Skip to main content
21. apríl 2023

Nýr kennsluvefur Icelandic Online fyrir börn opnaður

Nýr kennsluvefur Icelandic Online fyrir börn opnaður - á vefsíðu Háskóla Íslands

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra opnaði kennsluvefinn Icelandic Online fyrir börn við hátíðlega athöfn í Vigdísarstofu í Veröld – húsi Vigdísar þann 18. apríl, á fyrsta degi Barnamenningarhátíðar Reykjavíkur 2023.

Icelandic Online fyrir börn er gagnvirkt námsefni með leikjaívafi í íslensku sem öðru máli fyrir börn á leikskólaaldri og í fyrstu bekkjum grunnskóla. Á kennsluvefnum eru sjö námskeið í mismunandi þyngdarstigum. Markhópurinn eru 5-7 ára börn sem eiga erlent mál að móðurmáli og íslensk börn sem alist hafa upp í öðru málumhverfi og eru að byrja að lesa. Efnið mun einnig nýtast sem ítarefni við móðurmálsnám, en í því er sérstök áhersla lögð á skólamál og mál námsbóka. Námskeiðið tekur mið af Aðalnámskrá leik- og grunnskóla, og nýtir sér vefnámskeiðaumhverfi Icelandic Online, sem hentar bæði tölvum og snjalltækjum. Kennsluvefurinn er gjaldfrjáls og öllum opinn. Verkefnið hlaut styrki frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Barnavinarfélagsinu Sumargjöf, Styrktarsjóði Áslaugar Hafliðadóttur, Þróunarsjóði innflytjendamála og Þróunarsjóði námsgagna.

Vefurinn Icelandic Online býður nú upp á sjö opin, gagnvirk og sjálfstýrð námskeið í íslensku sem öðru máli fyrir fullorðna og kennsluvefurinn fyrir börn er nýjasta viðbótin.

Ritstjórar nýja kennsluvefjarins voru Birna Arnbjörnsdóttir og Halldóra Jóhanna Þorláksdóttir en Úlfur Alexander Einarsson verkefnastýrði hugbúnaðar- og forritunarvinnu. Handritsgerð var í höndum Halldóru Jóhönnu Þorláksdóttur, Þorgerðar Önnu Björnsdóttur og Birnu Arnbjörnsdóttur.  Um grafíska hönnun sá Bjarney Hinriksdóttir og Davíð Hólm Júlíusson um myndbandagerð, hljóðupptökur og hljóðvinnslu. Ásamt handritshöfundum sátu í ritnefnd Branislav Bédi, Kolbrún Friðriksdóttir og Úlfar Bragason. Aðrir starfsmenn voru Anna María Steingrímsdóttir, Guðlaug Agnes Kristjánsdóttir, Gunnar Dofri Viðarsson, Júlía Hermannsdóttir, Saga Rut Sunnevudóttir, Sara Ósk Þorsteinsdóttir, Sigurður Birkir Sigurðsson og Þröstur Almar Þrastarson. Talsetningu önnuðust Jón Bergsteinn Auðarson, Kristín Jónsdóttir, Rebekka Þráinsdóttir, Þorgerður Anna Björnsdóttir og Þorri Elís Halldóruson. Bergur A. H. Jónsson og Diljá Þorbjargardóttir aðstoðuðu við yfirlestur og villuprófanir. Hulda Karen Daníelsdóttir, Renata Emilsson Pesková, Sigríður Sigurjónsdóttir og Ragnhildur Sigurðardóttir voru í ráðgjafanefnd en sérfræðingar við Menntamálastofnun veittu einnig ráðgjöf við gerð efnisins. Vefurinn verður hýstur hjá Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands.

Í ræðu sinni á opnunarathöfn Icelandic Online fyrir börn, fagnaði menningar- og viðskiptaráðherra tilkomu kennsluvefjarins og lagði áherslu á mikilvægi íslenskunáms og stuðnings við fjöltyngd börn. Einnig tóku til máls Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Birna Arnbjörnsdóttir, prófessor emerita, verkefnastjóri Icelandic Online en Valgerður Jónasdóttir, viðburðastjóri Vigdísarstofnunar, stýrði athöfninni. Skólabörn úr 5. og 6. bekk Landakotsskóla voru sérstakir gestir við opnunina og sungu tvö lög við ljóð Þórarins Eldjárns.

Nokkrar myndir Kristins Ingvarssonar frá opnuninni má sjá hér að neðan.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra opnaði kennsluvefinn Icelandic Online fyrir börn við hátíðlega athöfn í Vigdísarstofu í Veröld – húsi Vigdísar þann 18. apríl, á fyrsta degi Barnamenningarhátíðar Reykjavíkur 2023.