Skip to main content
15. maí 2023

Varði doktorsritgerð um riddarasögur frá 14. öld

Varði doktorsritgerð um riddarasögur frá 14. öld - á vefsíðu Háskóla Íslands

Michael Micci hefur varið doktorsritgerð í íslenskum bókmenntum við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Ritgerðin nefnist Off the Map: Modes of Spatial Representation in the Indigenous Icelandic riddarasögur og var unnin undir leiðsögn Aðalheiðar Guðmundsdóttur, prófessors í íslenskum bókmenntum fyrri alda við HÍ. Einnig voru í doktorsnefnd Sif Ríkharðsdóttir, prófessor í almennri bókmenntafræði við HÍ og Massimiliano Bampi, prófessor við Ca' Foscari háskólann í Feneyjum.

Andmælendur við vörnina voru John Lindow, prófessor emeritus við Kaliforníuháskólann í Berkeley, og Sverrir Jakobsson, prófessor í sagnfræði við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði, HÍ. Gauti Kristmannsson, deildarforseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu HÍ, fimmtudaginn 11. maí.

Um rannsóknina

Í doktorsritgerð sinni fjallar Michael um frumsamdar riddarasögur frá 14. öld með áherslu á frásagnarými sem birtist okkur með mismunandi hætti í þremur völdum verkum, Sigurðar sögu þögla, Ectors sögu og Nitida sögu. Sú fræðilega nálgun sem Michael beitir snýr að ferðalögum og lýsingu á staðháttum víða um heim. Þá leitast hann einnig við að varpa ljósi á þá spurningu hvort Vestur-Evrópubúar hafi deilt hugmyndum sínum um rými. Með því að greina þann sögulega grundvöll sem sögurnar spruttu úr leggur hann fram tilgátur um hlutverk sagnanna í menningarlegu samhengi.  Michael sýnir fram á hvernig íslenskir höfundar unnu með hin nýstárlegu sagnaform síðmiðalda og með hvaða hætti sögurnar bera vott um þátttöku þeirra í hinni litríku menningarflóru evrópskra síðmiðalda.

Um doktorinn

Michael Micci lauk BA-prófi í erlendum tungumálum og bókmenntum við Alma Mater Studiorum í Bologna og meistaraprófi í samanburðarbókmenntum frá sama skóla. Michael hóf doktorsnám sitt við Háskóla Íslands árið 2017. Hann starfar nú sem stundakennari í íslensku og íslenskum bókmenntum við Háskólann í Mílanó.

Aðalheiður Guðmundsdóttir, Ólöf Garðarsdóttir, Sverrir Jakobsson, Michael Micci, John Lindow, Gauti Kristmannsson og Sif Ríkharðsdóttir.
Michael Micci