Skip to main content
18. febrúar 2015

Þjóðminjasafnið afhendir HÍ gömlu Loftskeytastöðina

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður undirrituðu í gær samning um að Þjóðminjasafn Íslands afhendi Háskóla Íslands gömlu Loftskeytastöðina við Brynjólfsgötu 5 til afnota.

Með gjafasamningi og afsali gaf Landssími Íslands ríkissjóði Loftskeytastöðina. Húsið var síðan afhent Þjóðminjasafni Íslands 1. mars 2005 til umráða og umsýslu og skyldi safnið frá þeim tíma sjá um rekstur og ráðstöfun þess samkvæmt nánara samkomulagi við Háskóla Íslands. Árið 2013 varð Þjóðminjasafnið háskólastofnun með sjálfstæðan fjárhag og um þessar mundir er stefnt að undirritun samstarfssamnings milli Háskóla Íslands og Þjóðminjasafnsins.

Að tillögu Þjóðminjasafns Íslands féllst forsætisráðherra á að Háskóli Íslands tæki við ábyrgð Loftskeytastöðvarinnar til afnota í þágu starfsemi skólans. Við undirritun samningsins  tekur Háskóli Íslands við ábyrgð hússins, viðhaldi og viðgerðum auk þess að velja húsinu viðeigandi hlutverk sem hæfir sögu þess og byggingarsögulegu gildi, s.s. á sviði skipulags-, umhverfis- og menningarfræða og tæknigreina.

Loftskeytastöðin var byggð árið 1915 og frá og með árinu 2015 friðuð á grundvelli laga um menningarminjar. Samkvæmt samningnum mun Háskóli Íslands sjá til þess að saga hússins á sviði fjarskipta verði þar sýnileg.

Frá undirritun samningsins í Háskóla Íslands í gær. Neðri röð frá vinstri: Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands. Efri röð frá vinstri: Anna Lísa Rúnarsdóttir, sviðsstjóri rannsókna- og varðveislusviðs við Þjóðminjasafnið, Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, og Sæunn Stefánsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu rektors við Háskóla Íslands.
Loftskeytastöðin var byggð árið 1915 og frá og með árinu 2015 friðuð á grundvelli laga um menningarminjar.