Skip to main content
28. ágúst 2023

Varði doktorsritgerð um fyrstu skref frjálsrar verslunar 1751–1791

Varði doktorsritgerð um fyrstu skref frjálsrar verslunar 1751–1791 - á vefsíðu Háskóla Íslands

Margrét Gunnarsdóttir hefur varið doktorsritgerð í sagnfræði, Ísland og danskt krúnuvald á Norður-Atlantshafi: Fyrstu skref frjálsrar verslunar 1751–1791, við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði í Háskóla Íslands. 

Andmælendur við vörnina voru Helgi Skúli Kjartansson, prófessor emeritus í sagnfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, og Sveinn Máni Jóhannesson, nýdoktor við Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Önnu Agnarsdóttur, prófessors emerita í sagnfræði við Háskóla Íslands og auk hennar sátu í nefndinni þeir Guðmundur Jónsson og Már Jónsson, prófessorar í sagnfræði við Háskóla Íslands.

Sverrir Jakobsson, deildarforseti Deildar heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands föstudaginn 25. ágúst.

Um rannsóknina

Í ritgerðinni er fjallað um áform um aukið hlutverk Íslands í verslun á Norður-Atlantshafi á árunum 1751–1791. Í umskiptatíð á alþjóðavettvangi sem hófst með sjálfstæðisyfirlýsingu Bandaríkjamanna, voru uppi áform um að stuðla að valdajafnvægi og bættum utanríkissamskiptum með frjálsri verslun. Æskilegt þótti að stefna einnig að verslunarfrelsi á Íslandi og aðgerðir dönsku krúnunnar í því efni eru sett í samhengi við alþjóðlega viðskiptasamninga á níunda áratugnum. Menningar- og réttararfur þjóðveldistímans, sem einkenndist af pólitísku frelsi, hafði undirliggjandi þýðingu. Samhliða stefnumótun frjálsrar verslunar voru því gefin út ýmis fornrit með hugmyndafræðilegt gildi sem styrktu valdastoðir danska erfðakonungsdæmisins og bentu á rætur siglinga- og verslunarfrelsis. Hægfara innleiðing frjálsrar verslunar á Íslandi sýndi framfarahug danskra stjórnvalda og krúnu og samvinnuanda hennar gagnvart nágrannaríkjum um verslunaráform á Norður-Atlantshafi.

Um doktorinn

Margrét Gunnarsdóttir er með B.A.-gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands og M.A.-gráðu frá sama skóla. Margrét starfar sem sérfræðingur í þjóðlendurannsóknum á Þjóðskjalasafni Íslands en var áður um árabil sögukennari í framhaldsskóla.

Anna Agnarsdóttir, Sverrir Jakobsson, Helgi Skúli Kjartansson, Margrét Gunnarsdóttir, Sveinn Máni Jóhannesson, Ólöf Garðarsdóttir og Guðmundur Jónsson.