f. 1. apríl 1971) lauk BA-prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands 1994 og MA-prófi og leiklistarfræðum frá Freie Universität Berlin 1999. Hann hefur starfað sem lektor við Sviðslistadeild Listaháskóla Íslands og gegndi þar stöðu fagstjóra Sviðshöfundabrautar frá stofnun brautarinnar árið 2005 til ársins 2012. Frá árinu 2015 hefur Magnús verið stundakennari við Sviðslistadeild LHÍ og Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands samhliða doktorsnámi sínu.