Skip to main content

Doktorsvörn í líffræði Sean Michael Scully

Doktorsvörn í líffræði Sean Michael Scully - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
31. maí 2019 10:00 til 12:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðarsalur

Nánar 
Allir velkomnir

Doktorsefni: Sean Michael Scully

Heiti ritgerðar: Efnaskipti amínósýra og skyldra efna hjá Thermoanaerobacter tegundum (e. Amino Acid and Related Catabolism of Thermoanaerobacter Species)

Andmælendur:
Dr. Jessica Adams, vísindamaður við Aberystwyth University í Wales.
Dr. Pauline Vannier, sérfræðingur hjá Matís ohf.

Umsjónarkennari: Dr. Guðmundur Óli Hreggviðsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands og faglegur leiðtogi hjá Matís ohf.

Leiðbeinandi: Dr. Jóhann Örlygsson, prófessor við Háskólann á Akureyri.

Einnig í doktorsnefnd: Dr. Ólafur Friðjónsson, faglegur leiðtogi hjá Matís ohf.

Doktorsvörn stýrir: Dr. Snæbjörn Pálsson, prófessor og varadeildarforseti Líf- og umhverfisvísindadeildar Háskóla Íslands.

Ágrip

Sá hluti lífeðlisfræði hitakærra baktería sem snýr að prótein- og amínósýruefnaskiptum hefur að mestu verið vanræktur í gegnum tíðina þrátt fyrir möguleika sem í þeim felast á sviði líftækni. Við loftfirrðar aðstæður krefjast margar próteinmyndandi amínósýrur utanaðkomandi rafeindaþega til þess að úr verði orkufræðilega hagstæðar aðstæður fyrir niðurbrotið. Thermoanaerobacter og Caldanaerobacter stofnar sem ræktaðir voru á greinóttum amínósýrum (e. BCAAs) ýmist í viðurvist metanframleiðanda eða þíósúlfats framleiddu annars vegar samsvarandi greinóttar fitusýrur (e. BCFA) og hins vegar blöndu af greinóttum fitusýrum og samsvarandi greinóttum alkóhólum (e. BCOH). Þessi rafeindaþegakerfi sýna mun á rafeindaflæði sem leiðir af sér framleiðslu mismunandi lokaafurða. Rannsóknir sem framkvæmdar voru á ættkvíslinni leiddu í ljós mun á niðurbrotsmynstri amínósýra og vörpuðu ljósi á að hvaða leyti stofnarnir eru prótínsundrandi, þó svo að hæfnin til að brjóta niður greinóttar amínósýrur og mynda úr þeim greinóttar fitusýrur og alkóhól virðist gilda um þá alla. Hlutföllin milli framleiddra greinóttra alkóhóla og fitusýra eru hins vegar mjög breytileg. Upphaflega var BCOH framleiðsluferlið óljóst en með notkun 13C-merktra greinóttra amínósýra og viðbættra fitusýra (t.d. asetats, 3-metýl-1-bútýrats) var hægt að sýna fram á hæfni sumra Thermoanaerobacter og Caldanaerobacter stofna til þess að nýta fitusýrurnar sem elektrónuþega og breyta þeim í samsvarandi alkóhól. Rannsóknir sýndu einnig að Thermoanaerobacter pseudoethanolicus og Thermoanaerobacter stofn AK85 megi nýta til lífummyndunar á C2-C6 fitusýrum í samsvarandi alkóhólsambönd í viðurvist rafeindagjafa.

Um doktorsefnið

Sean Scully fæddist í Bandaríkjunum og stundaði þar nám í efnafræði og líffræði við Háskólann í Toledo, Ohio. Hann flutti til Íslands árið 2008 og stundaði BS-nám í líftækni við Háskólann á Akureyri og auðlindafræði, með áherslu á líftækni, við sama skóla. Sean býr á Norðurlandi með fjölskyldu sinni og nýtur þess að vera úti í náttúrunni.

Viðburður á facebook

Sean Michael Scully

Doktorsvörn í líffræði Sean Michael Scully