Skip to main content

Styrkupphæðir

Upphæð styrkja fer eftir áfangastað og lengd dvalar (athugið að upphæðirnar geta verið breytilegar eftir skólaárum).

  • Ferðastyrkur er 275-820 evrur
  • Styrkur fyrir styttri dvalir (5-30 dagar) er 70 evrur á dag fyrstu 14 dagana, síðan 50 evrur á dag
  • Styrkur fyrir lengri dvalir (2-12 mánuðir) er 640-690 evrur á mánuði

Nemendur sækja um Erasmus+ styrk til starfsþjálfunar hjá Alþjóðasviði.

Frestur til að sækja um Erasmus+ styrki til starfsþjálfunar er til og með 1. apríl ár hvert (eða næsta virka dag ef umsóknarfrestur er á almennum frídegi). Heimilt er að sækja um eftir auglýstan umsóknarfrest en þeir sem sækja um fyrir 1. apríl hafa forgang við úthlutun styrkja.