Skip to main content
26. júní 2023

Móttaka Lagadeildar í tilefni af brautskráningu nemenda

Móttaka Lagadeildar í tilefni af brautskráningu nemenda - á vefsíðu Háskóla Íslands

Laugardaginn 24. júní síðastliðinn brautskráðust frá Lagadeild Háskóla Íslands 89 einstaklingar við hátíðlega athöfn í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Á skólaárinu 2022-2023 hafa 114 brautskráðst frá Lagadeild.

Að venju bauð Lagadeild til móttöku daginn fyrir brautskráningu þar sem veittar voru viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur. Trausti Fannar Valsson, forseti Lagadeildar, ávarpaði boðsgesti en að því búnu voru veittar eftirtaldar viðurkenningar.

Jens Ingi Andrésson hlaut viðurkenningu Bókaútgáfunnar Codex fyrir að hafa í fyrstu tilraun staðist öll námskeið fyrsta árs í BA námi við Lagadeild með hæstu meðaleinkunn. Í viðurkenningarskyni færði bókaútgáfan Jens Inga að gjöf allar námsbækur annars og þriðja árs í BA námi lögfræði sem gefnar eru út af Codex. Lilja Hrönn Ö. Hrannarsdóttir afhenti viðurkenninguna fyrir hönd bókaútgáfunnar Codex.

Ylfa Helgadóttir hlaut viðurkenningu Hollvinafélags Lagadeildar Háskóla Íslands fyrir hæstu einkunn á BA-prófi við Lagadeild meðal brautskráðra BA nema skólaárið 2022 til 2023. Trausti Fannar Valsson, forseti Lagadeildar afhenti Ylfu viðurkenninguna fyrir hönd Hollvinafélagsins og nam hún 150 þúsund kr.

Guðrún Sólveig Sigríðardóttir hlaut viðurkenningu lögmannsþjónustunnar LOGOS fyrir hæstu einkunn á meistaraprófi við Lagadeild meðal brautskráðra meistaranema skólaárið 2022-2023. Benedikt Egill Árnason framkvæmdastjóri LOGOS afhenti Guðrúnu Sólveigu af þessu tilefni verðlaun frá lögmannstofunni sem námu 250 þúsund kr.

Þá veittu LLG Lögmenn verðlaun að upphæð 250 þúsund kr. í viðurkenningarskyni þeim stúdent sem skilaði bestu lokaritgerð til meistaraprófs í lögfræði á almanaksárinu 2022. Að þessu sinni varð fyrir valinu meistararitgerð Guðrúnar Gígju Sigurðardóttur „Græn skuldabréf: Samspil sjálfbærra fjármála og skuldabréfamarkaða við útgáfu grænna skuldabréfa“. Leiðbeinandi hennar var Friðrik Ársælsson, þá aðjunkt við Lagadeild. Sigurður Kári Kristjánsson afhenti verðlaunin fyrir hönd LLG.

Verðlaunahafar og deildarforseti Lagadeildar ásamt fulltrúum þeirra sem veita verðlaunin
Guðrún Sólveig Sigríðardóttir ásamt Benedikt Agli Árnasyni framkvæmdastjóra LOGOS
Guðrún Gígja Sigurðardóttir ásamt Sigurði Kára Kristjánssyni eins eigenda LLG
Jens Ingi Andrésson ásamt Lilja Hrönn Ö.Hrannarsdóttur frá bókaútgáfunni Codex
Ylfa Helgadóttir ásamt Trausta Fannari Valssyni deildarforseta Lagadeildar