Skip to main content
3. júlí 2023

Skrifstofa Menntavísindasviðs opnar á ný 1. ágúst

Skrifstofa Menntavísindasviðs opnar á ný 1. ágúst - á vefsíðu Háskóla Íslands

Skrifstofa Menntavísindasviðs verður lokuð vegna sumarleyfa frá 3. - 31. júlí. Þjónustuborð Háskóla Íslands á Háskólatorgi verður opið í allt sumar en þar er nemendum veitt margvísleg þjónusta. Smellið hér fyrir nánari upplýsingar um Þjónustuborðið.                 
Móttaka nýnema í grunnnámi á Menntavísindasviði fer fram mánudaginn 21. ágúst. Hér má sjá mikilvægar upplýsingar fyrir nýnema og dagskrá móttöku nýnema: Velkomin á Menntavísindasvið | Háskóli Íslands (hi.is)
Einnig má nálgast gagnlegar upplýsingar á nýnemavef Háskóla Íslands.

Kennsla við Menntavísindasvið hefst að nýju mánudaginn 21. ágúst þegar móttaka nýnema fer fram. Þess má geta að fyrri staðlota á Menntavísindasviði fer fram 11. – 14. september.

Njótið sumarsins og sjáumst í ágúst!

 

Sumaropnun Menntavísindasvið