Skip to main content
7. febrúar 2022

Lára leiðir Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála tímabundið

Lára leiðir Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála tímabundið - á vefsíðu Háskóla Íslands

Lára Hrönn Hlynsdóttir tók um mánaðamótin við sem starfandi forstöðumaður við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála í fjarveru Gústafs Adolfs Skúlasonar sem sinnir tímabundnu verkefni á vegum Menntamálastofnunar.

Lára er vel kunnug stofnuninni en hún hefur starfað þar frá árinu 2017 sem verkefnastjóri og á þeim tíma komið að skipulagi fjölmargra viðburða, námskeiða og rannsóknarverkefna á vegum stofnunarinnar.

„Það eru mörg spennandi verkefni á döfinni og meðal annars erum við í viðræðum um að halda stóra alþjóðlega ráðstefnu um borgarskipulag á næsta ári. Þannig að það er nóg um að vera hjá Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála.“

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála er rannsókna-, fræðslu- og þjónustustofnun sem heyrir undir Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og starfar sem sjálfstæður aðili í tengslum við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. Stofnunin starfar náið með stofnunum og félagasamtökum, innlendum sem erlendum eftir því sem tilefni gefast, m.a. með forsætisráðuneytinu og Reykjavíkurborg á grundvelli þjónustusamninga.

Meðal þess sem fram undan er hjá stofnuninni má nefna ýmis námskeið fyrir starfsfólk í stjórnsýslu, þar á meðal hið árlega 6 vikna námskeið í stjórnsýslurétti sem hefst 15. febrúar næstkomandi, útgáfu tímaritanna Stjórnmál & stjórnsýsla og Tímarits um viðskipti og efnahagsmál, málþing í maí vegna loka rannsóknarverkefnis um lögmæti auk fjölda viðburða sem tengjast málefnum stjórnmála og stjórnsýslu.

Lára Hrönn Hlynsdóttir starfandi forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála

Lára Hrönn Hlynsdóttir starfandi forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála. MYND/Kristinn Ingvarsson