Skip to main content

Áfangamat Jóhanns Arnar Sigurjónssonar

Áfangamat Jóhanns Arnar Sigurjónssonar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
7. október 2020 13:00 til 14:00
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

Zoom

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Áfangamat Jóhanns Arnar Sigurjónssonar við Menntavísindasvið

7. október nk. mun fara fram mat á doktorsverkefni Jóhanns Arnar Sigurjónssonar doktorsnema við Menntavísindasvið. Heiti verkefnisins er:

Quality in Icelandic Mathematics Teaching.

7. okt kl. 13.00 til 14.00

Join Zoom Meeting

https://eu01web.zoom.us/j/63958665275

Meeting ID: 639 5866 5275

Matið er í tvennu lagi; fyrst kynnir Jóhann Örn rannsóknarskýrslu sína á Zoom kl. 13.00 -14.00 og er sú kynning opin nemum í framhaldsnámi og starfsmönnum Menntavísindasviðs. Síðan er fundur þar sem matsnefnd fær tækifæri til að ræða rannsóknarskýrslu Jóhanns Arnar. Fundurinn er öðrum lokaður. Kynningin og fundurinn fara fram á ensku.

Tilgangur matsins er tvíþættur eins og fram kemur í Reglum um doktorsnám við Menntavísindasvið: Að meta hæfni doktorsnemans til að framkvæma rannsóknarverkefni sitt og að veita endurgjöf svo að verkefnið verði svo gott sem verða má.

Matsnefndin samanstendur af leiðbeinendum Jóhanns Arnar Sigurjónssonar, þeim: dr. Önnu Kristínu Sigurðardóttur prófessor við Háskóla Íslands, meðleiðbeinanda dr Berglind Gísladóttir lektor, sérfræðingi í doktorsnefnd dr. Jorryt van Bommel dósent við Karlstadt University Sweden; utanaðkomandi prófdómurum, dr. Ólöf Steinþórsdóttir dósent við University of Northen Iowa og Freyja Hreinsdóttir dósent við Háskóla Íslands.

Atli V. Harðarsson er formaður matsnefndar og stýrir athöfninni og Sólrún B. Kristinsdóttir er ritari.