Skip to main content
21. september 2023

Varði doktorsritgerð um myndefni í innsiglum miðalda

Varði doktorsritgerð um myndefni í innsiglum miðalda - á vefsíðu Háskóla Íslands

Guðrún Harðardóttir hefur varið doktorsritgerð í sagnfræði, Images in seals of chapters and bishops in the medieval dioceses of Norway and Iceland, við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði Háskóla Íslands. 

Andmælendur við vörnina voru Elizabeth New, dósent í sagnfræði við Aberystwyth háskólann í Wales, og Øystein Ekroll, dósent við Nidaros domkirkes restaureringsarbeider (NDR). Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Sverris Jakobssonar, prófessors í sagnfræði við Háskóla Íslands og auk hans sátu í doktorsnefnd þeir Haki Antonsson, prófessor við UCL háskólann í London, Erla Hohler, fyrrverandi prófessor við háskólann í Osló, sem lést árið 2019 og Julian Gardner, prófessor emeritus við Warwick háskólann í Bretlandi.

Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir, varadeildarforseti Deildar heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands 20. september.

Um rannsóknina

Ritgerðin fjallar um myndefni í innsiglum dómkirkna, klaustra og biskupa í norsku og íslensku biskupsdæmunum eins og þau voru á miðöldum er þau heyrðu undir erkibiskupsdæmið í Niðarósi. Viðfangsefnið er tvíþætt, annars vegar að ná fram yfirliti um innsiglin frá þessum biskupsdæmum sem þá heyrðu undir erkibiskupsdæmið í Niðarósi. Hins vegar að fjalla sérstaklega um kirkjumyndir og byggingarhluta í innsiglum dómkirkna, klaustra og biskupa. Lykilþáttur var að skoða sérstaklega kirkjubyggingar og byggingarhluta í kapítulainnsiglum og myndirnar eru túlkaðar út frá hugmyndaheimi miðalda. Sérstök áhersla var lögð á að meta þessi atriði í íslensku innsiglunum í ljósi þess að engar miðaldakirkjur hafa varðveist hér á landi. Myndefni þeirra hefur því einstakt heimildagildi. Niðurstöður ritgerðarinnar eru marglaga en draga einkum fram menningartengsl á Norður-Atlantshafssvæðinu.

Um doktorinn

Guðrún Harðardóttir lauk MA prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands og starfaði við Þjóðminjasafn Íslands um árabil, einkum húsasafn og myndasafn. Hún sinnir nú hlutastarfi við Listasafn Einars Jónssonar ásamt því að vinna að yfirlitsriti um íslenskar miðaldakirkjur.

Ólöf Garðarsdóttir, Øystein Ekroll, Guðrún Harðardóttir, Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir og Sverrir Jakobsson.