Skip to main content
22. desember 2021

Rannveig Þórhallsdóttir fornleifafræðingur ráðin til Rannsóknaseturs HÍ á Austurlandi

Rannveig Þórhallsdóttir fornleifafræðingur ráðin til Rannsóknaseturs HÍ á Austurlandi - á vefsíðu Háskóla Íslands

Rannveig Þórhallsdóttir hefur verið ráðin sem verkefnastjóri við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Austurlandi. Verkefnin sem Rannveig mun sinna hjá setrinu verða á sviði fornleifafræði ásamt ýmsu öðru. Rannveig hefur störf 1. janúar 2022 ásamt því að starfa áfram að hinum ýmsu verkefnum öðrum sem hún hefur nú þegar á prjónunum. Ráðning hennar er liður í því að efla starfsemi rannsóknasetursins á Austurlandi. Starfsstöðvar Rannsóknasetursins verða bæði á Egilsstöðum og Seyðisfirði frá næstu áramótum. 

Maður og náttúra er meginviðfangsefni Rannsóknaseturs HÍ á Austurlandi og meginmarkmið þess er að auka þekkingu á sögu samfélags og náttúru Austurlands, stunda og stuðla að rannsóknum á sögu, samfélagi og náttúru á Austurlandi og efla samstarf Háskóla Íslands við menningarstofnanir, vísindamenn og fræðafélög á Austurlandi.

Rannveig er búsett á Seyðisfirði en fædd og uppalin á Egilsstöðum. Hún starfar hjá eigin fyrirtæki, Sagnabrunni ehf., og við kennslu í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Auk þess vinnur hún að doktorsrannsókninni „Árþúsund við Atlantshaf“, í fornleifafræði við HÍ þar sem hún skoðar fornDNA plantna, dýra og baktería í jarðvegi bæjarhólsins í Skálanesi. Hún lauk meistaraprófi í fornleifafræði við HÍ haustið 2018 með rannsókn sem fjallaði um svonefnda fjallkonu sem fannst á Vestdalsheiði. Rannveig lauk BA prófi í bókmenntafræði frá HÍ árið 1999 og réttindum til kennslu í grunn- og framhaldsskóla frá HA árið 2001. 

Síðustu tvö árin hefur Rannveig unnið að uppgreftri í Firði í Seyðisfirði þar sem fjórar grafir frá landnámstíma fundust sumarið 2021 á framkvæmdasvæði vegna ofanflóðavarna á Seyðisfirði. Ráðgert er að grafa upp byggingar frá landnámstíma sumarið 2022 á sama stað. Rannveig vann sumrin 2016-2019 að uppgreftri Fornleifafræðistofunnar á víkingaskála í Stöð, Stöðvarfirði. Hún hefur m.a. starfað sem safnstjóri Minjasafns Austurlands, þýðandi hjá Utanríkisráðuneytinu og komið að uppbyggingu og rekstri náttúru- og menningarsetursins Skálaness í Seyðisfirði með eiginmanni og fjölskyldu. 

Rannsóknasetur HÍ á Austurlandi býður Rannveigu velkomna til starfa.
 

Rannveig Þórhallsdóttir er nýr starfsmaður Rannsóknaseturs HÍ á Austurlandi