Skip to main content
14. apríl 2023

Samstarf við Kamuzu-háskóla í Malaví um framhaldsnám í lyfjafræði

Samstarf við Kamuzu-háskóla í Malaví um framhaldsnám í lyfjafræði - á vefsíðu Háskóla Íslands

Lyfjafræðideild Háskóla Íslands og Heilbrigðisvísindasvið Kamuzu-háskólans (KUHeS) í Malaví hafa hafið samstarf um framhaldsnám. Nýverið var fyrsti nemandinn tekinn inn í lyfjafræðideild KUHeS og mun hann skoða virkni efna sem hafa verið í þróun við Háskóla Íslands gegn sveppasýkingum sem finnast í hitabeltislöndum.

KUHeS hefur á undanförnum árum unnið að því að byggja upp framhaldsnám í lyfjavísindum en um er að ræða tveggja ára nám til M.Phil-prófs frá lyfjafræðideild sviðsins. Þau tímamót urðu á dögunum að fyrsti nemandinn, Tadala K. Phiri, var tekinn in í námið. Námið fer fram við lyfjafræðideildir KUHeS og HÍ og í samstarfi við tvö íslensk fyrirtæki, Hananja, sem vinnur að þróun nýrra lyfja, og Capretto, sem þróar lækningatæki. 

Í námi sínu mun Tadala leggja sérstaka áherslu að greina stofna sem finnast í hitabeltislöndum og valda sveppasýkingum í húð og leiðir til að vinna gegn þeim. Til að greina þessa sveppi mun hún prófa að nýta lítið tæki sem nefnist Raman, sem byggist á leisitækni, ekki ósvipað leisihitamæli. Markmiðið er að þróa einfalda aðferð til þess að greina þá stofna sem valda sveppasýkingum í Malaví og í framhaldinu kanna hvort örverudrepandi efni sem finna má í brjóstamjólk megi nýta til að útrýma slíkum sýkingum. Rannsóknir þeirra Halldórs Þormars og Þórdísar Kristmundsdóttur, sem bæði eru prófessorar emeritus við HÍ, hafa sýnt að brjóstamjólk hefur einstaka eiginleika til að ráða niðurlögum sjúkdómsvaldandi veira, baktería og sveppa. Verkefnið er unnið í bænum Mangochi í Malaví og fer hluti vinnu Tadala fram við Mangochi District Hospital og hluti verkefnisins verður unninn við Háskóla Íslands. Þess má geta að Þróunarsamvinnustofnun Íslands er með mikið samstarf við Mangochi.

Þetta samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Kamuzu-háskóla nýtur stuðning Erasmus+ áætlunar Evrópusambandsins sem miðar m.a. að því að styðja við stúdenta- og starfsmannaskipti milli háskóla. Fyrirtækið Hananja styður einnig verkefnið.  

Leiðbeinendur Tadölu í meistaranáminu verða þau Frider Chimimba og Baxter H. Kachingwe frá KUHeS og Helga Helgadottir, Ingibjörg Hilmarsdóttir og Sveinbjörn Gizurarson, sem starfa við Lyfjafræði- og Lækndadeildir Háskóla Íslands. Sá síðastnefndi hefur um árabil unnið með vísindamönnum í Malaví m.a. að þróun nýrra lyfja og uppbyggingu lyfjaverksmiðju í landinu í gegnum Hananja, en Sveinbjörn er framkvæmdastjóri félagsins auk þess að vera prófessor við Lyfjafræðideild.

Fyrsti nemandinn í hinu nýja framhaldsnámi ásamt leiðbeinendum sínum og samstarfsfólki. Frá vinstri: Baxter H Kachingwe, Sveinbjörn Gizurarson, Helga Helgadottir, Sigríður Ruth Th Barker, MS-nemi við HÍ sem heimsótti KUHeS, Frider Chimimba og Tadala K. Phiri.