Skip to main content

Áfangamat í doktorsnámi Benjamin Aidoo

Áfangamat í doktorsnámi Benjamin Aidoo - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
2. mars 2020 10:00 til 11:00
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

K 205

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Áfangamat Benjamin Aidoo doktorsnema við Menntavísindasvið

Mánudaginn 2. mars nk. mun fara fram mat á doktorsverkefni Benjamin Aidoo doktorsnema við Menntavísindasvið. Heiti verkefnisins er:

Improving Chemistry learning in Ghanaian schools through Flipped- Inquiry-Based Approach

Matið er í tvennu lagi; fyrst kynnir Benjamin rannsóknarskýrslu sína í stofu K 205 kl. 10:00 – 11:00 og er sú kynning opin nemum í framhaldsnámi og starfsmönnum Menntavísindasviðs. Síðan er fundur þar sem matsnefnd fær tækifæri til að ræða rannsóknarskýrslu Benjamins. Fundurinn er öðrum lokaður. Kynningin og fundurinn fara fram á ensku.
Tilgangur matsins er tvíþættur eins og fram kemur í Reglum um doktorsnám við Menntavísindasvið: Að meta hæfni doktorsnemans til að framkvæma rannsóknarverkefni sitt og að veita endurgjöf svo að verkefnið verði svo gott sem verða má.
Matsnefndin samanstendur af leiðbeinendum Benjamin Aidoo´s, þeim: dr. Allyson MacDonald, prófessor, Háskóla Íslands, meðlimum í doktorsnefnd dr. Berglindi Gísladóttur lektor og dr. Svövu Pétursdóttur lektor, báðar við Háskóla Íslands, utanaðkomandi prófdómurum, dr. Veli-Matti Vesterinen, dósent við háskólann í Turku, dr. Peter Mtika dósent við háskólann í Aberdeen. Atli V. Harðarsson er formaður matsnefndar og stýrir athöfninni og Sólrún B. Kristinsdóttir er ritari.