Skip to main content
4. nóvember 2019

Tækifæri um allan heim á Alþjóðadögum

""

Alþjóðadagar hefjast í dag og standa til 6. nóvember. Á dagskrá eru spennandi fyrirlestrar, kynningar á möguleikum á námi erlendis, barsvar, tónlist og margt fleira. Markmið Alþjóðadaga er að vekja athygli á alþjóðlegu samstarfi Háskólans og þeim fjölmörgu tækifærum sem standa nemendum og starfsfólki til boða um allan heim.

Kynningar á skiptinámi, sumarnámi og starfsþjálfun verða í gangi alla dagana og eru opnar öllum nemendum HÍ. Upplýsingastofa um nám erlendis verður með erindi um nám á eigin vegum og möguleikar á Erasmus+ ferða- og dvalarstyrkjum fyrir starfsfólk verða kynntir. Þá geta nemendur kynnt sér háskólanám í Svíþjóð og spjallað við fyrrum skiptinema.

Nemendum gefst kostur á að taka þátt í Instagram leik þar sem m.a. er hægt að vinna tvö gjafabréf með 50.000 vildarpunktum Icelandair. 

Á Alþjóðatorgi á miðvikudag gefst nemendum kostur á að kynna sér skiptinám, starfsþjálfun og sumarnám, auk náms á eigin vegum. Fyrrum og núverandi skiptinemar, fulltrúar frá sendiráðum og fjölmörgum íslenskum stofnunum og félögum verða til viðtals á torginu. MYND/Kristinn Ingvarsson

Alþjóðatorgið

Miðvikudaginn 6. nóvember er svo komið að hápunkti Alþjóðadaga á Háskólatorgi milli kl. 11.30-13.00. Þar gefst nemendum kostur á að kynna sér skiptinám, starfsþjálfun og sumarnám, auk náms á eigin vegum. Fyrrum og núverandi skiptinemar, fulltrúar frá sendiráðum og fjölmörgum íslenskum stofnunum og félögum verða til viðtals á torginu. Svið og deildir háskólans og starfsfólk Skrifstofu alþjóðasamskipta verða einnig á staðnum og veita upplýsingar um námsdvöl erlendis. Starfsfólk háskólans getur kynnt sér möguleika á kennara- og starfsmannaskiptum og öðrum kostum sem bjóðast innan Erasmus+. 

Hljómsveitin Syntagma Rebetiko lífgar upp á stemninguna með grískri kaffihúsatónlist. Hljómsveitina skipa þau Ásgeir Ásgeirsson, bouzouki, Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir, fiðla, Margrét Arnardóttir, harmonikka og Alexandra Kjeld, bassi. Þá verður boðið upp á alþjóðlegt matar- og drykkjasmakk.

Eftirtaldir taka þátt: Sendiráð Bretlands, Danmerkur, Finnlands, Frakklands, Indlands, Japans, Kanada, Noregs, Póllands, Rússlands, Svíþjóðar og Þýskalands; Ræðisskrifstofur Færeyja og Ítalíu, Fulbright stofnunin, Skrifstofa alþjóðasamskipta, Svið og deildir háskólans, Upplýsingastofa um nám erlendis, Rannís, Náms- og starfsráðgjöf, Norræna félagið, LÍN, Konfúsíusarstofnunin, Hollvinafélag Minnesotaháskóla á Íslandi, Tungumálamiðstöðin, AIESEC, ESN, Sendinefnd Evrópusambandsins, IAESTE, alþjóðanefnd Stúdentaráðs og skiptinemar.

Nánari upplýsingar um dagskrá Alþjóðadaga má finna á viðburðadagatali Háskóla Íslands en þar er einnig að finna nánari upplýsingar um Alþjóðatorgið 6. nóvember.

Dagskráryfirlit

Frá alþjóðadögum 2018