Áfangamat Cynthia Trililani

Stakkahlíð / Háteigsvegur
K 205
Heiti verkefnisins er:
Immigrant Mothers’ Pursuit of Higher Education: An Intersectional Analysis
Matið er í tvennu lagi; fyrst kynnir Cynthia rannsóknarskýrslu sína í stofu K 205 kl. 13:00 – 14:00 og er sú kynning opin nemum í framhaldsnámi og starfsmönnum Menntavísindasviðs. Síðan er fundur þar sem matsnefnd fær tækifæri til að ræða rannsóknarskýrslu Cynthiu. Fundurinn er öðrum lokaður. Kynningin og fundurinn fara fram á ensku.
Tilgangur matsins er tvíþættur eins og fram kemur í Reglum um doktorsnám við Menntavísindasvið: Að meta hæfni doktorsnemans til að framkvæma rannsóknarverkefni sitt og að veita endurgjöf svo að verkefnið verði svo gott sem verða má.
Matsnefndin samanstendur af leiðbeinendum Cynthia Trililani, þeim: dr. Önnudís Grétu Rúdólfsdóttir, dósent, Háskóla Íslands, meðleiðbeinanda dr. Kriistina Brunila prófessor University of Helsinki, Noregi; utanaðkomandi prófdómurum, Dr. Elisabet Öhrn, prófessor University of Gothenburg, Dr. Brynja Elísabet Halldórsdóttir, lektor, Háskóla Íslands. Atli V. Harðarsson er formaður matsnefndar og stýrir athöfninni og Sólrún B. Kristinsdóttir er ritari.