Skip to main content

Áfangamat Katrínar Ólafsdóttur við Menntavísindasvið

Áfangamat Katrínar Ólafsdóttur við Menntavísindasvið - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
5. nóvember 2020 13:00 til 14:00
Hvar 

Zoom

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Áfangamat Katrínar Ólafsdóttur við Menntavísindasvið

The Zoom Meeting ID: 622 8514 8044

5. nóvember nk. mun fara fram mat á doktorsverkefni Katrínar Ólafsdóttur doktorsnema við Menntavísindasvið. Heiti verkefnisins er:

Young men who commit acts of violence in intimate relationships: The formation of the self, masculinity and view on violence

Matið er í tvennu lagi; fyrst kynnir Katrín rannsóknarskýrslu sína  kl. 13.00 – 14.00 og er sú kynning opin nemum í framhaldsnámi og starfsmönnum Menntavísindasviðs. Síðan er fundur þar sem matsnefnd fær tækifæri til að ræða rannsóknarskýrslu Katrínar Ólafsdóttur. Fundurinn er öðrum lokaður. Kynningin og fundurinn fara fram á ensku.

Tilgangur matsins er tvíþættur eins og fram kemur í Reglum um doktorsnám við Menntavísindasvið: Að meta hæfni doktorsnemans til að framkvæma rannsóknarverkefni sitt og að veita endurgjöf svo að verkefnið verði svo gott sem verða má.

Matsnefndin samanstendur af leiðbeinendum Katrínar Ólafsdóttur, þeim: dr Jóni Ingvari Kjaran prófessor á Menntavísindasviði, meðleiðbeinanda  dr. Önnudís Gretu Rúdólfsdóttur dósent á Menntavísindasviði og  sérfæðingi í doktorsnefnd dr. Jeff Hern, prófessor við Örebo University; utanaðkomandi prófdómurum, dr. Gyðu Margréti Pétursdóttur prófessor við Háskóla Íslands og dr Sofia Strid dósent við við Örebo University

Atli Vilhelm Harðarson dósent er formaður matsnefndar og stýrir athöfninni og Sólrún B. Kristinsdóttir er ritari.